Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Qupperneq 23
Vikublað 26.–28. janúar 2016 Sport 19
Uppljóstrarar sak-
aðir um fjárkúgun
n Vildu milljón evrur frá Doyen Sports n Opinbera samninga við félög og leikmenn
Y
firvöld í Portúgal rannsaka
nú þá sem standa að baki
uppljóstrunarsíðunni
Football Leaks. Þeim er
gefið að sök að hafa reynt
að beita eina stærstu umboðsskrif-
stofu Evrópuboltans fjárkúgun. Frá
þessu greinir breska blaðið Mirror.
Football Leaks-síðan var sett á
laggirnar í september í fyrra. Ný-
lega hafa þeir, í anda Wikileaks,
gert stóra samninga í knattspyrnu-
heiminum opinbera. Þar á meðal
er samningur Gareth Bale við Real
Madrid, félagaskipti Mesut Özil frá
Real Madrid til Arsenal og samn-
ingur sem Monaco og Chelsea
gerðu sín á milli hvað Falcao varð-
ar. Ljóst er að aðstandendur síð-
unnar búa yfir gögnum um við-
skipti á efstu stigum fótboltans.
Yfirmaður félagaskipta hjá FIFA,
Mark Goddard, hefur lýst yfir
ánægju sinni með framtak síðunn-
ar og hefur sagt að hann vildi óska
þess að félögin gerðu samningana
opinbera að eigin frumkvæði.
Segjast vilja gegnsæi
Yfirlýstur tilgangur síðunnar er að
berjast fyrir gegnsæi í knattspyrn-
unni. Mirror greinir hins vegar frá
því að aðstandendur hennar hafi
reynt að kúga fé út úr umboðs-
skrifstofu, gegn því að birta ekki
fleiri samninga leikmanna henn-
ar. Mirror segist hafa séð tölvu-
póst, sem virðist koma frá Football
Leaks, sem sendur var á Doyen
Sports, eina stærstu umboðsskrif-
stofuna, þá sem verst hefur orðið
fyrir barðinu á uppljóstrurunum.
Í póstinum er þess krafist að um-
boðsskrifstofan greiði eina milljón
evra í skiptum fyrir þögnina.
Doyen Sports var milliliður-
inn þegar Marco Rojo samdi við
Manchester United og Eliaquim
Mangala samdi við Manchester
City, en samningur þess fyrrnefnda
hefur ratað á Football Leaks.
„Rausnarleg greiðsla“
tryggi þögn
Undir tölvupóstinn skrifar maður
að nafni Artem Lovuzov, sem
Mirror gerir ráð fyrir að sé falskt
nafn. Hann lofar að hlé verði gert á
birtingu gagnanna á meðan samn-
ingaviðræðurnar standi yfir en
lætur í veðri vaka að þær hefjist á
ný verið kröfum ekki mætt.
Netfangið er skráð í Kasakstan,
að sögn Mirror, en úr sama net-
fangi var Nelio Lucas, fram-
kvæmdastjóra Doyen, sagt í
október að lekinn væri stærri en
hann gæti ímyndað sér. „Rausnar-
leg greiðsla myndi þó tryggja að
öll gögnin yrðu eyðilögð.“ Spurð-
ur hvað „rausnarlegt“ væri í hans
huga svaraði Lovuzov að einhvers
staðar á bilinu 500 þúsund til millj-
ón evrur væri við hæfi en að hann
vildi fá uppástungur frá honum.
Tveir dagar liðu án þess að
framkvæmdastjórinn svaraði og þá
barst honum annað bréf. Þar sagð-
ist sendandinn vera maður orða
sinna og gaf honum þá tiltekinn
frest til að bregðast við, að öðrum
kosti myndu viðkvæmar upplýs-
ingar halda áfram að birtast.
Hollendingar
rannsaka samning
Eins og áður sagði var síðan sett í
loftið í september en fyrsta alvöru
uppljóstrunin var þegar samningur
á milli Doyen og hollenska liðsins
FC Twente var birtur, en þar afsalaði
félagið sér réttinum á allnokkrum
leikmönnum, þar á meðal
vængmanninum Dusan Tadic, sem
síðan samdi við Southampton. Sá
samningur er til rannsóknar hjá
hollenska knattspyrnusambandinu
en í kjölfar birtingarinnar sagði
stjórnar formaður Twente, Aldo
van der Laan, af sér. Menn grun-
ar að mennirnir að baki Football
Leaks séu Portúgalar en þeir nota
nú rússneska vefþjóna til að hýsa
síðuna, sem í tvígang hefur verið
lokað. Eins áður og segir rannsaka
yfirvöld í Portúgal þessa meintu
fjárkúgun, en einnig er rannsakað
hvernig síðuhaldarar komust yfir
gögnin sem birst hafa.
Þá greinir Mirror frá því að
Sporting CP, eitt stærsta félagið
í Portúgal, hafi leitað til lögreglu
vegna samninga sem Football
Leaks hefur birt. Forseti félagsins,
Bruno de Carvalho, sakaði Benfica
um að standa að baki lekanum en
síðan hafa birst upplýsingar sem
koma sér illa fyrir það fornfræga fé-
lag. Þá segir Mirror að grunur bein-
ist ekki að leikmönnum, hvað upp-
runa lekans varðar. n
Lekið Samningurinn um kaupin á Mesut
Özil hefur birst á Football Leaks.
Rojo Á sunnudag birti Football Leaks
upplýsingar um félagaskipti Marco Rojo til
Manchester United.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Real Madrid Uppljóstrararnir hafa birt samninga sem tengjast Real Madrid, meðal annars
samninginn vegna kaupa Real á Gareth Bale frá Tottenham. Mynd EPA
D
iego er að standa sig vel með
sínu félagsliði, sem er í topp-
baráttu næst efstu deildar-
innar á Spáni, og hefur sýnt
því mikinn áhuga að leika með ís-
lenska landsliðinu,“ segir Heimir
Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla
í knattspyrnu, um valið á Diego Jó-
hannessyni, nýliða í íslenska lands-
liðinu. Heimir ræðir vináttuleikinn
við Bandaríkin í viðtali á heimasíðu
KSÍ.
Leikmannahópur fyrir vináttu-
leikinn var birtur á vef KSÍ á mánu-
dag en í honum eru fimm nýliðar.
Heimir segir að markmiðið sé að
breikka hópinn og skoða fleiri leik-
menn. Diego leikur í stöðu hægri
bakvarðar með Real Oviedo í næst
efstu deild á Spáni. Hann hefur lýst
yfir miklum áhuga á að leika fyrir
íslenska landsliðið, en Diego, sem
á íslenskan föður og fékk nýlega ís-
lenskt vegabréf, fórnar mikilvægum
leik með Oviedo til að vera með ís-
lenska landsliðinu.
Í hópnum að þessu sinni eru
bæði reyndir landsliðsmenn og
óreyndir. Eiður Smári Guðjohnsen
er til að mynda í hópnum, sem og
bakverðirnir Ari Freyr Skúlason og
Birkir Már Sævarsson.
Hjörtur Hermannsson, PSV,
Aron Sigurðarson, Fjölni, Ævar
Ingi Jóhannesson, KA, og Aron Elís
Þrándarson, Aalesund FK, eru auk
Diegos nýliðar í hópnum.
Leikurinn fer fram 31. janúar
ytra. n baldur@dv.is
Diego valinn
í landsliðið
Sleppir toppslag á Spáni fyrir leik gegn Bandaríkjunum
V A R M A D Æ L U R
Gæði, þjónusta og gott verð.
Hámarks orkusparnaður.
NÝJUNG Í LOFT Í VATN VARMADÆLUM
EINFÖLD Í UPPSETNINGU
ÁLAGSSTÝRÐ
HLJÓÐLÁT
ALLT AÐ 80% ORKUSPARNAÐUR
ÍBÚÐARHÚS - SUMARBÚSTAÐ - IÐNAÐARHÚS
COP 5,0