Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Side 8
8 Fréttir Vikublað 26.–28. janúar 2016
45 Íslendingar í ævilöngu banni frá IKEA
n Tíu manna öryggisdeild starfar hjá IKEA n Allt að tveggja milljóna óútskýrð rýrnun á mánuði n Árið í fyrra var metár þegar kemur að búðarhnupli í n Allnokkur mál fyrir dóm
F
jörtíu og fimm Íslendingar
eru í ævilöngu banni frá
verslun IKEA hérlendis en
stefna stærstu verslunar
landsins varðandi búðar-
hnupl er skýr. Þjófar eru einfaldlega
ekki velkomnir. Árið 2015 var metár
varðandi búðarhnupl ef mið er
tekið af tilkynningum til lögreglu en
Samtök verslunar og þjónustu hafa
gagnrýnt þá staðreynd að flest mál
eru felld niður og erfitt er fyrir versl-
anir að fá bætur vegna tjónsins sem
þær verða fyrir.
„Örugglega rænd á
hverjum degi“
Verslun IKEA í Kauptúni í Garða-
bæ er stærsta verslun landsins. Á
virkum degi koma um 3.000 manns
í verslunina og á laugardegi eða
sunnudegi má búast við um 6.000
manns í verslunina. Met var sett síð-
astliðin jól þegar 10 þúsund manns
lögðu leið sína í verslunina á einum
degi, þrjú prósent íslensku þjóðar-
innar. Það þarf því ekki að koma
á óvart að mál tengt búðarhnupli
komi reglulega upp í versluninni.
„Við erum örugglega rænd á hverj-
um degi,“ segir Stefán Árnason, fjár-
málastjóri fyrirtækisins, sem einnig
er yfir tíu manna öryggisdeild IKEA
á Íslandi.
Finna tómar umbúðir
Í nóvember síðastliðnum varð blaða-
maður vitni að því þegar öryggis-
verðir stöðvuðu ungt par með barn
vegna gruns um þjófnað. Parið hafði
samviskusamlega skannað talsvert af
vörum inn í sjálfsafgreiðslukassa en
ekki tekið upp kort til þess að greiða
vöruna. Þau gengu því næst hröðum
skrefum að útgöngudyrunum þar
sem árvökull starfsmaður greip inn
í. Uppákoman var öll hin vandræða-
legasta og afsökun parsins var sú að
þau hefðu hreinlega gleymt að renna
kortinu í gegn.
Stefán kannast við málið en að
hans sögn eru öll mál kærð til lög-
reglu. Tíðni búðarhnupls, sem
kemst upp, hefur aukist hjá fyrir-
tækinu undanfarið. „Við vitum svo
sem ekki hvort við séum að verða
betri varðandi eftirlit eða þá að
búðarhnupl sé að aukast,“ segir
Stefán. Hann bendir á að reglulega
finni starfsmenn tómar umbúðir í
krókum og kimum búðarinnar, sem
er vísbending um að þjófnaður hafi
átt sér stað. Óútskýrð rýrnun IKEA
er um 1–2 milljónir króna á mánuði.
Skjót afgreiðsla
vekur spurningar
Umræðan um afgreiðslu lögreglu er
eitthvað sem Stefán tengir sterkt við.
Hann nefnir sem dæmi að þann 10.
janúar síðastliðinn hafi maður verið
stöðvaður við útgang verslunarinn-
ar fyrir þjófnað. Með í för var eigin-
kona mannsins sem að sögn Stefáns
er reglulega í fjölmiðlum. „Við áttum
myndefni af brotinu og þarna er um
borðleggjandi mál að ræða,“ segir
Stefán og bætir við að lögreglumenn
sem komið hafi í vettvang hafi verið
sama sinnis.
Föstudaginn 15. janúar skrifaði
Stefán kæru til lögreglu og lét fylgja
með myndefni sem sannar þjófn-
aðinn. Bréfið var boðsent um kl. 14
þennan dag til lögreglu. „Þann 19.
janúar fæ ég bréf sem er dagsett 15.
janúar. Niðurstaðan er sú að hinn
meinti þjófur sé sekur um refsivert
hátterni en engu að síður er fallið
frá málsókn. Þessi niðurstaða liggur
fyrir á tæpum tveimur klukkustund-
um á föstudeginum. Ég fagna þess-
um afgreiðsluhraða en ég furða mig
á niðurstöðunni,“ segir Stefán, sem
helst vildi sjá þjófnaðarmál, þar
sem óyggjandi sannanir liggja fyrir,
fá skjóta formlega afgreiðslu hjá yf-
irvöldum.
„Það gengur ekki að niðurstaða
mála sé háð duttlungum lögreglu-
manna,“ segir Stefán ákveðinn.
Hann hefur óskað eftir rökstuðningi
vegna ákvörðunarinnar.
Freistingar fjarlægðar
IKEA hefur tekið fast á sínum
öryggismálum. Meðal annars voru
reglur varðandi vöruskil hertar og
skilaði það þeim árangri að rýrnun
minnkaði um helming. Þá tók versl-
unin nýlega upp skilaeftirlit sem
þegar hefur orðið til þess að einn
viðskiptavinur má ekki lengur skila
vörum hjá versluninni.
„Sá skilaði ítrekað sömu vör-
unni, litlum og frekar dýrum díóðu-
ljósum. Starfsmaður okkar gekk á
þennan tiltekna viðskiptavin sem
gat ekki gefið neinar skýringar á
athæfi sínu og yfirgaf verslunina
án þess að hirða um að taka með
sér ljósin sem ætlunin var að skila,“
segir Stefán.
Aðspurður út í sjálfsafgreiðslu-
kassana, þar sem blaðamaður
varð vitni að þjófnaði, segir Stefán:
„Reynslan að utan var sú að rýrnun
við sjálfsafgreiðslukassa væri jafn-
mikil og við hefðbundna búðarkassa
enda gera starfsmenn óafvitandi
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Mikið eftirlit Um hundrað myndavélar eru á víð og dreif um húsnæði IKEA við Kauptún.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarSSon
iKEa Stærsta verslun landsins tekur á móti um 3.000 viðskiptavinum á virkum degi og 6.000 viðskiptavinum á laugar- eða sunnudegi. Þjófar eru hins vegar ekki velkomnir. Mynd Sigtryggur ari
„Við erum
örugglega
rænd á hverjum degi
Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir
Rykmoppur og
sápuþykkni frá
Pioneer Eclipse
sem eru hágæða
amerískar hreinsi-
vörur.
Teppahreinsivörur
frá HOST
Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942
Frábærar þýskar
ryksugur frá SEBO
Decitex er
merki
með allar
hugsanlegar
moppur og klúta í þrifin.
UNGER gluggaþvottavörur,
allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með:
Marpól er með
mikið úrval af
litlum frábærum
gólfþvottavélum
Tilboð fyrir hótel og
gistiheimili í apríl/maí!