Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Side 16
Helgarblað 19.–22. febrúar 2016
Dekraðu
við konuna í
þínu lífi með
blómum
frá okkur
Opið á Konudaginn
frá klukkan 9-18
Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Allir sem versla um helgina fara í vinningspott. Glæsilegir vinningar.
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
NOTAÐU
ÞITT FÉ
SKYNSAM-
LEGA
16 Fréttir Erlent
Ö
murlegar myndir af skelfi-
legu ástandi dýra í dýragarði í
suðurhluta Jemen hafa ratað
í fjölmiðla. Dæmi eru um að
sveltandi dýr sömu tegundar
hafi étið hvert annað. Á myndunum
má sjá kattardýr á borð við hlébarða
og ljón með blæðandi sár.
Dýrin, 280 talsins, hafast við í
afskiptum dýragarði í Taiz, en þau
hafa verið vanrækt síðan átök á
svæðinu brutust út í mars í fyrra.
Sameinuðu þjóðirnar segja að 82
prósent íbúa landsins, 21,2 millj-
ónir manna, þurfi á einhvers konar
mannúðaraðstoð að halda. En það
er ekki bara mannfólkið sem þarfn-
ast bráðrar aðstoðar.
Sjálfboðaliðar frá hinum ýmsu
löndum hafa sameinast um að
reyna að bjarga einhverjum af
þeim 20 ljónum og 26 arabískum
hlébörðum af sjaldgæfu kyni, sem
læst eru inni í búrum garðsins.
Í því skyni hefur hópurinn efnt
til herferðar á Facebook. Á einni
myndinni sem er komin í umferð,
má sjá karlkyns hlébarða éta maka
sinn sem svelti í hel. Ellefu ljón og
sex hlébarðar hafa þegar drepist og
sjá má að mörg dýranna eru orðin
grindhoruð af næringarskorti.
Hópurinn hefur safnað peningum
og mat til þess að koma dýrunum
til aðstoðar. Á Facebooksíðu þeirra
má fylgjast með því hvernig gengur.
„Björgunaraðgerðir eru hafnar,
en þetta virðist vera nánast óyfir-
stíganlegt verkefni sem krefst mik-
ils stuðnings og mikilla fjárhæða til
að halda dýrunum á lífi,“ segir einn
aðstandenda hópsins, Chantal Jon-
kergouw. Hún bendir á að hlébarði
þarf tvö til fjögur kíló af kjöti á dag.
Ljón þurfa 4–5 kíló. Þar að auki er
mikil þörf á aðstoð dýralækna og
mikilvægt að dýrin fái
lyf og verði bólusett.
Ástandið er ekki að-
eins slæmt fyrir dýrin
en Sameinuðu þjóðirn-
ar áætla að 21,2 millj-
ónir manna í Jemen,
alls 82 prósent íbúa-
fjöldans þar, þurfi aðstoð vegna
stríðsátaka þar, en landið er eitt
óstöðugasta ríki heims. n
Dýrin svelta í
dauðagarðinum
n Skelfilegar aðstæður í dýragarði í Yemen n Dýr þjást
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Skelfilegar aðstæður Hér má sjá ljón sem hefur nánast soltið.„Björgunar-
aðgerðir
eru hafnar.
Hræ Blettatígurinn hafði þurft að bjarga
sér sjálfur.