Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Qupperneq 4
4 Fréttir Helgarblað 19.–22. febrúar 2016
Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir
Rykmoppur og
sápuþykkni frá
Pioneer Eclipse
sem eru hágæða
amerískar hreinsi-
vörur.
Teppahreinsivörur
frá HOST
Marpól ehf. - Nýbýlavegur 18, Kópavogur - S: 660 1942 - marpol.is
Frábærar þýskar
ryksugur frá SEBO
Decitex er
merki
með allar
hugsanlegar
UNGERErum einnig með:
Marpól er með
mikið úrval af
litlum frábærum
V
ið erum með nokk
uð strangar verklags
reglur hvað þetta
varðar. Starfsmenn
mæta alltaf í einkennis
búningi og eru með skilríki
með mynd merkt Veitum,
sem er dótturfélag Orku
veitunnar. Þeir eru einnig
á merktum bílum,“ útskýrir
Eiríkur Hjálmarsson, upp
lýsingafulltrúi Orkuveitunn
ar, spurður út í óhugnanlega
innrás inn á heimili ungrar
konu í Hafnarfirði.
Á mánudag villti maður á
sér heimildir með þeim hætti
að hann bankaði upp á hjá konu á
Móabarði í Hafnarfirði og sagðist
þurfa að lesa af mælum. Þegar mað
urinn var kominn inn réðst hann
á konuna sem var ein heima með
ungbarn sitt.
Eiríkur áréttar að starfsfólk Orku
veitunnar ætti að vera mjög auð
þekkjanlegt.
Annað fyrirtæki sem sér um
að lesa af mælum í Hafnarfirði er
Veitur.
Í tilkynningu frá Veitum segir:
„Veitur þakka viðskiptavinum það
traust sem álesarar á vegum fyrir
tækisins njóta og finnst ömurlegt
hafi það verið misnotað. Viðskipta
vinum er bent á að þeir geta sjálfir
sent fyrirtækinu álestur kjósi þeir
það. Það er til dæmis hægt að gera
í gegnum Mínar síður á vef Veitna.“
Lögregla auglýsti í gær eftir upp
lýsingum um manninn. Hann er um
180 cm á hæð og fölleitur, var dökk
læddur, með svarta húfu og svarta
hanska. Hann er talinn vera á aldr
inum 35–45 ára. Þeir sem vita eitt
hvað um málið eru beðnir um að
hafa samband við lögregluna. n
Alltaf merktir
og með skilríki
Sagðist vera að lesa af mælum og réðst á konu
Skoðuðu tölvupósta
brottrekna forstjórans
n Stjórn Fáfnis Offshore vill skuldabréfaútgáfu n Hitafundur í næstu viku
S
tjórn Fáfnis Offshore vill ráð
ast í skuldabréfaútgáfu upp
á tæpar 200 milljónir króna
sem á að tryggja áfram
haldandi rekstur fyrirtækis
ins. Samkvæmt heimildum DV mun
hún leggja tillögu þess efnis fram
á hluthafafundi Fáfnis næsta mið
vikudag og einnig fara yfir fjárhags
stöðu fyrirtækisins, samning þess við
Sýslumanninn á Svalbarða og athug
un stjórnarinnar á tölvupóstum sem
Steingrímur Erlingsson, fyrrverandi
forstjóri og stofnandi Fáfnis Offs
hore, sendi í starfi sínu. Steingrímur
vildi ekki tjá sig um athugun stjórn
arinnar sem nær yfir tölvupóstsam
skipti hans nokkur ár aftur í tímann.
Fyrirtækið rekur sérútbúna fimm
milljarða króna olíuþjónustuskip
ið Polarsyssel, dýrasta skip Íslands
sögunnar, og er með annað í smíð
um.
Skipt fyrir hlutafé
Skuldabréfaútgáfan sem stjórn Fáfn
is stefnir að er samkvæmt heimild
um ætlað að afla allt að 195 millj
ónum króna sem fyrirtækið þarf til
að ganga frá samningum við norsku
skipasmíðastöðina Havyard. Þar
sé um að ræða útgáfu breytanlegra
skuldabréfa, með 20% ársvöxtum,
sem síðar verði hægt að skipta fyr
ir hlutafé í Fáfni. Til þess að útgáfan
geti farið fram þarf að breyta sam
þykktum félagsins og ætlar stjórnin
að bera tillögu þess efnis fram á hlut
hafafundinum.
Þar verður einnig tekin fyrir til
laga um að flytja Fafni Viking, skip
sem Hav yard smíðar nú fyrir Fáfni
og kostar um 350 milljónir norskra
króna, 5,2 milljarða króna, yfir í
dótturfélag íslenska olíuþjónustufyr
irtækisins. Afhendingu skipsins hef
ur verið frestað nokkrum sinnum en
upphaflega stóð til að hún færi fram
í næsta mánuði. Samkvæmt upplýs
ingum DV óskuðu hluthafarnir Fafn
ir Holding, félag sem er alfarið í eigu
Steingríms Erlingssonar, og Optima
Danmark AS, í byrjun febrúar eftir
því að fundurinn yrði haldinn. Fóru
þeir fram á að farið yrði yfir fjárhags
stöðu og framtíðaráform fyrirtæk
isins og að nýr stjórnarmaður yrði
kjörinn.
Lífeyrir í olíuútrás
Framtakssjóðurinn Akur, sem er í eigu
þrettán lífeyrissjóða, Íslandsbanka
og VÍS, er stærsti eigandi Fáfnis með
30% hlut. Framtakssjóðurinn Horn
II, sem er í eigu lífeyrissjóða, fjár
málafyrirtækja og fagfjárfesta, kem
ur þar á eftir með 23%. Samkvæmt
nýjasta ársreikningi Fáfnis á Stein
grímur Erl ingsson 21% hlut í gegnum
Fafni Holding. Hinir fimm hluthafarn
ir, þar á meðal Sjávarsýn ehf., sem er
í eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfest
is og fyrrverandi forstjóra Glitnis, og
Havyard Ship Invest AS, sem er í eigu
norsku skipasmíðastöðvarinnar Hav
yard, eiga minna en 10%.
Steingrímur bauðst í lok janúar
til að staðgreiða eignarhluti Akurs og
Horn II í Fáfni eins og DV greindi frá
5. febrúar síðastliðinn. Í frétt blaðsins
kom fram að forstjórinn fyrrver
andi hefði meðal annars lagt fram
staðfestingu á lánsfjármögnun frá
kanadíska fjármálafyrirtækinu Pro
spect Financial Group. Tilboðið, sem
var lagt fram án fyrirvara um fjár
mögnun, rann út nokkrum dögum
síðar en hluthafarnir tveir höfnuðu
því. Vefmiðillinn Kjarninn greindi síð
ar frá því að tilboðið hefði verið upp
á um 10% af þeim tveimur milljörð
um króna sem framtakssjóðirnir tveir
lögðu upphaflega í Fáfni Offshore.
Það muni ráðast í þessum mánuði
hvort nýr þjónustusamningur Fáfnis
við sýslumanninn á Svalbarða, eina
verkefnið sem Fáfnir er með í hendi,
um að fyrirtækið sinni verkefnum fyr
ir hann í níu mánuði á ári í stað sex,
muni halda.
Vilja ekki tjá sig
Ljóst er að ekki eru allir hluthafar
Fáfnis sammála um þær ákvarðanir
sem stjórnendur þess hafa tekið síð
ustu mánuði. Í frétt DV þann 29. jan
úar kom fram að eigendur danska
sjávarútvegsfyrirtækisins Sirena A/S,
sem á 2,8% hlut í Fáfni í gegnum
dótturfélag sitt, Optima Danmark AS,
væru óánægðir með samskipti sín við
stjórnendur Fáfnis. Eins og áður seg
ir óskuðu Fafnir Holding, félag Stein
gríms, og Optima Danmark, eftir því
að hluthafafundurinn yrði haldinn.
Steingrími, sem stofnaði fyrir
tækið og var andlit þess út á við, var
eins og áður segir sagt upp störfum í
desember og nýr framkvæmdastjóri
ráðinn í hans stað. Jóhannes Hauks
son tók við stöðu stjórnarformanns
nokkrum vikum síðar af Bjarna Ár
mannssyni sem hafði þá sinnt hlut
verkinu í rúma fimm mánuði. Þeir
hafa ekki viljað tjá sig um stöðu fyrir
tækisins sem sérhæfir sig í þjónustu
við olíu og gasborpalla auk annarra
verkefna á norðlægum slóðum.
Lækkun olíuverðs hefur gjör
breytt verkefnastöðu margra fyrir
tækja sem þjónusta olíuiðnaðinn.
Tunna af Norðursjávarolíu (e. Brent
Crude) kostaði um 35 Bandaríkjadali
í gær. Í apríl 2014, þegar Fafnir Vik
ing var pantað, kostaði hún um 110
dali. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Polarsyssel Steingrími Erlingssyni, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Fáfnis Offshore, var sagt upp störfum í desember. Lækkun olíuverðs
hefur haft áhrif á verkefnastöðu fyrirtækisins en íslenskir lífeyrissjóðir og ríkisbankinn Íslandsbanki eru í hluthafahópi þess.