Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Side 2
2 Fréttir Helgarblað 15.–18. janúar 2016
H E I L S U R Ú M
ÚTSALAN
ER HAFIN!
AFSLÁTTUR!
20-80%
A
R
G
H
!!!
0
50
11
6
L
ögblindur Bandaríkjamaður
hefur kært eigendur skemmti
staðarins Shooters í Austur
stræti fyrir að hafa gjaldfært
tæpar þrjár milljónir út af
kreditkortum hans þegar hann var
að skemmta sér á staðnum í sumar.
Hann segist hafa pantað sér nokkra
drykki á barnum og búist við reikn
ingi upp á um 20 þúsund íslenskar
krónur en reikningurinn hafi hljóð
að upp á rúmlega 22 þúsund dollara.
Fríið endaði með martröð
Colin O'Donohoe, sem er tónlistar
stjórnandi frá New York, var staddur
hér á landi í tveggja vikna leyfi. Að
hans sögn átti hann gott frí hér á
landi allt þar til hann vafraði inn á
skemmtistaðinn Shooters í Austur
stræti 12a. „Þetta var síðasta kvöldið
mitt og ég fór út að borða með vinum
á nærliggjandi veitingastað,“ segir
Colin í stuttu samtali við DV. Hann
hafi síðan viljað skemmta sér áfram
og farið inn á Shooters upp úr mið
nætti, aðallega út af góðu tilboði á
bjór á staðnum.
Shooters er svokallaður kampa
vínsklúbbur þar sem viðskiptavinir
greiða ákveðið gjald til að fá að spjalla
við kvenfólk sem starfar á staðnum. Í
umfjöllun Stundarinnar, síðastliðinn
september, var fullyrt að nektar
dans færi fram á staðnum fyrir lukt
um tjöldum á efri hæð staðarins. Til
þess að fara afsíðis með konu þyrfti
að borga fyrir kampavín sem kost
aði frá tuttugu þúsundum og allt upp
í tæpa hálfa milljón króna. Í grein
Stundarinnar var sýnt fram á tengsl
milli Shooters og forvera staðarins
VIP Club sem var í sama húsnæði.
VIP Club var lokað af lögreglu vegna
gruns um að vændi væri stundað á
staðnum.
Segir undirskriftir falsaðar
„Ég keypti bara nokkra drykki
á staðnum,“ segir Colin. Hann
þvertekur fyrir að hafa keypt sér
nektar dans og hvað þá keypt vændi á
staðnum. Hann segist hafa nokkrum
sinnum reynt að greiða fyrir drykkina
en verið tjáð að korti hans hafi verið
hafnað. Þá hafi hann framvísað öðr
um kortum. Alls voru teknir út 22.446
dollarar, um 2,8 milljónir, í fjölmörg
um færslum af fjórum greiðslukort
um í hans eigu.
Í kæru NewYorkbúans, sem DV
hefur undir höndum, heldur hann
því fram að undirskriftirnar á kvitt
ununum séu greinilega falsaðar og
að skemmtistaðurinn hafi misnotað
fötlun hans með refsiverðum hætti.
O'Donohoe þjáist af hrörnun í augn
botni og hefur mjög takmarkaða
sjón. Hann er bótaþegi og því setur
meint athæfi skemmtistaðarins líf
hans úr skorðum fjárhagslega. „Þetta
hafði verulega slæmar afleiðingar
fyrir mig og setti ljótan blett á ferðina.
Ég efast um að ég geti hugsað mér að
heimsækja Ísland aftur,“ segir Colin.
Rekstrarstjórinn hlaut dóm fyrir
rekstur fjárhættuspila
Kæra O'Donohoe snýr að rekstr
arfélagi Shooters sem heitir KFK
ehf. og skráðum eiganda þess, Þór
dísi Elvu Guðmundsdóttur. Í fyrr
greindri umfjöllun Stundarinnar
var fullyrt að raunverulegur eigandi
Shooters væri Lárus Jónsson, son
ur Þórdísar Elvu. Einnig var fullyrt í
greininni að rekstrarstjóri Shooters
og forverans, VIP Club, væri Kristján
Georg Jósteinsson en eistnesk eigin
kona hans er vaktstjóri stúlknanna.
Þau voru bæði dæmd til refsingar,
ásamt samstarfsmanni í Héraðsdómi
Reykjavíkur þann 3. nóvember síð
astliðinn fyrir fjárhættuspil í gegn
um P&P áhugamannafélag. Kristján
hlaut 12 mánaða fangelsisdóm, þar
af 9 mánuði skilborðsbundna en
eigin kona hans hlaut 9 mánaða dóm,
þar af 6 mánuði skilorðsbundna.
Dómunum var áfrýjað. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir náðist hvorki í
Þórdísi Elvu né Kristján Georg við
vinnslu fréttarinnar. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Lögblindur maður rukkaður
um 2,8 milljónir á Shooters
n Segir gjaldfærslurnar gerðar í heimildarleysi og undirskriftir falsaðar
Colin O'Donohoe Er virtur tónlistarstjórn-
andi frá New York. Hann er lögblindur sökum
hrörnunar augnbotna.
Shooters Slagorð
staðarins er „besta
fullorðins skemmt-
un í Reykjavík“ MynD
ÞORMaR VigniR gunnaRSSOn
Kvittanir Stærstu færslurnar tvær hljóða upp á 980 þúsund og voru gjaldfærðar með tveggja klukkustunda millibili. Mínútu eftir
síðari færsluna var 240 þúsund króna færsla gjaldfærð. Colin segir undirskriftirnar falsaðar.
„Þetta hafði veru-
lega slæmar af-
leiðingar fyrir mig og setti
ljótan blett á ferðina.
„Ég drakk bara
nokkra drykki á
staðnum
E
rlend greiðslukortavelta hér
á landi var alls 9,4 milljarðar
króna í desember síðastliðnum
sem var 2,9 milljörðum króna
hærri upphæð en í sama mánuði
fyrir ári eða hækkun sem nemur um
44,5% á milli ára. Ef borin er saman
erlend kortavelta desembermánaða
síðustu fjögurra ára sést að hún
hefur aukist um 133% á tímabilinu.
Erlend kortavelta í verslunum
nam alls 1,6 milljörðum króna í
mánuðinum. Hæstum upphæðum
var varið til kaupa í dagvöruverslun
um, 316 milljónum króna, og þar næst
til fatakaupa, 309 milljónum króna.
Ferðamenn greiddu í desember
jafn háa upphæð með kortum sínum
fyrir gistingu eins og í verslun, eða
1,6 milljarða króna.
Þá greiddu ferðamenn rúmlega
einn milljarð króna á veitingahúsum
í desember síðastliðnum sem er 55%
hærri upphæð en í desember fyrir
ári. Ferðamenn voru á ferð og flugi
innanlands í desember og tvöfald
aðist kortavelta vegna farþegaflutn
inga á milli ára. Þar vega flugferð
ir þyngst. Erlend kortavelta vegna
flugferða nam 1,3 milljörðum króna
í desember. Þá greiddu útlendingar
470 milljónir króna fyrir bílaleigubíla
í desember sem er 49% hærri upp
hæð en fyrir ári. n
Eyddu 9,4 milljörðum
Ferðamenn voru eyðsluglaðir á Íslandi