Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Qupperneq 6
Vikublað 26.–28. janúar 20166 Fréttir
Tíu milljarða hagnaður Arion
banka af sölu á hlut í Bakkavör
n Bakkavararbræður og vogunarsjóður keyptu 46% hlut á 27,5 milljarða n Bókfærður á 11,7 milljarða
A
rion banki og ýmsir ís
lenskir lífeyrissjóðir
munu bókfæra hjá sér
hagnað upp á samtals
tæplega 16 milljarða
króna við sölu á 46% hlut BF12
slhf. í breska matvælafyrirtæk
inu Bakkavör Group. Kaupandi að
hlutnum fyrir 147 milljónir punda,
jafnvirði 27,5 milljarða króna, er
félagið Bakk AL Holdings Limited
í eigu bræðranna Ágústs Guð
mundssonar, forstjóra Bakkavarar,
og Lýðs Guðmundssonar, stjórnar
formanns Bakkarvarar, og banda
rískra fjárfestingasjóða í stýringu
vogunarsjóðsins Baupost Group. Í
tilfelli Arion banka mun bókfærður
hagnaður af sölunni nema nærri
tíu milljörðum króna.
Bakkavör metið á 60 milljarða
Tilkynnt var um kaupin í gær,
mánudag, en fyrir áttu félög í eigu
Bakkavararbræða um 38% hlut
í breska félaginu. Sameinaði líf
eyrissjóðurinn og dótturfélag
Klakka selja einnig sinn 5% hlut
í Bakkavör til bræðranna fyrir 16
milljónir punda. Félagið Bakk AL
Holdings, sem er í meirihlutaeigu
bræðranna, heldur því núna á um
89% hlut í Bakkavör Group auk
þess sem það hefur skuldbundið
sig til að leggja fram kauptilboð í
alla aðra útistandandi hluti í fé
laginu, rétt um 11%, á sömu kjör
um. Þar munar mestu um 7% hlut
Burlington Loan Management,
vogunarsjóðs sem er fjármagnað
ur af Davidson Kempner Capital,
en sjóðurinn hefur sem kunnugt er
verið umsvifamesti kröfuhafi föllnu
íslensku bankanna.
Miðað við kaupverðið á 46%
hlut BG12 í Bakkavör Group þá er
heildarverðmæti hlutafjár fyrirtæk
isins metið á 320 milljónir punda,
jafnvirði um 60 milljarða króna. Í
síðasta birta ársreikningi BG12 er
hluturinn í Bakkavör Group bók
færður á 11,75 milljarða króna í árs
lok 2014. Eigendur félagsins – þeir
stærstu eru Arion banki (62%), Líf
eyrissjóður verslunarmanna (15%)
og Gildi – lífeyrissjóður (12%) –
munu því geta bókfært hjá sér um
talsverðan hagnað við söluna en
hluturinn var færður inn í ársreikn
ing BG12 á kostnaðarverði. Hagn
aður Arion banka af sölunni mun
sem fyrr segir nema tæplega 10
milljörðum króna á meðan Lífeyris
sjóður verslunarmanna og Gildi –
lífeyrissjóður bókfæra hjá sér hagn
að upp á samtals um 4,2 milljarða
króna. Aðrir hluthafar BG12, lífeyr
issjóðir og aðrir fagfjárfestar, eiga
mun minni hlut í félaginu.
Tíu hópar sýndu áhuga
Breski bankinn Barclays var ráðgjafi
BG12 í söluferlinu sem hefur stað
ið yfir í meira en tólf mánuði. Um
tíu fjárfestahópar sýndu áhuga á að
kaupa hlutinn í ferlinu en að lokum
voru það einkum þrír hópar sem bit
ust um félagið, samkvæmt heimild
um DV, en það var félag Bakkavarar
bræðra og Baupost Group sem átti
hæsta kauptilboðið. Ljóst þykir að
það eru sjóðir Baupost Group sem
fjármagna kaupin að langstærstum
hluta. Halldór Bjarkar Lúðvigsson,
framkvæmdastjóri fjárfestinga
bankasviðs Arion banka, og Bjarni
Þórður Bjarnason, stjórnarfor
maður BG12 og aðstoðarfram
kvæmdastjóri Arctica Finance,
hafa nú þegar sagt sig úr stjórn
Bakkavarar Group. Ágúst og Lýður
Guðmundsson munu áfram gegna
stöðu annars vegar forstjóra og
stjórnarformanns félagsins.
Rekstur Bakkavarar hefur geng
ið vel á undanförnum árum og
markaðshlutdeild félagsins í Bret
landi farið vaxandi þrjú ár í röð.
Hagnaður félagsins á árinu 2014
var 11,5 milljarðar punda á meðan
leiðréttur EBITDAhagnaður – af
koma fyrir skatta, fjármagnsliði og
afskriftir – jókst um 9,3% og nam
tæplega 120 milljónum punda,
jafnvirði um 22,4 milljarða króna. Á
fyrstu níu mánuðum síðasta árs var
EBITDA Bakkavarar 85,8 milljónir
punda og hafði þá aukist um 12%
frá sama tíma á árinu 2014. n
Seldu 40% hlut
á miklu lægra
verði 2012
Allt frá því að Bakkavör lauk nauða-
samningum árið 2010 hafa bræðurnir
lagt allt kapp á að ná yfirráðum í
félaginu að nýju. Nauðasamningarnir
gerðu upphaflega ráð fyrir því að þeir
myndu fá tækifæri til þess ef þeim
tækist greiða upp skuldir Bakkavarar
ásamt vöxtum fyrir árslok 2012. Þegar
ljóst varð að það myndi ekki ganga eftir
var ákveðið á árinu 2012 að kröfum yrði
breytt í hlutafé og fengu bræðurnir þá
samtímis að kaupa 25% hlut í Bakkavör.
Greint var frá því í frétt Frétta-
blaðsins haustið 2012 að bræðurnir
hefðu í kjölfarið farið kaupa upp hluti af
fyrrverandi kröfuhöfum, sem höfðu þá
breytt skuldum Bakkavarar í hlutafé, og
ættu orðið hátt í 40% hlut í félaginu.
Greiddu þeir um 8 milljarða fyrir hlutina,
meðal annars með því að flytja til
landsins erlendan gjaldeyri í gegnum
fjárfestingaleið Seðlabankans á af-
slætti, en seljendur voru Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, slitabú Glitnis, MP
banki og sjóðastýringarfyrirtæki í eigu
Íslandsbanka. Rúmlega þremur árum
síðar hafa bræðurnir hins vegar keypt
litlu stærri hlut (46%) fyrir 27,5 millj-
arða og því ljóst að þeir fjárfestar sem
kusu að selja hluti sína í Bakkavör strax
árið 2012 hafa orðið af umtalsverðum
fjárhæðum.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Bakkavararbræður Frá því að Bakkavör lauk nauðasamningum 2010 hafa bræðurnir lagt allt kapp á að ná yfirráðum í félaginu að nýju.
Það hefur nú tekist.
Ákærður fyrir að aka
að hópi skólabarna
Karlmaður ákærður fyrir hættulega líkamsárás
R
úmlega sextugur karlmaður
hefur verið ákærður fyrir sér
staklega hættulega líkams
árás og umferðarlagabrot
með því að hafa ekið án nægjanlegr
ar aðgæslu og varúðar, að hópi sex
ára barna á vegum frístundaheim
ilis Langholtsskóla og leiðbeinanda
þeirra. Málið var þingfest í Héraðs
dómi Reykjavíkur á mánudag.
Leiðbeinandinn var að leiða
börnin yfir gangbraut í nóvember
2013 þegar maðurinn kom aðvífandi.
Hann reyndi að stöðva för mannsins
og verja börnin, meðal annars með
því að fara á milli barnahópsins og
bifreiðar mannsins og styðja hönd
um sínum á vélarhlíf bifreiðarinnar
að því er fram kemur í ákæruskjali.
Ók maðurinn því næst af vett
vangi án þess að huga að leiðbein
andanum, sem hlaut af ákeyrslunni
eymsli og bólgu rétt ofan við hnéskel
á vinstra hné. n valur@dv.is
Langholtsskóli
Starfsmaðurinn var
leiðbeinandi frí-
stundarheimilisins.
G i l d i r t i l 2 1 . m a í 2 0 1 6
39.900 kr
Síðustu forvöð að ná sér í
á besta verðinu!
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Hringdu í síma 581 3730
Nánari upplýsingar á jsb.is
Vetrarkortið
E
F
LI
R
a
lm
an
na
te
ng
s l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s k
h
ön
nu
n