Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Page 19
Helgarblað 19.–22. febrúar 2016 Umræða Stjórnmál 19
Bylgja óánægjuafla ógnar gamalgrónu
valdakerfi Evrópu
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket
Þá voru gyðingar
helsta ógnin, nú
er það íslam
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði
Sterkur samhljómur er með evrópskum hægriflokkum nútímans og fasískum
hægriflokkum á fyrri helmingi 20. aldar. Þannig má líta á Front National í Frakklandi
sem arftaka Action Française hreyfingarinnar sem varð til í lok 19. aldar, og þeirra
stjórnmálaafla sem stóðu að baki Vichy-
stjórninni, leppstjórn nasista, í Frakklandi
á tímum síðari heimsstyrjaldar.
Það sem helst einkenndi hugmynda-
fræði þessara hreyfinga var öfgakennd
þjóðernisstefna, gyðingahatur,
útlendingahatur, sterk vantrú á
einstaklingshyggju og fylgispekt
við leiðtoga. Slíkir flokkar náðu
verulegum vinsældum víða í
Evrópu á tímum kreppunn-
ar miklu, ekki síst á Ítalíu
og Austur-Evrópu – og
líta má á Nasistaflokk-
inn í Þýskalandi sem
eina birtingarmynd þessara fasísku hreyfinga.
Fasisminn beið hugmyndafræðilegt skipbrot í átökum
síð- ari heimsstyrjaldar, ekki síst eftir að fólk gerði
sér fulla grein fyrir þeim hörmungum sem
þessi stjórnmálastefna, í sínum mörgu
birtingarmyndum, hafði leitt af sér. Það
þýðir þó ekki að þau sjónarmið sem
þessi flokkar héldu á loft hafi tapað
öllu fylgi eða hljómgrunni. Þannig
hefur vaxandi alþjóðavæðing á síð-
ustu áratugum, aukin samþætting
Evrópu, innflutn-
ingur fólks
frá öðrum
heimsálfum
og andúð
á mú-
hameðstrúarfólki
dregið þessar pólitísku
tilfinningar fram á ný.
Vissulega eru aðstæður mjög ólíkar nú
frá því sem var á fyrri hluta síðustu aldar
og baráttumálin því önnur. Tengslin á milli
fasistaflokka fortíðar og þjóðernisöfgaflokka nútímans eru líka yfirleitt
óbein. Báðar hreyfingarnar spretta þó úr svipuðum jarðvegi og höfða til
svipaðra hugmynda: útlendingahaturs, andúðar gegn öðrum trúarbrögðum
en kristni (þá þótti gyðingdómur helsta ógnin, en nú er það íslam), og ótta
við hnignun þjóðlegra gilda. Erfitt er spá fyrir um hver þróunin verður á næstu
árum, en reynsla sögunnar kennir okkur að taka þessa flokka alvarlega.
Ungverjaland – Jobbik
Sæti á þingi: 24/199
Sæti á Evrópuþingi: 3/21
Formaður: Gábor Vona
Jobbik vann mikinn sigur í þingkosningunum 2014 og er þriðji
stærsti flokkur Ungverjalands. Flokknum er lýst sem „róttæk-
um þjóðernisflokki“, en miðað við orð og gjörðir flokksmanna er
ekki óvarlegt að kalla hann fasistaflokk. Jobbik boðar róttæk
kristin gildi og berst gegn alþjóðavæðingu, Evrópusamstarfi, sí-
onisma og alþjóðakapítalisma. Færa má rök fyrir því að Fidesz,
flokkur forsætisráðherrans Viktors Orbán sem hefur tekið
síðustu tvennar kosningar með trompi, eigi heima í þessari
upptalningu líka. Enda orðræða hans og aðgerðir gegn flótta-
mönnum mjög í takt við sambærilega hægri popúlistaflokka.
Grikkland – Syriza
Sæti á þingi: 144/300
Sæti á Evrópuþingi: 4/21
Formaður: Alexis Tsipras
Það var enginn skortur á andkerfisflokkum í kjölfar efna-
hagshrunsins í Grikklandi og hafa fasistarnir og fantarnir
í Gullinni Dögun notið nokkurrar hylli og náðu þeir til
að mynda 18 mönnum á þing í síðari þingkosningunum
í fyrra. En sá andkerfisflokkur sem mestrar hylli hefur
notið er róttæki vinstri flokkurinn Syriza sem nú heldur
um stjórnartaumana í Grikklandi. Andstaðan við harðar
niðurskurðaraðgerðir fleytti flokknum langt en heldur
hefur dregið úr róttækni samhliða auknum áhrifum.
Svíþjóð – Svíþjóðardemókratar
Sæti á þingi: 49/349
Sæti á Evrópuþingi: 2/20
Formaður: Jimmie Åkesson
Svíþjóðardemókratar hafa verið í mikilli uppsveiflu undanfarin ár.
Flokkurinn var stofnaður 1988 en var löngum jaðarflokkur þar til
hann fór að sanka að sér fylgi í sveitastjórnarkosningum 2006. Í
síðustu þingkosningum fékk flokkurinn 14 prósent þingsæta. Rætur
flokksins liggja í fasisahreyfingum 9. áratugarins og hefur flokkurinn
ítrekað verið bendlaður við öfgahópa og útlendingahatur þótt
flokksmenn sverji allt slíkt af sér. Fylgi flokksins í könnunum hefur
aukist all verulega samhliða auknum straumi flóttamanna til Sví-
þjóðar, enda Svíþjóðardemókratar rekið harða innflytjendastefnu.
Fjölmiðlar meinuðu lengi vel flokknum að kaupa auglýsingar en nú
hafa allir miðlar, að Expressen undanskildu, látið af þeirri stefnu.
Pólland – Kukiz´15
Sæti í neðri deild: 40/460
Formaður: Pawel Kukiz
Kukiz´15, sem reyndar er ekki skráður stjórnmálaflokk-
ur, er afkvæmi Pawels Kukuz, fyrrum pönksöngvara
sem bauð sig fram til forseta í fyrra og varð þriðji í
kjörinu. Hreyfingin nýtur mikillar hylli á meðal ungra
kjósenda, en helsta kosningamál hennar var að breyta
kosningakerfinu með því að taka upp einmenningskjör-
dæmi í stað hlutfallskosningar. Stefnuskráin er að öðru
leyti í anda hægri sinnaðra popúlistaflokka í Evrópu.
Finnland – Sannir Finnar
Sæti á þingi: 38/200
Sæti á Evrópuþingi: 2/13
Formaður: Timo Soini
Undarleg samsuða af vinstri efnahagsstefnu, íhaldssöm-
um félagslegum gildum og stækri þjóðernishyggju
hafa ruglað fræðimenn í ríminu því þeir vita ekki alveg
hvernig þeir eiga að stimpla Sanna Finna, en flestir eru
þó sammála um að þeir séu popúlistar sem ala á andúð í
garð innflytjenda. Sem aflar þeim vinsælda því þeir fengu
tæplega 18 prósent atkvæða í síðustu þingkosningum og
eru næst stærsti flokkur Finnlands í augnablikinu og það
skilaði þeim í ríkisstjórn. Sjálfir kalla þeir sig miðjumenn.
„
Reynsla
sögunnar
kennir
okkur að
taka þessa
flokka
alvarlega
Austurríki – Frelsisflokkurinn
Þingmenn í þjóðarráði: 38/183
Þingmenn í sambandsráði: 13/61
Þingmenn á Evrópuþingi: 4/18
Formaður: Heinz-Christian Strache
Frelsisflokkurinn (FPÖ) er einn rótgrónasti hægri popúlista-
flokkur Evrópu. Hann tók skarpa hægri beygju þegar hinn um-
deildi Jörg Haider tók við formennsku á 9. áratugnum og komst
til áhrifa eftir stórsigur í kosningunum 1999 þegar hann fékk
26,9 prósent atkvæða. Flokknum gekk herfilega í ríkisstjórn og
fylgið hrundi af honum, en hefur náð vopnum eftir að Strache
tók við. Andúð á útlendingum hefur loðað við flokkinn sem talar
mjög gegn innflytjendum, einkum frá löndum múslima. FPÖ
hefur efasemdir í garð ESB og tekur harða afstöðu með Ísrael.