Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Page 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 26.–28. janúar 2016
V
ið gefumst ekki upp. Við
gerum auðvitað allt sem
við getum. Við verðum
að vera viss um að landið
hans sé að gera slíkt hið
sama,“ segir Dan Levinson, sonur
Roberts Levinson, bandarísks
ríkis borgara sem hvarf árið 2007 í
Íran. Robert Levinson starfaði sem
ráðgjafi fyrir CIA, leyniþjónustu
Bandaríkjanna, þegar hann hvarf.
Íranskir leiðtogar hafa haldið því
fram að þeir hafi enga vitneskju um
Levinson, viti ekki hvort hann hvarf
eða hvenær né hver hafi handsam-
að hann. Bandarísk yfirvöld hafa
sagt að þau viti ekki hvort hann sé
lífs eða liðinn. Fyrir fimm árum
birtust myndir og myndband af
honum þar sem hann var greini-
lega gísl. Þá var hann í appelsínu-
gulum fangagalla, hlekkjaður og
hélt á blöðum með skilaboðum
til bandarískra yfirvalda. Til hans
hefur ekki spurt síðan. Miklar von-
ir voru bundnar við, af ættingjum
hans, að í fangaskiptasamningi
sem Íranir og Bandaríkin gerðu á
dögunum, væri nafn Levinson að
finna. Þvertóku Íranir fyrir að vita
nokkuð um málið og því var hann
ekki hluti af samkomulaginu. Ætt-
ingjar hans bíða því enn og vona að
hann finnist einhvern daginn á lífi.
Var í hættulegum málum
Levinson var áður alríkislögreglu-
maður, en hafði gerst einka spæjari
og ráðgjafi hjá CIA. Hann var á eyj-
unni Kish þegar hann hvarf árið
2007 þar sem hann reyndi að fá
bandarískan leigumorðingja til að
gerast njósnari fyrir Bandaríkin.
Hann var þaulvanur erfiðum, við-
kvæmum og flóknum leyniverk-
efnum. Eftir hvarf hans neitaði CIA
að viðurkenna að hann væri starfs-
maður stofnunarinnar, en þurfti
svo að taka á sig ábyrgðina. Þar sem
aðgerðir hans voru að einhverju
leyti ólöglegar fór fram rannsókn
sem kostaði þrjá aðila starfið auk
þess sem sjö voru ávíttir vegna
málsins.
Misvísandi upplýsingar
Nýjar vísbendingar gefa til kynna
að Íranir hafi ekki sagt satt um að-
komu sína að málinu. Í skjölum
sem New York Times hefur greint
frá kemur þetta fram. Seint á ár-
inu 2011 greindi háttsettur íranskur
embættismaður frá því að Íran
hefði Levinson í haldi og að hægt
væri að sleppa honum ef Banda-
ríkin hjálpuðu til við að tefja rann-
sókn á kjarnorkuaðgerðum Írana.
Embættismaðurinn var sendiherra
Írans í Frakklandi, Seyed Mehdi
Miraboutalebi. Hann ku hafa sagt
þetta við tvo Bandaríkjamenn í
sendiherrabústaðnum. Banda-
ríkjamennirnir tengdust banda-
rískum trúarsamtökum sem sendu
bréf til Ayatollah Ali Khamenei
um málið. Þrátt fyrir þessi sam-
skipti harðneita írönsk stjórnvöld
að hafa nokkra vitneskju um mál-
ið og hefur ríkisstjórn Baracks
Obama Bandaríkjaforseta ekki
beitt sér af mikilli hörku í mál-
inu gagnvart stjórnvöldum, segir í
New York Times. Þar segir einnig
að ekkert sé vitað um það hvort
eða hvernig bandarísk stjórnvöld
brugðust við þessum orðum sendi-
herrans. Bandarísk stjórnvöld telja
líklegt að aðilar tengdir leyniþjón-
ustu Írans eða írönskum stjórn-
völdum hafi Levinson í haldi eða
hafi hið minnsta komið að ráninu.
Þeim finnist þó ólíklegt að hann sé
enn í Íran.
Eiginkona Levinson, Christine,
segir að hún hafi aldrei frétt af
þessum orðum sendiherrans. „Ef
þetta gerðist árið 2011, af hverju
er Bob ekki komin heim,“ spyr hún
New York Times. Sonur þeirra,
Dan, segir augljóst að bandarísk
stjórnvöld hafi ekki nokkra hug-
mynd um hvar Robert Levinson er,
eða hvort hann sé lífs eða liðinn. n
n Hvarf í Íran 2007 n Fjölskyldan ekkert frétt frá 2011„Ef þetta gerðist
árið 2011, af hverju
er Bob ekki komin heim?
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Hver bjargar? Myndbandið birtist árið
2011, þá hafði Levinson verið í haldi frá
árinu 2007.
Átakanlegt
Óvissan um afdrif
Levinson hefur
reynt mjög á
fjölskyldu hans.
„gefumst
ekki upp“
PURE SAFAR -
100% HOLLUSTA!
Pure safarnir frá Harboe eru
100% hreinir og ferskir safar.
Þeir eru ekki úr þykkni eins
og svo margir aðrir ávaxta-
safar og þeir eru ekki síaðir.
Þetta tryggir það að öll
næringarefni haldast í safa-
num og hann er eins nálægt
nýkreistum safa og hugsast
getur. Þrátt fyrir að vera 100%
hreinir eru Pure safarnir líka
rotvarnarefnalausir og án all-
ra aukaefna þar sem sérstök
pökkunaraðferð tryggir ein-
staklega gott geymsluþol.
Þú færð Pure safana frá
Harboe í næstu verslun.