Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Side 12
12 Fréttir Helgarblað 19.–22. febrúar 2016
Gjafabréf Nr.1 - Verð: 17.500
· Gjafabréf ásamt rósavendi
· Moroccanoil fótsnyrting
· Moroccanoil handsnyrting með paraffin maska á hendur
· Heitsteinavöðvabólgunudd
Gjafabréf Nr.2 - Verð: 12.020
· Gjafabréf ásamt rósavendi
· Létt andlitsbað ásamt litun og plokkun.
Dekraðu við ástina á Konudaginn með þessum lúxus gjafabréfum
Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is
Stjórn Össurar
vill hærri laun
Samkvæmt tillögu sem liggur fyr-
ir aðalfundi Össurar hf., sem fram
fer í næsta mánuði, leggur stjórn
fyrirtækisins til að laun stjórnar-
manna hækki um fjögur prósent
fyrir árið 2016. Össur hf., sem
skráð er í Kauphöll Íslands, skil-
aði 6,6 milljarða króna hagnaði
árið 2015 sem er rúmum milljarði
minna en árið þar áður þegar
hagnaðurinn nam 7,7 milljörð-
um króna.
Forstjóri Össurar hefur sagt að
skýringin sé að gengið hafi ver-
ið óhagstætt fyrir uppgjörið þar
sem styrking krónunnar hafi haft
neikvæð áhrif á hagnað, tekjur og
EBITDA fyrirtækisins sem gerir
upp í Bandaríkjadölum.
Samkvæmt tillögu stjórnar-
innar ber að hækka laun stjórnar-
formanns úr 85 þúsund dölum á
ári, sem eru 10,9 milljónir miðað
við núverandi gengi, í 88.500 dali
á ári, sem gera rúmar 11,3 millj-
ónir króna. Varaformaður stjórn-
ar hækki úr 51 þúsund dölum,
sem í dag eru 6,5 milljónir króna,
á ári í 53 þúsund dali, eða 6,7
milljónir króna. Hinir þrír stjórn-
armeðlimirnir hækka úr 34 þús-
und dölum, eða 4,3 milljónum,
í 35.500 dali á ári, sem gera ríf-
lega 4,5 milljónir króna. Verði til-
laga stjórnar samþykkt hafa laun
stjórnarmanna Össurar hækkað
um ríflega 10 prósent frá árinu
2013.
Stjórnarformaðurinn Niels Jac-
obsen er stjórnarformaður Össurar hf.
Stjórnin leggur til að árslaun hans verði
hækkuð í 11,3 milljónir króna. Mynd ÖSSur.iS
Skólastjórnendur telja sig
hlunnfarna um rekstrarfé
n Segja villu í fjárveitingalíkani grunnskóla Reykjavíkurborgar
H
alli er á rekstri flestra
grunnskóla Reykjavíkur-
borgar og hafa borgaryfir-
völd boðað að tapið verði
tekið yfir á næsta rekstrar-
ár. Samkvæmt viðauka við fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar er gert
ráð fyrir enn frekari niðurskurði á
næsta rekstrarári hjá Skóla- og frí-
stundasviði og því eru skólastjórn-
endur uggandi yfir því hvernig þeir
geti uppfyllt lögboðið hlutverk
skólanna og skyldur. Álit skóla-
stjórnenda er að mistök hafi átt
sér stað í reiknilíkani borgarinnar
sem ákvarðar fjárveitingu hvers og
eins skóla. Rýnihópur tók til starfa
í desember síðastliðnum og vilja
skólastjórnendur að hópurinn klári
sína vinnu áður en ákvörðun um
að halli verði tekinn yfir á næsta
rekstrarár skólanna.
Ekki reiknað með kjarasamn-
ingsbreytingum
Mistökin sem skólastjórnendur
telja að hafi átt sér stað snýr að út-
reikningi á kjarasamningabreyting-
um síðasta árs. Að mati skólastjórn-
enda var ekki nægjanlega tekið
tillit til þeirra í fjárveitingu síðasta
árs og því hafi fjármagn Reykja-
víkurborgar til grunnskólanna ver-
ið vanáætlað. Það hafi gert það
að verkum að skólar borgarinnar,
sem sumir hverjir hafi aldrei ver-
ið reknir með halla, hafi farið jafn-
vel tugmilljónir fram úr fjárveitingu
ársins 2015. Sumir skólastjórnend-
ur vöknuðu við vondan draum því
ekkert hafi breyst í rekstri skólanna,
nemendafjöldi svipaður og fjöldi
starfsmanna einnig. Því hafi ver-
ið gert ráð fyrir því að fjárveitingar
borgarinnar myndu aukast í sam-
ræmi við breytingarnar á kjara-
samningum en það gerðist aðeins
að litlu leyti. Því hafi margir skólar
horfst í augu við taprekstur síðast-
liðið skólaár.
Taprekstur og niðurskurður
Hagræðingaaðgerðir Reykjavíkur-
borgar voru kynntar í lok janúar
síðastliðnum og var áætlunin sú að
hagræða um 670 milljónir á Skóla-
og frístundasviði. Sú hagræðing
bætist við þann halla sem boðað
er að skólarnir þurfi að taka með
sér yfir á næsta ár. Því er ljóst, ef
ekkert er að gert, að verulega mun
reyna á skólastjórnendur höfuð-
borgarinnar á næsta ári. Nóg þyk-
ir flestum um enda hefur skóla-
kerfi borgarinnar verið skorið inn
að beini og óvíst er að Reykjavíkur-
borg hafi fjárhagslegt bolmagn til
þess að rétta hlut skólanna. Í kjölfar
fréttanna um hagræðingaaðgerð-
irnar hafði Fréttablaðið eftir Þor-
steini Sæberg, skólastjóra Árbæjar-
skóla, að þjónustustig skólans væri
orðið of lágt. „Ég reyni að jafna út
þeim gæðum sem ég hef í starfinu
til að láta hlutina bitna sem minnst
á nemendum. En hópar nemenda
í kennslu verða stærri og einstak-
lingsbundin þjónusta minni. Ég
vil meina að sérkennsla í Reykjavík
hafi á síðasta ári verið skorin beint
niður um 20 prósent. Með boðun
um yfirfærslu á halla og frekari
niðurskurði spyr maður sig á hvaða
leið við erum,“ sagði Þorsteinn.
Úrelt fjárveitingalíkan
Fjárveitingar til grunnskóla borg-
arinnar eru reiknaðar út með
ákveðnu reiknilíkani. Líkanið var
búið til fyrir rúmum fimmtán árum
og eru margir á því að það sé úr
sér gengið og illmögulegt sé að eitt
kerfi geti reiknað út fjárveitingar
til allra skóla borgarinnar enda er
um æði misjafnar rekstrareiningar
að ræða. Þrjátíu og sjö almennir
grunnskólar eru starfræktir í höf-
uðborginni og alls stunda 13.607
nemendur í þeim nám. Fámenn-
asti skólinn telur 107 nemend-
ur en sá fjölmennasti hefur á að
skipa 622 nemendum. Samkvæmt
heimildum DV virðist aðalskekkj-
an í útreikningum borgaryfirvalda
hafa átt sér stað varðandi svokall-
aða sérkennsluúthlutun. Hverj-
um skóla er úthlutað fjármunum
til þess að koma til móts við þarfir
nemenda skólans sem eru með sér-
þarfir en sá liður jókst aðeins með
tilliti til fjölgunar slíkra nemenda
en þar var ekki gert ráð fyrir kjara-
samningahækkuninni.
Starfshópur skipaður
Skóla- og frístundasvið Reykja-
víkurborgar brást við áhyggj-
um skólastjórnenda með því að
skipa starfshóp sem tók til starfa í
desember síðastliðnum. Hópur-
inn hefur það hlutverk að skoða
endurskoðun úthlutunarlíkans
grunnskóla. Í hópnum sitja Guð-
laug Sturlaugsdóttir, skrifstofu-
stjóri grunnskólaskrifstofu, Sif
Víglundsdóttir skólastjóri, Jóhanna
Vilbergsdóttir skólastjóri, Örn
Halldórsson skólastjóri, Hafþór
Einarsson, sérfræðingur fjármála-
og rekstrarþjónustu SFS og Guðrún
Bentsdóttir, verkefnastjóri grunn-
skólaskrifstofu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Skóla- og frístundasviði
Reykjavíkurborgar er áætlað að
hópurinn ljúki vinnu sinni á vor-
dögum 2016 en vilji skólastjórn-
enda er sá að hópurinn klári vinnu
sína áður en ákvörðun verði tekin
um að halli verði tekinn yfir á næsta
rekstrarár skólanna. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
reykjavíkurborg Skóla-
stjórnendur álíta að villa í
fjárveitingalíkani borgarinnar
hafi gert það að verkum að
rangt hafi verið skammtað.