Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 2
2 Fréttir Helgarblað 15.–18. janúar 2016 H E I L S U R Ú M ÚTSALAN ER HAFIN! AFSLÁTTUR! 20-80% A R G H !!! 0 50 11 6 L ögblindur Bandaríkjamaður hefur kært eigendur skemmti­ staðarins Shooters í Austur­ stræti fyrir að hafa gjaldfært tæpar þrjár milljónir út af kreditkortum hans þegar hann var að skemmta sér á staðnum í sumar. Hann segist hafa pantað sér nokkra drykki á barnum og búist við reikn­ ingi upp á um 20 þúsund íslenskar krónur en reikningurinn hafi hljóð­ að upp á rúmlega 22 þúsund dollara. Fríið endaði með martröð Colin O'Donohoe, sem er tónlistar­ stjórnandi frá New York, var staddur hér á landi í tveggja vikna leyfi. Að hans sögn átti hann gott frí hér á landi allt þar til hann vafraði inn á skemmtistaðinn Shooters í Austur­ stræti 12a. „Þetta var síðasta kvöldið mitt og ég fór út að borða með vinum á nærliggjandi veitingastað,“ segir Colin í stuttu samtali við DV. Hann hafi síðan viljað skemmta sér áfram og farið inn á Shooters upp úr mið­ nætti, aðallega út af góðu tilboði á bjór á staðnum. Shooters er svokallaður kampa­ vínsklúbbur þar sem viðskiptavinir greiða ákveðið gjald til að fá að spjalla við kvenfólk sem starfar á staðnum. Í umfjöllun Stundarinnar, síðastliðinn september, var fullyrt að nektar­ dans færi fram á staðnum fyrir lukt­ um tjöldum á efri hæð staðarins. Til þess að fara afsíðis með konu þyrfti að borga fyrir kampavín sem kost­ aði frá tuttugu þúsundum og allt upp í tæpa hálfa milljón króna. Í grein Stundarinnar var sýnt fram á tengsl milli Shooters og forvera staðarins VIP Club sem var í sama húsnæði. VIP Club var lokað af lögreglu vegna gruns um að vændi væri stundað á staðnum. Segir undirskriftir falsaðar „Ég keypti bara nokkra drykki á staðnum,“ segir Colin. Hann þvertekur fyrir að hafa keypt sér nektar dans og hvað þá keypt vændi á staðnum. Hann segist hafa nokkrum sinnum reynt að greiða fyrir drykkina en verið tjáð að korti hans hafi verið hafnað. Þá hafi hann framvísað öðr­ um kortum. Alls voru teknir út 22.446 dollarar, um 2,8 milljónir, í fjölmörg­ um færslum af fjórum greiðslukort­ um í hans eigu. Í kæru NewYork­búans, sem DV hefur undir höndum, heldur hann því fram að undirskriftirnar á kvitt­ ununum séu greinilega falsaðar og að skemmtistaðurinn hafi misnotað fötlun hans með refsiverðum hætti. O'Donohoe þjáist af hrörnun í augn­ botni og hefur mjög takmarkaða sjón. Hann er bótaþegi og því setur meint athæfi skemmtistaðarins líf hans úr skorðum fjárhagslega. „Þetta hafði verulega slæmar afleiðingar fyrir mig og setti ljótan blett á ferðina. Ég efast um að ég geti hugsað mér að heimsækja Ísland aftur,“ segir Colin. Rekstrarstjórinn hlaut dóm fyrir rekstur fjárhættuspila Kæra O'Donohoe snýr að rekstr­ arfélagi Shooters sem heitir KFK ehf. og skráðum eiganda þess, Þór­ dísi Elvu Guðmundsdóttur. Í fyrr­ greindri umfjöllun Stundarinnar var fullyrt að raunverulegur eigandi Shooters væri Lárus Jónsson, son­ ur Þórdísar Elvu. Einnig var fullyrt í greininni að rekstrarstjóri Shooters og forverans, VIP Club, væri Kristján Georg Jósteinsson en eistnesk eigin­ kona hans er vaktstjóri stúlknanna. Þau voru bæði dæmd til refsingar, ásamt samstarfsmanni í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. nóvember síð­ astliðinn fyrir fjárhættuspil í gegn­ um P&P áhugamannafélag. Kristján hlaut 12 mánaða fangelsisdóm, þar af 9 mánuði skilborðsbundna en eigin kona hans hlaut 9 mánaða dóm, þar af 6 mánuði skilorðsbundna. Dómunum var áfrýjað. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist hvorki í Þórdísi Elvu né Kristján Georg við vinnslu fréttarinnar. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Lögblindur maður rukkaður um 2,8 milljónir á Shooters n Segir gjaldfærslurnar gerðar í heimildarleysi og undirskriftir falsaðar Colin O'Donohoe Er virtur tónlistarstjórn- andi frá New York. Hann er lögblindur sökum hrörnunar augnbotna. Shooters Slagorð staðarins er „besta fullorðins skemmt- un í Reykjavík“ MynD ÞORMaR VigniR gunnaRSSOn Kvittanir Stærstu færslurnar tvær hljóða upp á 980 þúsund og voru gjaldfærðar með tveggja klukkustunda millibili. Mínútu eftir síðari færsluna var 240 þúsund króna færsla gjaldfærð. Colin segir undirskriftirnar falsaðar. „Þetta hafði veru- lega slæmar af- leiðingar fyrir mig og setti ljótan blett á ferðina. „Ég drakk bara nokkra drykki á staðnum E rlend greiðslukortavelta hér á landi var alls 9,4 milljarðar króna í desember síðastliðnum sem var 2,9 milljörðum króna hærri upphæð en í sama mánuði fyrir ári eða hækkun sem nemur um 44,5% á milli ára. Ef borin er saman erlend kortavelta desembermánaða síðustu fjögurra ára sést að hún hefur aukist um 133% á tímabilinu. Erlend kortavelta í verslunum nam alls 1,6 milljörðum króna í mánuðinum. Hæstum upphæðum var varið til kaupa í dagvöruverslun­ um, 316 milljónum króna, og þar næst til fatakaupa, 309 milljónum króna. Ferðamenn greiddu í desember jafn háa upphæð með kortum sínum fyrir gistingu eins og í verslun, eða 1,6 milljarða króna. Þá greiddu ferðamenn rúmlega einn milljarð króna á veitingahúsum í desember síðastliðnum sem er 55% hærri upphæð en í desember fyrir ári. Ferðamenn voru á ferð og flugi innanlands í desember og tvöfald­ aðist kortavelta vegna farþegaflutn­ inga á milli ára. Þar vega flugferð­ ir þyngst. Erlend kortavelta vegna flugferða nam 1,3 milljörðum króna í desember. Þá greiddu útlendingar 470 milljónir króna fyrir bílaleigubíla í desember sem er 49% hærri upp­ hæð en fyrir ári. n Eyddu 9,4 milljörðum Ferðamenn voru eyðsluglaðir á Íslandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.