Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Page 28
Helgarblað 19.–22. febrúar 201624 Fólk Viðtal
heild þarf að minnka neysluna, fara
frá þessari efnis- og neysluhyggju.
Bæði af umhverfisástæðum og til
að geta jafnað kjörin á milli okkar
og þeirra sem annars munu sækja
í það sem við höfum of mikið af. Ef
við ætlum að taka á flóttamanna-
vandanum þá eigum við að hætta
að eyða í óþarfa. Hætta að kaupa
fleiri nærbuxur. Ég til dæmis tók
með mér tíu nærbuxur og þegar ég
ætlaði að setja þær aftur inn í skáp
heima þá voru þar fyrir tuttugu eða
þrjátíu nærbuxur. Við eigum ekki
bara að tæma skápana reglulega og
gefa Rauða krossinum eða í flótta-
mannasafnanir, við eigum frekar að
hætta að kaupa og eyða of miklu,“
segir Björk.
Smygluðu veikum manni yfir
landamærin
„Ég mæli með að sem flestir fari til
Palestínu. Þar upplifir maður það
líka hvað það þýðir að vera frjáls og
geta ferðast. Sem skiptir svo miklu
máli.“ Björk upplifði einmitt for-
réttindi sín sem frjáls manneskja
mjög sterkt þegar hún aðstoðaði
Palestínumann við að sækja sér
læknisaðstoð hinum megin við að-
skilnaðarmúrinn. En það var eitt af
því sem hún tók að sér að gera sem
sjálfboðaliði.
„Ísrael ber alla ábyrgð á því að
veita heilbrigðisþjónustu til þeirra
sem þeir hafa hertekið, þannig eru
alþjóðalög. Það er því ekki af góð-
mennsku að öll flóknari heilbrigð-
isþjónusta er veitt á sjúkrahús-
um í Ísrael. Palestínsk sjúkrahús
hafa ekki bolmagn til þess að veita
hana,“ útskýrir Björk, en Palest-
ínumaðurinn sem hún smyglaði
yfir landamæri, ásamt dönskum
sjálfboðaliða, hafði gengist undir
krabbameinsmeðferð á ísraelsku
sjúkrahúsi. Hann var laus við
meinið en þurfti að vera undir eft-
irliti hjá lækni í Ísrael. Hann fékk
hins vegar ekki leyfi fyrir því að fara
yfir til Ísraels á þeim forsendum,
þar sem hann taldist vera læknað-
ur. „Hann fékk ekki að fara yfir þrátt
fyrir ítrekaðar skriflegar beiðnir
lækna, en það er ekki heilbrigðis-
menntað fólk sem metur það hvort
einstaklingur kemst yfir landamær-
in. Það eru stofnanir sem segja bara
nei ef maður er ekki með lífshættu-
legan sjúkdóm, ef maður þarf bara
eftirlit. Þess vegna fórum við Jussi,
danski sjálfboðaliðinn, og leigðum
okkur bíl með gulri númeraplötu.
Já, bílnúmeraplöturnar segja heil-
mikið um aðskilnaðinn. Ísraelar
keyra um á gulum númeraplötum
og slíkir bílar mega keyra til Palest-
ínu. Palestínumenn keyra hins
vegar um á hvítum númeraplötum
og mega ekki keyra yfir til Ísraels.
Og við sem erum frjáls gátum leigt
okkur bíl í Ísrael, keyrt til Palestínu
og smyglað Palestínumanni yfir.“
Þurfti í aðgerð
Björk segir þau hafa tekið töluverða
áhættu með smyglinu. Ef þau hefðu
verið tekin á landamærastöðinni
hefði þeim væntanlega verið vís-
að úr landi og ekki fengið að koma
aftur næstu tíu árin. Hún segir þó
nokkuð um það að sjálfboðalið-
ar fái slíka brottvísun, þrátt fyrir að
þeir taki einungis þátt í friðsömum
mótmælum. „Stundum tekur mað-
ur samt áhættu því það er þess virði
og í þessu tilfelli þá reyndist það svo
sannarlega þess virði því maðurinn
þurfti á aðgerð að halda þegar hann
kom yfir. Hann er mjög veikur. En
það var gaman að geta hjálpað,“
segir Björk og sýnir blaðamanni
myndir af umræddum manni. Hún
hefur verið í sambandi við hann
eftir að hún kom heim til Íslands og
veit því að hann er enn á lífi.
„Á sumum landamærastöðvum
hleypa þeir fólki á gulum númerum
í gegn án sérstakrar skoðunar, sér-
staklega ef þeir sjá að um vestræna
túrista er að ræða, eða Ísraela sem
þeir þekkja. Í þessu tilfelli þá fyllt-
um við Jussi vel upp í framrúðuna
á lítilli Nissan Micra-bifreið, þannig
að landamæraverðirnir sáu ekki
Palestínumanninn í aftursætinu.
Hann hélt fyrir andlitið og gerði sig
ósýnilegan.“
Vill nýtt afl í pólitíkinni
En nú þegar Björk er komin aftur
heim er ekki úr vegi að fara aðeins
með henni ofan í saumana á póli-
tíkinni á Íslandi, sérstaklega stöðu
Samfylkingarinnar, sem er ekki
kræsileg um þessar mundir.
„Ég vil sjá nýtt
afl í pólitíkinni,
helst leitt áfram
af Katrínu Jakobs-
dóttur. Eða einhverj-
um öðrum. Það þarf
ekki að vera einhver
sem er í pólitík-
inni núna. Samfylk-
ingin hefur gríðar-
lega góða stefnu í
velferðarmálum,
jöfnun lífskjara,
umhverfisvernd
og alþjóðamálum,
sem þarf að standa
vörð um. Þetta er
stefna sem mjög
margir eru sam-
mála um. Það er
í raun auðvelt að
selja stefnu Sam-
fylkingarinnar en það er hræðilega
erfitt að selja Samfylkinguna sjálfa.
Þess vegna vil ég sjá nýtt afl. Það
eru svo margir sammála; Vinstri
grænir, Björt framtíð, við og þorri
almennings. Að minnsta kosti þorri
launafólks. En það væri samt rangt
að fara að sameina flokkana, frekar
að fá inn nýtt og óháð fólk sem vill
gera eitthvað með þessi stefnumál.
Ef við höfum gert eitthvað rangt og
erum ekki á réttri línu þá verður al-
menningur að taka af skarið.“
Björk segir vandamálið þó að
miklu leyti vera að almenning-
ur vilji lítið vita af stjórnmálum og
sé í raun óvirkur. „Það er svo vond
staða ef fólk lítur á stjórnmálin sem
vond öfl og telur að stjórnmála-
menn séu hræðilegir. En hvað eig-
um við að gera? Við viljum lýðræði
og höfum ekkert annað fyrirkomu-
lag,“ segir Björk ákveðin. Þrátt fyrir
að hafa dregið sig til hlés í pólitík-
inni hefur hún enn mikinn áhuga
og sterkar skoðanir, enda situr hún
í framkvæmdastjórn Samfylkingar-
innar. Starfar í pólitíkinni bakvið
tjöldin.
„Ég er góð“
„Mér finnst pólitíkin skipta svo
miklu máli. En ég hef fundið vel
hvernig þetta almenna viðhorf
gagnvart pólitíkinni grefur und-
an manni sjálfum. Það er ekkert
gaman að vera ein af þessu vonda
fólki. Ég er góð. Mér finnst ég vera
góð manneskja og kannast ekki við
að hafa verið spillt eða eitthvað
slíkt. Maður vill þá ekki vera hluti
af þeirri ímynd. En auðvitað gerist
stundum eitthvað nálægt manni
sem kalla má spillingu. Hún þrífst
samt aðallega þegar stjórnmála-
menn kunna ekki að segja nei og
reyna að finna leiðir að já-inu þrátt
fyrir að vita að það sé rangt. En við
setjum reglur og lög til að reyna
að koma í veg fyrir það. Stundum
gerum við reyndar of mikið af því.
Þannig hefur orðið til stofnana-
væðing í stjórnmálunum sem fólk
vill heldur ekki sjá. Það er vandlif-
að og stundum erfitt að vera hluti
af Samfylkingunni vegna þessa.
Flokkurinn á meira regluverk en
flesta grunar, en það er til að koma
í veg fyrir geðþóttaákvarðanir, fyrir-
greiðslu og óundirbúnar ákvarðan-
ir. Það hefur orðið okkur til dæm-
is stórmál að geta haldið landsfund
út af stöðu mála; allri umræðunni
og neikvæðninni. Það er nefnilega
í lögum flokksins að halda lands-
fund annað hvert ár – kannski oft-
ar ef það eru kosningar. En það er
flókið ferli að boða til slíkra funda
utan þess tíma,“ segir Björk og vís-
ar þar til þeirrar ákvörðunar fram-
kvæmdastjórnarinnar að flýta
landsfundi flokksins fram í júní á
þessu ári.
Tiltrúin er farin
Henni þykir hin neikvæða um-
ræða í garð Samfylkingarinnar
að mörgu leyti ósanngjörn, enda
hafi flokkurinn staðið sig vel í því
að betrumbæta sig frá hruni. Til
dæmis með starfi umbótanefndar
og sáttanefnd, það hafi verið sett-
ar siðareglur og margar umbóta-
tillögur samþykktar. „Það er búið
að gera þetta allt, en það skiptir
engu máli, því tiltrúin er farin. Fólk
hefur heldur ekki áhuga á að heyra
af þessu. Það eru engin hlustun-
arskilyrði úti í samfélaginu. Það er
kannski einn helsti vandi Samfylk-
ingarinnar,“ segir Björk. Hún fyllist
hálfgerðu vonleysi þegar hún ræð-
ir þetta, enda erfitt að vekja athygli
á góðum málum þegar enginn vill
hlusta.
„Mér finnst Árni Páll mjög góð-
ur drengur og frambærilegur. Ég
hef stutt hann, en hann virðist
hafa misst tiltrú fólksins. Hann er
skaddaður af störfum sínum í rík-
isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur,
þar sem hann var í erfiðri stöðu,
en taldi sig gera rétt á sínum tíma.
Það er svo oft sem eitthvað er gert
á ákveðnum tíma sem stenst ekki
mat almennings. En það er svo aft-
ur margt sem stenst ekki almenn-
ingsálitið sem mun kannski stand-
ast söguskoðun. Það tvennt þarf
ekki að fara saman. Ég er til dæmis
alveg viss um það að ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur mun stand-
ast söguskoðun.“
Fólk til í að gefa valdinu lausan
tauminn
En nú þegar landsfundur Samfylk-
ingarinnar hefur verið boðaður, er
ekki hægt annað en að spyrja Björk
hvern hún vill sjá sem næsta for-
mann.
„Ég held að það væri gott fyrir
Samfylkinguna ef það væri einhver
utan þingflokksins. Það er erfitt að
fá utanaðkomandi fólk, en í okkar
baklandi er gríðarlega öflugt fólk.
En af hverju ætti maður að bjóða
sig fram í stjórnmálum vitandi að
fólk mun tala mann niður og ætla
mann einhvern annan en mað-
ur er?“ spyr Björk réttilega. Hún er
komin í ham og heldur áfram: „Svo
er mjög merkilegt að fólk er tilbúið
að setja trú sína á fólk sem það veit
ekki einu sinni hvað stendur fyrir.
Eins og umræðan sem er að eiga
sér stað um það hvort Píratar séu
frjálshyggju- eða félagshyggjufólk.
Flokkur sem er með 40 prósenta
fylgi. Það er mjög merkilegt því það
skiptir svo miklu máli fyrir hvað
stjórnmálaöflin standa. Það skipt-
ir auðvitað máli hverjir stjórna.
Frjálshyggjuflokkur er svolítið eins
og þeir sem eru nú við völd, sem
eru ekki til í að beita skattakerfinu
til að jafna lífskjörin. Félagshyggju-
flokkarnir eru til þess. Það er því
merkilegt hvernig fólk er tilbúið, í
óánægju sinni og blekktri tiltrú á
því hvað stjórnmálin eru vond, að
gefa valdinu alveg lausan tauminn.
Að það megi bara gera hvað sem
er.“
Umræða byggð á fáfræði
Þrátt fyrir að Björk sé ekki lengur í
borgarstjórn getur umræða tengd
störfum fyrrverandi kollega vak-
ið hjá henni reiði. Hún nefnir sem
dæmi umræðu um yfirvofandi
niðurskurð í sérkennslu grunn-
skólanna sem hún segir byggjast á
fáfræði. „Það er talað um að svona
niðurskurð þurfi að skoða vel. Auð-
vitað er búið að skoða þetta vel.
Við erum bæði með pólitíkusa og
embættismenn sem eru búnir að
skoða þetta virkilega vel og sjá að
þarna er hægt að hagræða. Það eru
ekki pólitíkusarnir sem finna upp á
einhverju vondu. Það hefur orðið
gríðarleg aukning útgjalda í þess-
um málaflokki síðustu ár og stund-
Klárar meistaranám Björk er að klára síðustu einingarnar sem hún á eftir í félagsráðgjöfinni. Svo sér hún fyrir sér að vinna við fagið, líkt
og hún gerði áður. Mynd ÞorMar Vignir gUnnarSSon „Ég vil sjá nýtt
afl í pólitíkinni,
helst leitt áfram af
Katrínu Jakobsdóttur.
Táragas Herinn hikar ekki við að beita
táragasi og skotvopnum á mótmælendur.
Björk lenti í því að mótmælendur voru
skotnir steinsnar frá henni.