Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Síða 18
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
S
jónvarpsþáttaserían Ófærð
sem Ríkisútvarpið sýnir þessa
dagana er magnað sjónvarps
efni. Þarna er drjúgur hluti
af okkar öflugustu og reyndustu
leikurum í bland við aðra sem eru
óreyndari. Baltasar yfirleikstjóri Ís
lands ber ábyrgðina. Hún hvílir á
hans herðum. Hans verður hrósið
eða hnjóðið, allt eftir því hvernig
áhorfendur kunna að meta efnið.
Það er gaman að sjá menningar
legan hápunkt Íslands á ríkissjón
varpsstöðinni. Serían er mögnuð
saga og vonandi heldur hún allt til
enda. Auðvitað eru þættirnir um
deildir, en það er alltaf og vonandi
verður aldrei gerð sjónvarpsþátta
sería sem öllum finnst stórkostleg.
Til að njóta Ófærðar í botn er
nauðsynlegt að hengja sig ekki í smá
atriði, miklu frekar að halla sér aftur
og njóta sögunnar. Að sjálfsögðu eru
göt í handritinu en þau eru minni
háttar og vel til þess fallin að auka
umtal og skoðanaskipti um þættina.
Ríkissjónvarpið færist skör ofar
með þessum þáttum. Þarna uppfyllir
það hlutverk sitt og gott betur. Baltasar
Kormákur sannar líka í enn eitt skiptið
að hann veldur verkefnum af stærstu
gerð og það á hvaða sviði sem er.
Blessunarlega hefur verið ákveðin
gróska í framleiðslu sjónvarpsþátta
síðustu ár. Þar má horfa til vandaðrar
framleiðslu á borð við þáttaraðirnar
Pressu og Rétt. Ófærð ber hins vegar
höfuð og herðar yfir annað efni sem
boðið hefur verið upp á úr smiðju ís
lenskra höfunda og leikstjóra.
Svona gæðaefni í skammdeginu
er ómetanlegt. Það eru líka ómælan
leg listræn margfeldisáhrif af seríu
sem þessari. Að sama skapi verður til
dýrmæt reynsla á öllum þeim sviðum
sem snúa að kvikmyndageiranum.
Það ber líka að þakka Ríkisútvarp
inu fyrir að takast þetta risavaxna
verkefni á hendur. Ófærð og sam
bærilegt efni gæti einmitt verið sá
björgunarhringur sem þörf er á fyrir
„línulega dagskrá“ sjónvarps. Það
verða til gæðastundir á heimilum
landsins fyrir framan sjónvarpið. Það
er mikilvægt fyrir alla aðila.
Vel gert Baltasar og áhöfn. Vel gert
Ríkisútvarp. n
Vikublað 26.–28. janúar 2016
Ég get horft á fótbolta
endalaust
Þetta verður
síðasta árið mitt
Örið á sálinni grær
hægar
Mögnuð Ófærð
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur atvinnu af áhugamálinu. – DV Florentina Stanciu, markvörður Stjörnunnar, ætlar að hætta í sumar. – DVSigríður Lárusdóttir lífeindafræðingur greindist með sarcoma-krabbamein í læri. – DV
Aukinn þrýstingur
Aukinn þrýstingur er á Ólaf Jóhann
Ólafsson, rithöfund og forstjóra
í New York, að bjóða sig fram
til forseta. Ólafur Jóhann hefur
margoft verið nefndur í um
ræðunni um væntanlega forseta
frambjóðendur. Sjálfur hefur
hann ekki virst sérlega áhuga
samur um að skipta um starfsvett
vang þótt ekki hafi hann útilokað
framboð. Stuðningsmenn hans
þrýsta nú á hann sem aldrei fyrr.
Klækjafrumvarp
Nýtt frumvarp þingmanna Sam
fylkingar, þeirra Helga Hjörvars
og Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur,
um afnám verð
tryggingar er ekki
líklegt til að auka
trú kjósenda á
flokknum. Þing
mennirnir fóru
fram með mál
ið þótt ekki væri
samstaða um það í þingflokki
Samfylkingarinnar. Afar hæpið er
að banna fólki að taka verðtryggð
lán, en margir kjósa einmitt slík
lán umfram þau óverðtryggðu.
Frumvarpið virðist sett fram til að
stríða Framsóknarflokknum en
afnám verðtryggingar var með
al kosningamála þess flokks fyrir
síðustu kosningar. Ýmsir velta því
fyrir sér af hverju þingmennirnir
gátu ekki fundið bitastæðara
mál til að flytja á Alþingi en þetta
klækjastjórnmálafrumvarp sitt.
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
„Vel gert Baltasar
og áhöfn.
Ekki bara hægt að kenna Kína um
H
agfræðingurinn HaJoon
Chang starfar við háskólann
í Cambridge, hann er höf
undur bóka sem hafa far
ið víða um lönd – á íslensku
var fyrir nokkrum árum þýdd bókin
23 atriði um kapítalisma sem ekki er
sagt frá. HaJoon Chang kom í Silfur
Egils 2012.
HaJoon Chang skrifar mjög
athyglisverða grein í The Guardian
þar sem hann segir að ekki þýði að
kenna Kína um óstöðugleika í hag
kerfi heimsins, ástæðan sé fremur sú
að ríkisstjórnir Vesturlanda hafi ekki
lært af hruninu 2008, meintur efna
hagsbati síðan þá hafi verið byggður
á bólumyndun.
Það lítur út fyrir að hagkerfi heims
ins sé verulega að hægja á sér. Árið
byrjaði mjög illa á hlutabréfamark
aði í Bandaríkjunum og markaðir í
Evrópu og Japan hafa lækkað. Mark
aður í Kína stefnir lóðbeint niður.
Olíuverð hefur ekki verið lægra í 12 ár.
En þetta átti ekki að vera svona.
Hin viðurkennda skoðun var sú að
2016 yrði árið þegar efnahagur heims
ins myndi ná sér endanlega eftir
kreppuna sem hófst 2008, segir
HaJoon Chang. Atvinnu
leysi í Bandaríkjunum
hefur minnkað,
hlutabréfamarkað
urinn þar náði nýj
um hæðum 2015,
og nú hafa vextir
í Bandaríkjunum
verið hækkaðir í
fyrsta sinn í níu ár.
Fyrir aftan
Bandaríkin koma
svo Bretland og Ír
land. Sagan segir að
þessi ríki séu að ná sér
vegna þess að þau hafa ekki farið
á taugum, haldið fast við niðurskurð
og önnur óvinsæl stefnumál. Þau
hafi heldur ekki látið undan kröfum
um að hefta bankastarfsemi og setja
harðari reglur um fjármálamarkaði.
Ríki á meginlandi Evrópu myndu
svo loks fylgja eftir. En hvað fór úr
skeiðis?
Kína er kennt um – það gerir til
dæmis George Osborne, fjármála
ráðherra Bretlands. Það hentar
honum ágætlega að benda þang
að austur, en HaJoon Chang hef
ur sínar efasemdir. Hann nefnir að
þótt Kína hafi einungis verið 2,5
prósent af hagkerfi heimsins 1978
en sé núna 13 prósent, þá verði
menn að gæta þess að ofmeta það
ekki. Bandaríska hagkerfið (22,5
prósent), evrusvæðið (17 prósent)
og Japan (7 prósent) séu næstum
helmingurinn af hagkerfi heims
ins. Það sé ekki hægt að kenna Kína
um efnahagsvandamál heima fyrir,
ekki nema að maður búi í landi sem
byggir aðallega á því að selja hrá
vöru til Kína.
HaJoon Chang segir að sannleik
urinn sé sá að aldrei hafi orðið raun
verulegur efnahagsbati í Bandaríkj
unum og Evrópu. Samkvæmt AGS
séu raunlaun lægri en var fyrir hrun í
11 af 20 ríkjum sem hér um ræðir. Til
að bæta gráu ofan á svart hafi efna
hagsbatinn verið knúinn áfram af
bólum á hlutabréfa og húsnæðis
markaði, ekki síst í Bandaríkjunum
og Bretlandi, og þar liggi megin
ástæðan fyrir óstöðugleikanum.
Ríkin hafi skirrst við að
endurskipuleggja hag
kerfi sín og þannig
hunsað lærdóminn
frá 2008. Skamm
tímauppgangur
hafi verið útmál
aður sem alvöru
bati – í anda þeirr
ar goðsagnar að
stórar bólur séu
til marks um efna
hagslegt heilbrigði.
Nú er ekki vitað
hvort óróinn á markaðn
um leiðir til langvinnrar niður
sveiflu eða einhvers konar hruns,
en hann er til marks um að við höf
um eytt síðustu sjö árunum í að
lappa upp á gjaldþrota efnahags
módel, segir HaJoon Chang. Áður
en ástandið versnar enn þurfum við
að ráðast í mikla endurskipulagn
ingu: Við þurfum kerfi þar sem fjár
málageirinn hefur meiri þolinmæði
og er ekki svo flókinn. Við þurfum
að gera endurbætur þannig að hið
raunverulega hagkerfi, framleiðslu
hagkerfið, fái nauðsynlega örvun,
bæði hvað varðar tækni og fjár
festingu. Við þurfum kerfi þar sem
dregið er úr ójöfnuði, svo hægt sé
að halda uppi eftirspurn án þess að
skapa meiri skuldir.
Það verður ekki auðvelt að
koma þessu til leiðar, segir Ha
Joon Chang, en valkosturinn er
verri – lítill hagvöxtur, óstöðugleiki
og versnandi lífskjör fyrir mikinn
meirihluta fólks. n
Egill Helgason
skrifar
Af Eyjunni
Nose & Blows blautklútarnir hjálpa til við að hreinsa lítil og
viðkvæm nefgöng á mildan hátt. Þeir vernda húðina gegn roða,
ertingu og þurrki sem myndast þegar oft þarf að snýta og innihalda
rakagefandi B5 vítamín og náttúrulegt mentól & eucalyptus til þess
að auðvelda öndun. Enginn rauður nebbi lengur!
Er litli nEbbinn díbblaður?
Fæst í apótEkum um land allt