Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Blaðsíða 10
Vikublað 26.–28. janúar 201610 Fréttir
Á
meðan mál fá hæga af-
greiðslu þá festir fólk rætur.
Það er það sem gerir svona
mál þungbær,“ segir Guðlaug
Kristjánsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar í Hafnarfirði. DV leitaði við-
bragða hjá Guðlaugu vegna umfjöll-
unar blaðsins um Dega-fjölskylduna
frá Albaníu sem í síðustu viku var
synjað um hæli hér á landi líkt og DV
fjallaði um í síðasta blaði. Fjölskyldan
hefur verið búsett í Hafnarfirði síð-
ustu mánuði. Guðlaug kveðst ekki
geta tjáð sig um málefni einstakra
fjölskyldna en segir að almennt virð-
ist kerfið harðneskjulegt þegar kem-
ur að málefnum hælisleitenda.
Aðlagast með undraverðum hætti
Líkt og fram kom í DV hefur Dega-
fjölskyldan, fimm manns, verið hér
á landi síðan í lok júlí og hefur á
skömmum tíma náð að aðlagast með
undraverðum hætti. Þau eru nær öll
komin með eitthvert vald á íslenskri
tungu, yngstu börnin tvö blómstra
í skólum sínum í Hafnarfirði, vel
menntaðir foreldrar vilja ólmir kom-
ast í vinnu og skapa börnum sínum
þremur öruggt líf tækifæra hér á
landi. En þau eru víst ekki flótta-
menn samkvæmt laganna bókstaf og
var umsókn þeirra því synjað síðast-
liðinn þriðjudag. Þau eiga möguleika
á að áfrýja niðurstöðu kærunefndar
útlendingamála en allt stefnir í að
hjónin Skënder og Nazmie Dega
þurfi að hverfa af landi brott ásamt
börnum sínum þremur, Joniödu,
sem er átján ára og stundar nám í
Flensborg, Viken, sem er tíu ára og
stundar nám í Lækjarskóla, og Visar
sem er 21 árs og glímir við alvarleg
geðræn vandamál en hefur fengið
inngöngu í tölvunarfræði í Háskól-
anum í Reykjavík. Eins og fram kom
í viðtali við Dega-fjölskylduna í
helgar blaði DV óttast fjölskyldan nú
um öryggi sitt sem og afdrif Visars,
verði þau send heim eins og stefnir í.
Reiði meðal bæjarbúa
Fréttir af því að til stæði að vísa fjöl-
skyldunni úr landi hafa vakið mik-
il viðbrögð og jafnvel reiði í Hafnar-
firði enda hefur fjölskyldan að sögn
heillað alla þá sem komið hafa að
hennar málum hér á landi. Meðal
annars kennara og stjórnenda við
skóla barnanna.
DV leitaði viðbragða hjá Guðlaugu,
sem auk þess að vera forseti bæjar-
stjórnar situr í fjölskylduráði Hafnar-
fjarðar sem hefur með þennan mála-
flokk að gera. Hún segist ekki tjá sig um
mál einstakra fjölskyldna eða einstak-
linga og að þetta mál hafi ekki verið
tekið fyrir á vettvangi bæjarstjórnar og
hún geti því aðeins tjáð sig almennt út
frá sinni persónulegu skoðun.
„Í Hafnarfirði háttar þannig til að
hér er móttökumiðstöð Útlendinga-
stofnunar í Bæjarhrauni. En við aft-
ur á móti þjónustum börn í skólum
í kerfinu okkar,“ segir Guðlaug. „Auk
móttökumiðstöðvarinnar erum við
með þrjár fjölskyldur hverju sinni í
þjónustu og í íbúðum á meðan mál
þeirra er í vinnslu. Og þegar þú ert
með fjölskyldur þá ertu með börn, og
þú ferð ekkert í leikskóla eða grunn-
skóla án þess að aðlagast og mynda
tengsl, þannig að það er það sem
tekur á þegar neikvæðar niðurstöður
koma í kjölfarið.“
festa rætur í
hægvirku kerfi
n Erfitt þegar fólki er synjað um dvalarleyfi eftir langa dvöl á Íslandi n Er enn von fyrir Dega-fjölskylduna?
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Hafa heillað
Hafnfirðinga
Þau tíðindi að
ákveðið hefði
verið að vísa Dega-
fjölskyldunni úr
landi hafa vakið
hörð viðbrögð
meðal þeirra
Hafnfirðinga sem
kynnst hafa fjöl-
skyldunni. Forseti
bæjarstjórnar
segir synd hversu
hægvirkt kerfið sé.
Mynd SiguRðuR MikAel
Asus fartölva
Fáðu áskrift að DV
og Asus-fartölvu
Apple TV Fáðu
áskrift að DV og Apple TV
2
Miðar á Bieber
Fáðu áskrift að DV
og 2 miða á
Justin Bieber
9.9. 2016
1
Kláraðu dæmið á tilbod.dv.is
3
Nú tryggir áskrift að DV þér 2 miða
á Bieber, Apple TV eða fartölvu
veldu
þína áskrift
núna!