Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Qupperneq 24
20 Lífsstíll Vikublað 26.–28. janúar 2016
Svona geturðu
aukið gáfur þínar
n Veldu þér réttu áhugamálin n Mikilvægt að halda huganum í góðu formi eins og líkamanum
M
argir telja að gáfur séu
meðfæddar og að lítið sé
hægt að gera til að auka
þær. Það sé í raun ákvarð-
að strax í móðurkviði
hvort einstaklingur komi til með
verða gáfaður eða ekki þegar hann
vex úr grasi. En þetta er alls ekki
raunin. Gáfur má auka með ýmsum
hætti, meira að segja á gamals aldri.
Mörg áhugamál, sem við njótum að
stunda, geta aukið gáfur okkar til
muna og hér eru dæmi um nokk-
ur þeirra. Vísindalegar rannsóknir
þykja hafa sýnt fram á gagnsemi
þeirra fyrir heilann.
Spila á hljóðfæri
Það þykir sannað að
tónlist hefur örvandi
áhrif á heilann.
Tónlistin vekur upp
flóknar tilfinningar
og ákveðið sálrænt
ástand. Fjöldi rann-
sókna hefur sýnt fram
á að bæði það að hlusta
á tónlist og spila á hljóðfæri
hefur góð áhrif á minnið. Að læra og
spila á hljóðfæri kennir fólki jafn-
framt þolinmæði og skerpir ein-
beitinguna.
Fjölbreytt lesefni
Það vita það líklega flestir að lestur
er öllum hollur. Hann getur aukið
gáfur á ýmsum sviðum og það á
sérstaklega við ef fólk les fjölbreytt
efni. Allt frá spennusögum, til ævi-
sagna og fræðirita. Lestur þykir hafa
róandi áhrif á hugann og dregur úr
stressi. Við lesturinn upplifir fólk
ýmsar tilfinningar og lærir eitthvað
nýtt. Lestur eykur þekkingu sem
jafnframt undirbýr fólk til að takast
á við mismunandi aðstæður.
Regluleg íhugun
Helsti ávinningurinn af því að íhuga
er að það hjálpar fólki að einbeita
sér að sjálfu sér og finna sjálft sig.
Íhugun dregur úr stressi losar fólk
við óþarfa áhyggjur. Það að hreinsa
hugann reglulega gerir fólki auð-
veldara um vik að læra eitthvað nýtt
og skipuleggja sig á áhrifaríkari hátt.
Með reglulegri íhugun getur fólk
öðlast fulla stjórn á sjálfu sér, en
það er lykilatriði þegar kemur að því
að auka gáfurnar með einhverjum
hætti.
Þjálfa hugann
Það er jafn mikilvægt að þjálfa hug-
ann og líkamann til að
halda honum í góðu
formi. Allir ættu
að ögra huganum
mjög reglulega til
að viðhalda þekk-
ingu og færni hans
til að leysa þrautir.
Þetta er hægt að gera
með ýmsum hætti, eins
og með því að leysa sudoku,
spila borðspil, leysa gátur og púsla.
Þessar athafnir hjálpa huganum að
mynda nýjar tengingar og bregð-
ast við aðstæðum á skapandi hátt.
Þær bæta jafnframt getuna til að
sjá hlutina frá mismunandi sjón-
arhornum.
Fara á æfingu
Heilbrigður líkami er
fyrsta skrefið að
heilbrigðum
huga, enda er
hann eins og
hver annar
vöðvi í líkam-
anum. Reglu-
leg hreyfing
hjálpar líkaman-
um og heilanum að
starfa rétt. Hreyfingin dregur úr
spennu og fólk sefur betur. Lækn-
ar eru sammála um að aukið blóð-
flæði til heilans auki virkni hans. Þá
hafa rannsóknir á bæði dýrum
og mönnum sýnt fram á að
hjartastyrkjandi æfingar
geta fjölgað heilafrum-
um og aukið heildar-
virkni heilans.
Læra nýtt tungumál
Það er svo sannarlega
ekki alltaf auðvelt að læra
nýtt tungumál, en kostirnir
við það eru mjög margir. Það er til
dæmis talið að aukin tungumála-
kunnátta geri fólk gáfaðra. Að læra
nýtt tungumál felur í sér ýmis verk-
efni, eins og að greina málfræði og
uppbyggingu nýrra orða og setn-
inga, sem hefur jákvæð áhrif á hug-
ann. Þá þykir það hafa verið vís-
indalega sannað að fólk með
góða tungumálakunnáttu er
betra í að skipuleggja sig en
aðrir og á auðveldra með að
taka ákvarðanir og að leysa
vandamál.
Skrifa niður
tilfinningar sínar
Það er alltaf gott að vera
duglegur að skrifa,
það þjálfar ekki
bara bara færni
fólks í tungu-
málinu heldur
hjálpar til við
að skerpa ein-
beitinguna, auka
ímyndunaraflið og
skapandi hugsun. Það
er hægt að skrifa á marga mismun-
andi vegu. Ein leiðin er að halda
dagbók eða persónulegt blogg. En
hvaða leið sem fólk velur þá er
það alltaf að koma frá sér texta og
læra að tjá tilfinningar sínar sem
er góð leið til að auka gáfurnar.
Ferðast til nýrra staða
Ferðalög geta hreinsað hugann af
stressi og þegar fólk nær þeim stað
er auðveldara að einbeita sér að
ákveðnum verkefnum, uppgötva
nýja hluti og dýpka skilning á ýms-
um málum. Allir nýir staðir sem
heimsóttir eru bjóða upp á
nýja upplifun, hvort sem
það felur í sér að hitta
nýtt fólk, borða fram-
andi mat, kynnast nýrri
menningu, samfélögum
og lífsstíl. Þetta allt gefur
þér nýjar hugmyndir
sem þú hefðir aldrei annars
fengið. n
Verið alltaf velkomin í Kolaportið!
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17.
Næg bílastæði við
Kolaportið
Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína!
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum.
Vesturgata · Mjóstræti
Fjöldi stæða 106
Ráðhúsið · Tjarnargata 11
Fjöldi stæða 130
Traðarkot · Hverfisgata 20
Fjöldi stæða 270
Kolaportið · Kalkofnsvegur 1
Fjöldi stæða 270
K
V
IK
A