Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Síða 11
Fréttir 11Helgarblað 19.–22. febrúar 2016
granda
Starfsmenn Kaupþings fengu hundruð
milljóna í bónus eftir nauðasamning
n Kaupþing greiddi út bónusa til tugi starfsmanna í byrjun árs n Hæstu greiðslurnar námu 30 til 50 milljónum n Kaupþing fækkar fólki
Hundruð milljóna króna bónusgreiðslur
Kaupþings voru inntar af hendi aðeins
ríflega tveimur vikum eftir að íslenska
eignaumsýslufélagið ALMC, áður
Straumur-Burðarás fjárfestingabanki,
greiddi 20–30 núverandi og fyrrverandi
starfsmönnum
félagsins yfir 3
milljarða króna í
bónus. Þrátt fyrir að
sumir lykilstjórnendur
Kaupþings hafi fengið
veglega bónusa – á
bilinu 30 til 50 milljónir
– þá komast þeir ekki í
hálfkvisti við þær bón-
usgreiðslur sem nokkrir
af helstu stjórnendum
ALMC fengu í sinn hlut
um miðjan desember á
síðasta ári.
Þannig námu bón-
usgreiðslur til nokkurra
lykilstjórnenda ALMC,
eins og upplýst var um
í forsíðufrétt DV síð-
astliðinn þriðjudag, hundruðum milljóna
króna á mann. Þar var meðal annars um
að ræða þá Óttar Pálsson, hæstarétt-
arlögmann hjá LOGOS og stjórnarmann í
ALMC, og Jakob Ásmundsson, fyrrverandi
forstjóra Straums fjárfestingabanka,
en hann gegndi starfi fjármálastjóra
ALMC fram til ársins 2013. Óttar er á
meðal þeirra sem tilnefndir eru í fimm
manna stjórn hins nýja eignarhaldsfélags
Kaupþings.
Bónusar ALMC, sem áætlað var í
ársbyrjun 2015 að myndu nema samtals
23 milljónum evra, jafnvirði 3,3 milljarða
króna, eru langsamlega hæstu bón-
usgreiðslur sem greiddar hafa verið af
íslensku félagi allt frá falli fjármálakerf-
isins haustið 2008. Að
meðaltali námu þær um
100 milljónum á starfs-
mann. Sumir fengu hins
vegar mun meira, aðrir
talsvert minna.
Af þeim um það bil
20–30 núverandi og
fyrrverandi starfsmönn-
um ALMC sem fengu
slíkar bónusgreiðslur
undir lok síðasta árs er
meirihluti þeirra erlendir
aðilar. Hins vegar er
einnig um að ræða
Íslendinga sem hafa
starfað fyrir bæði ALMC
og Straum fjárfestinga-
banka á undanförnum
árum. Á meðal þeirra
lykilstjórnenda sem fengu langsamlega
hæstu bónusgreiðslurnar frá ALMC
eru – fyrir utan þá Óttar og Jakob – þeir
Andrew Bernhardt og Christopher Perrin.
Þeir sitja í stjórn ALMC ásamt Óttari. Aðrir
Íslendingar sem áttu rétt á umtalsverðum
bónusgreiðslum frá ALMC voru þau Birna
Hlín Káradóttir, yfirlögfræðingur Fossa
Markaða, og Magnús Ingi Einarsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Kviku fjárfestingabanka.
Fengu margfalt hærri bónusa
en starfsmenn Kaupþings
um króna, eða sem nemur að með-
altali 7 milljónum króna á mann á
mánuði. Þá samþykktu kröfuhaf-
ar Kaupþings að setja að lágmarki
tíu milljarða króna í sérstakan sjóð
til að tryggja skaðleysi slitastjórn-
ar í allt að tólf ár eftir nauðasamn-
ing. Geta meðlimir slitastjórn-
ar þannig gengið á sjóðinn til að
standa straum af ýmsum kostnaði
sem kann að falla á þá vegna mögu-
legra málsókna.
Kröfuhafar Kaupþings sam-
þykktu sem kunnugt er á síðasta
ári stöðugleikaskilyrði íslenskra
stjórnvalda sem fólust meðal
annars í framsali innlendra eigna
sem voru bókfærðar á 120 millj-
arða króna auk þess að koma að
fjármögnun Arion banka í erlendri
mynt til langs tíma. Kröfuhafar
Kaupþings hafa heimild til að draga
frá allt að 5 milljarða króna af stöð-
ugleikaframlagi sínu til stjórnvalda
til að standa straum af rekstrar-
kostnaði sem stofnast til við rekstur
Kaupþings á Íslandi en undir þá
frádráttarheimild falla hins vegar
ekki bónusgreiðslur líkt og þær sem
núna hafa verið inntar af hendi til
starfsmanna.
Jóhannes yfir vandræðaeignum
Fyrsti hluthafafundur eignarhalds-
félags Kaupþings fer fram 29. febr-
úar næstkomandi og mun þá ný
fimm manna stjórn taka form-
lega við félaginu. Hlutverk henn-
ar verður að hafa umsjón með
óseldum eignum Kaupþings, sem
nema nærri 400 milljörðum og
munar mestu um 87% hlut í Arion
banka, og umbreyta þeim í laust
fé og úthluta til kröfuhafa. Starf-
andi stjórnarmenn verða Jóhann-
es Rúnar og Bretinn Matthew
Turner en hann hefur starfað sem
ráðgjafi Kaupþings allt frá árinu
2013 þegar kröfuhafar tilnefndu
hann sem forstjóra félagsins eftir
nauðasamning. Hefur hann með-
al annars setið í stjórnum Karen
Millen og Aurora Fashions á þeim
tíma en samkvæmt heimildum DV
stendur núna til að hann muni
gegna stöðu framkvæmdastjóra
eignastýringar Kaupþings. Jó-
hannes Rúnar verður hins vegar
framkvæmdastjóri yfir þeim eign-
um sem skilgreinast sem vand-
ræðaeignir (NOA lánasafnið) en
um mitt síðasta ár nam bókfært
virði þeirra, en nánast einungis
er um að ræða eignir í Bretlandi,
tæplega 29 milljörðum króna.
Þá verða einnig í stjórninni Óttar
Pálsson, hæstaréttarlögmaður hjá
LOGOS og helsti ráðgjafi kröf-
uhafa gömlu bankanna um
árabil, Paul Copley, endur-
skoðandi og einn af með-
eigendum PwC í London, og
Alan J. Carr, bandarískur lög-
maður. Samkvæmt heimildum
DV verður Paul Copley stjórnar-
formaður Kaupþings en hann var
á meðal þeirra sem stýrðu fjár-
hagslegri endurskipulagningu fjár-
festingabankans Lehman Brothers
í Evrópu.
Helstu eigendur Kaupþings eft-
ir nauðasamning eru bandarísku
vogunarsjóðirnir Taconic Capital,
Abrams Capital og York Global.
Samtals voru rúmlega tvö þúsund
kröfuhafar hluti af nauðasamningi
Kaupþings og verða því hluthaf-
ar í hinu nýja eignarhaldsfélagi. Á
meðal þeirra er Eignasafn Seðla-
banka Íslands (ESÍ) en hlutur þess
verður tæplega 6% sem gerir ESÍ
að fjórða stærsta einstaka hlut-
hafa Kaupþings. Fyrirséð er hins
vegar að hluthöfum fækki mikið á
komandi mánuðum og misserum
samhliða því að stærstu eigendur
Kaupþings munu kaupa út smærri
aðila. n
Kolbeinn segist
ekki hafa fengið
bónus frá Kaupþingi
Kolbeinn Árnason, fyrrverandi yfirlög-
fræðingur Kaupþings, er ekki í þeim
hópi sem fékk greiddan bónus frá
slitabúinu í upphafi þessa árs.
Kolbeinn lét af störfum sem
framkvæmdastjóri lögfræðisviðs
Kaupþings sumarið 2013 og tók í
kjölfarið við starfi framkvæmdastjóra
Landssambands íslenskra útgerðar-
manna (núna Samtök
fyrirtækja í sjávarút-
vegi, SFS) í ágúst
sama ár. Kolbeinn
hafði verið einn af
lykilstarfsmönnum
slitabúsins og
unnið náið með
slitastjórn og helstu
ráðgjöfum kröfuhafa
við að útbúa þann nauða-
samning sem var lagður fyrir
Seðlabankann í október 2012 en hlaut
aldrei brautargengi.
Í tilkynningu Kaupþings vegna
starfsloka Kolbeins kom fram að
hann myndi áfram starfa sem ráðgjafi
Kaupþings. Að ósk slitastjórnar búsins
myndi hann sinna „verkefnum sem
tengjast undirbúningi að framlagn-
ingu fyrirhugaðs nauðsamnings
Kaupþings“, var haft eftir Kolbeini í
tilkynningunni.
Aðspurður hvort hann hafi verið
hluti af þeim starfsmönnum sem áttu
rétt á bónusgreiðslum frá Kaup-
þingi, meðal annars vegna þessara
ráðgjafarverkefna, segir Kolbeinn svo
ekki vera. „Ég hvorki fékk slíkan bónus
né átti ég rétt á honum. Ég lauk þar
störfum fyrir næstum tveimur árum
og skyldum og réttindum mínum
gagnvart Kaupþingi er lokið,“ sagði
Kolbeinn í skriflegu svari til DV.
Skuldaskilum lokið Á árunum 2012
og 2013 var samið við marga starfsmenn
Kaupþings um að þeir myndu fá bónusa
ef skuldaskilum bankans myndi ljúka
með nauðasamningi. Mynd Stefán KarlSSon