Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Síða 18
18 Skrýtið Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Þann 1. maí 2011 lék Ramsey, þá tvítug­ur, leik gegn Man­ chester United. Hann skoraði mark í leikn­ um, sem fram fór á heimavelli Arsenal, Emirates. Daginn eftir réðu Bandaríkjamann æðsta mann hryðjuverka­ samtakanna al­Kaída, Osama bin Laden, af dögum í Pakistan. Síðar sama ár, í október, var Rams­ey á skotskónum gegn Tottenham á White Hart Lane. Ekki voru liðnir nema 72 tímar frá leiknum þegar aðalmaðurinn hjá Apple, Steve Jobs, gaf upp öndina á heimili sínu í Kaliforníu – eftir langa baráttu við krabbamein. Fáum vikum síðar var Ramsey enn í stuði og skoraði úrslita­mark Arsenal gegn Marseille í Meistaradeild Evrópu. Sléttum sól­ arhring síðar var einræðisherrann Muammar Gaddafi handsamaður, pyntaður og drepinn nærri heima­ bæ sínum Sirte í Líbíu. Nú liðu fáeinir mánuðir án þess að Ramsey skoraði mark. Það var svo í febrúar 2012 sem Ramsey, þá orðinn 21 árs, skoraði frábært mark í úrvalsdeildar­ leik á móti Sunder­ land. Örfáum stund­ um eftir leikinn sagði söng­ og tón­ listarkonan Whitn­ ey Houston skilið við jarðlífið. Hún lést á bað­ herbergi á hóteli í Berverly Hills, í Los Angeles. Ramsey er miðjumað­ur og skor­ ar ekki mörk á hverjum degi en hann hefur ítrekað þurft að glíma við meiðsli á sínum ferli. Hann skoraði hins vegar tvö mörk í leik gegn Cardiff í nóvember 2013. Ekki leið á löngu þar til fréttist að leikarinn Paul Wal­ ker, þekktastur fyrir leik sinn í Fast and Furious, hefði látist, aðeins fer­ tugur að aldri. Hann dó í bílslysi. Leið nú og beið. Ramsey skoraði nokkur mörk án þess að af and­láti stórstjarna fréttist. Umræður um Ramsey­bölvunina fjöruðu smám saman út og fyrirbærið var afgreitt sem röð tilviljana. Í upphafi leiktíð­ ar 2014–2015 skoraði Ramsey svo mark gegn Manchester City. Strax í kjölfarið féll leikarinn ástsæli Robin Williams frá, eftir bar­ áttu við þunglyndi. Ramsey var í stuði í upphafi leiktíðar­innar og skor­ aði annað mark, þann 23. ágúst, í jafnteflisleik gegn Everton. Aðeins nokkrum tímum eftir markið lést einn ástsæl­ Hvað eiga eftirfarandi einstaklingar sameiginlegt? Osama Bin Laden, Whitney Houston, Paul Walker, Muammar Gaddafi, Steve Jobs, Robin Williams og Sir Richard Attenborough. Augljósa tengingin er sú að um er að ræða heimsfræga einstaklinga sem fallnir eru frá. Tengingin sem færri vita af snýr að knattspyrnumanni Arsenal, enska landsliðsmanninum Aaron Ramsey. Tengingin nær aftur til ársins 2011 og kallast Ramsey-bölvunin. Breskir fjölmiðlar hafa sumir hverjir áttað sig á því að í hvert sinn sem Ramsey skorar mark, deyr einhver heimsfrægur. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi tekin, en hafa ber í hugað þau eru allnokkuð fleiri. Ramsey- asti leikari Breta, Sir Richard Attenborough, eldri bróðir Davids Attenborough. Nú í upphafi þessa árs hefur Ramsey skorað tvö mörk fyr­ ir Arsenal. Í bæði skiptin hafa merkir einstaklingar fallið frá. Þann 9. janúar skor­ aði Ramsey mark í bikarleik gegn Sunderland. Daginn eftir féll ein skærasta stjarna poppsögunnar, David Bowie, frá, eins og mörg­ um er ofarlega í huga. Síðast gerðist það svo á miðvikudaginn, að Ramsey, sem er miðju­ maður en ekki sóknarmaður, skoraði eitt marka Arsenal í 3­3 jafnteflisleik gegn Liver­ pool. Í gær, fimmtudag kom svo í ljós hið óhjákvæmilega – eða hvað? – að merk stórstjarna féll frá. Í þetta sinn var það Harry Potter­stjarnan, leikarinn Alan Rickman. Hann lék meðal annars í Die Hard, Sense and Sensibility og Love Actually. DV lætur lesendum eftir að dæma um hvort bölvun hvílir á miðvallarleik­ manni Arsenal eða hvort röð tilviljana ráði för. bölvunin Verið velkomin! 20% AFSLÁTTUR af kæli- og frystiskápum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.