Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Side 29
Menning 25Vikublað 26.–28. janúar 2016
Frásagnir aF Ferðalögum
n ingvar Högni ragnarsson sýnir ljósmyndir frá Búkarest í rúmeníu í gerðarsafni n Katrín elvarsdóttir gefur út bókina Double Happiness með myndum frá Kína
sér inn í stórborgina. Maður getur
alltaf fundið eitthvert líf sama hvað
það er mikið af steypu.
Náttúran kemur sér
inn í stórborgina
og finnur sér leið til
að halda áfram að
vaxa,“ segir Katrín.
„Þarna er
líka náttúra sem
er endurgerð í
efnum, veggfóðri
og veggspjöldum.
Munstrin í kjólum
kvenna og á dýnum
eru fengin úr
náttúrunni. Þarna er
veggfóður með mynd
af pálmatré sem fólk
hefur á veggnum
frekar en að hafa
glugga þar sem það
getur horft út, þarna
eru líka flísar sem búa til
stemningu eins og í vin í eyðimörk. Í
þessum steypuheimi er alltaf verið að
vitna í náttúruna,“ segir Katrín.
Flestar myndirnar á sýningunni
einbeita sér að afmörkuðum smá
atriðum og þröngum nærmyndum en
maður fær ekki víða sýn af umhverfinu,
nema helst í hljóðupptöku frá Kína
sem hægt er að
hlusta á í rýminu.
„Í þessum
Hutongsvæðum
þar sem ég tek
myndirnar býr
fólk afskaplega
þröngt. Heimilin
eru eiginlega
bara litlir kofar
og svo er fólk
með útieldhús
þar sem það
eldar saman,
við aðalstíginn
er svo
sameiginlegt
klósett. Þetta
er mörg
hundruð ára
arkitektúr,“
segir Katrín.
Frásagnir af ferðalögum
Þið eruð bæði að ljósmynda svæði
og segja sögur frá stöðum sem
þið komið ekki frá, teljið þið að
aðkomumaðurinn geti miðlað
borginni eða sögum frá þessum
stöðum á sannan hátt?
„Svo ég tali bara fyrir mig, þá lít
ég svo á að það sé enginn algildur
sannleikur í þessari sýningu.
Þetta er ekki bara akkúrat svona
og ekki hinsegin. En maður getur
horft á þetta sem frásögn af mínu
ferðalagi, mynd af því fólki sem
ég hitti og af sögunni sem það
hefur að segja. Ég er ekki að koma
neinum ákveðnum skilaboðum
áleiðis, heldur frekar að gefa
einhverja innsýn og vekja upp
spurningar hjá þeim sem koma á
sýninguna,“ segir Ingvar og Katrín
bætir við:
„Sýn mín þróaðist í hvert
skipti sem ég ferðaðist til Kína. Ég
hugsa að sýningin hefði verið allt
öðruvísi ef ég hefði sýnt það sem
ég tók í fyrstu ferðinni. En sýningin
er ekki beint um Kína, því ég hefði
getað gert svona sýningu um
Ísland og hef í rauninni gert. En
þetta er auðvitað mjög kínverskt
umhverfi, maður kemst ekki burt
frá því,“ segir Katrín. n
Náttúran tekur yfir borgina Fölnað veggspjald með mynd af Peking hverfur smám saman fyrir gróðri sem slútir niður vegginn. MyNd KatríN Elvarsdóttir
Kona vi (2013) MyNd KatríN Elvarsdóttir
Flöskur (2013) MyNd KatríN Elvarsdóttir
ingvar og Katrín Ljósmyndararnir sýna verk sín í Gerðarsafni í Kópavogi.
tvöföld hamingja Á dögunum
kom út bókin Double Happiness með
Kínamyndum Katrínar Elvarsdóttur.
Útgefandi er Crymogea.
TOYOTA AVENSIS SOL ←
Fyrsta skráning 12/2010. Ekinn 87 þús. km. Sjálf-
skiptur. Álfelgur. Handfrjáls búnaður. 2ja svæða
tölvustýrð miðstöð og fullt af lúxus. Tveir eigendur
frá upphafi. Ekki fyrrverandi bílaleigubíll. Minnst
ekni og ódýrasti bíllinn á markaðinum í dag.
Okkar verð:
2.840.000 KR.