Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Page 30
26 Menning Vikublað 26.–28. janúar 2016
Líkið í brunninum
M
aður hefði haldið að Bosníu
myndir væru horfin undir
grein kvikmyndanna, en
þær skildu þó eftir sig meist
araverk eins og Underground og No
Man's Land. Lengi lifir þó í gömlum
glæðum þótt þungamiðja heimsmál
anna hafi færst annað, og Spánverj
inn Aranoa hefur kosið að gera sína
fyrstu enskumælandi mynd um átök
in á Balkanskaga.
Myndin gerist árið 1995 undir lok
stríðsins, þó að fram komi að vanda
málunum sé hvergi nærri lokið þótt
hætt sé að skjóta. Snýr myndin að
vanda hjálparstarfsmanna við að
veiða lík upp úr brunni og tilraunum
til að verða sér úti um reipi til starfans.
Sagan er því einföld, sem er gott og
blessað í sjálfu sér, en gerir ekki mikl
ar tilraunir til að útskýra umhverfið.
Við fáum að skyggnast inn í daglegt líf
fólks sem þarf að búa við jarðsprengj
ur og já, lík í brunnum, en minna er
sagt um hvað þetta snýst allt saman
um, ef þá nokkuð.
Sameinuðu þjóðirnar virðast harla
gagnslausar og skrifræði kemur í veg
fyrir að einföldustu verk séu fram
kvæmd, ef til vill á þetta að vera gagn
rýni á þær, en að sama skapi eru það
einmitt þær sem eru að reyna að gera
eitthvað gott.
Sögupersónur eru annaðhvort af
dankaðir gamlir karlar eða föngulegar
ungar evrógellur, sem er vonandi vilj
andi frekar 1995 en 2016 (þetta voru jú
Clintonárin). Helsti kostur myndar
innar er hið sögulega umhverfi, sem
gerir myndina vel þess virði að sjá,
þörf áminning um átök sem eru óðum
að gleymast. En enginn gerir þetta
betur en Balkanbúar sjálfir, eins og
Emir Kusturica hefur sýnt fram n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
A Perfect Day
IMDb 6,9 RottenTomatoes 63% Metacritic 61
Handrit og leikstjórn: Fernando León de
Aranoa
Aðalhlutverk: Olga Kurylenko, Benicio del
Toro og Tim Robbins
Sýnd í Bíó Paradís - 106 mínútur
„Við þurfum reipi“ A Perfect Day fjallar
um leit hjálparstarfsmanna að reipi til að
veiða lík upp úr brunni.
S
njóflóð féll á Súðavík þann 16.
janúar 1995. 14 manns fórust.
Þann 26. október sama ár féll
síðan annað snjóflóð, á Flat
eyri. 20 manns fórust. Þjóð
ina setti hljóða. Um allt land voru fán
ar dregnir í hálfa stöng, samkomuhald
var fellt niður og bænastundir haldnar
í fjölmörgum kirkjum.
Yfirþyrmandi trúverðugleiki
Heimildarverkið Flóð var frumsýnt á
Litla sviði Borgarleikhússins í síðustu
viku. Leikstjóri verksins, Björn Thors,
hefur unnið textann í samvinnu við
Hrafnhildi Hagalín, upp úr viðtölum
við fjölmarga einstaklinga sem voru á
Flateyri þegar snjóflóðið féll á bæinn,
árið 1995. Þau eru trú sínum heim
ildarmönnum, halda í stíl og málfar
hvers og eins, frásögnin er óheft og
trúverðugleikinn nánast yfirþyrm
andi. Leikararnir skiptast á að segja
sögur ólíkra einstaklinga, skýra sjón
arhorn þeirra sem björguðust úr flóð
inu, unnu við leitarstörf eða sáu um
matargerð fyrir leitarmenn og hlúðu
að þeim sem fundust. Smáatriði, sem
ekki hafa áður komið fram, styrkja frá
sögnina og tengja hana áhorfendum
með einstökum hætti. Ekki er fallið
í þá freistni að mjólka tár áhorfenda,
heldur miklu fremur fræða og deila
reynslu af atburði sem greyptur er í
sögu þjóðarinnar. Uppbygging verks
ins er vel unnin og hvergi er slegið
slöku við.
Á sviðinu standa tveir flekar á
búkkum ásamt ótal smáhlutum sem
leikararnir raða og endurraða eftir
því sem óveðrið magnast. Þau teikna
fjallið upp með þunnum plastpoka á
myndvarpa og skýra fyrir áhorfend
um hvernig snjósöfnun þróaðist um
nóttina. Þau sýna hættumatið með
stafla af pappakössum og ryðja fram
ísköldu snjóflóðinu með mögnuðum
tilfæringum á fábrotnum leikmunum.
Leikmynd Snorra Freys Hilmarsson
ar er margbrotin, beiting leikmuna
þaulhugsuð og öll tæknivinna til fyrir
myndar.
Ómetanlegar frásagnir
Leikararnir túlka persónur sínar með
hógværum og mjög eðlilegum hætti.
Tilfinningin var nánast sú að þau
væru bara hluti af okkur áhorfendun
um. Í þessu verki er það textinn og
meðferð hans,
sem öllu máli skiptir og þeim Hall
dóru Geirharðsdóttur, Hilmi Jenssyni,
Kristbjörgu Kjeld og Kristínu Þóru
Haraldsdóttur tekst svo sannarlega
að leiða áhorfendur inn og út úr snjó
flóðinu með fínstilltum leik og áhrifa
ríkri frásögn fjölmargra persóna.
Hilmir Jensson er framúrskarandi
og ber af annars mjög
faglegum og góðum leikurum.
Öll mætum við mótlæti einhvern
tímann á lífsleiðinni en sem betur
fer er fæst af þeirri stærðargráðu sem
Flateyringar máttu þola haustið 1995.
Höfundar verksins lögðu í erfiða veg
ferð við að safna saman sögum þeirra
er lifðu flóðið af. Sérhver frásögn er
ómetanleg fyrir þjóðina og sérstök
ástæða til þess að þakka þeim sem
fengust til að deila lífsreynslu sinni
með þessum hætti. Þetta er óvenju
leg og einstök sýning sem allir ættu að
kynna sér. n
Heimildaverk um hamfarir
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Flóð
Höfundar: Hrafnhildur Hagalín og
Björn Thors
Leikstjórn: Björn Thors
Dramatúrg: Hrafnhildur Hagalín
Leikarar: Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir
Jensson, Kristbjörg Kjeld og Kristín Þóra
Haraldsdóttir
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr
Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist og hljóð: Garðar Borgþórsson
Sýnt í Borgarleikhúsinu
„Ekki er fallið í þá
freistni að mjólka
tár áhorfenda, heldur
miklu fremur fræða og
deila reynslu af atburði
sem greyptur er í sögu
þjóðarinnar.
Nánast yfirþyrm-
andi trúverðugleiki
Í heimildaleikverkinu
Flóð er tekist á við átak-
anlega atburði úr sögu
þjóðarinnar, snjóflóðin
á Vestfjörðum á tíunda
áratugnum.
„Hilmir Jensson
er framúrskar-
andi og ber af annars
mjög faglegum og
góðum leikurum
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is