Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Qupperneq 30
Helgarblað 19.–22. febrúar 201626 Sport
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Furðulegustu
afsakanir fótboltans
n Joleon Lescott ekki sá eini sem boðið hefur upp á skrýtnar skýringar
Þ
að ætlaði allt um koll að
keyra þegar Joleon Lescott,
varnarmaður Aston Villa,
birti mynd af Mercedes-
Benz lúxussportbíl á Twitt-
er-síðu sinni andartökum eftir 6-0
tap liðsins gegn Liverpool um síð-
ustu helgi. Stuðningsmenn Villa létu
enska miðvörðinn hafa það óþvegið
fyrir taktleysið en Lescott var fljótur
til svara og bauð upp á eina furðu-
legustu afsökun í manna minnum.
Í yfirlýsingu sagði Lescott að hann
hefði „fyrir slysni“ birt myndina á
Twitter, meðan hann var að keyra,
með símann í vasanum. Vöktu skýr-
ingar Lescotts ekki minni athygli en
upphaflega færslan og hefur ver-
ið gert stólpagrín að honum síðan.
En Lescott er ekki eini knattspyrnu-
maðurinn til að fela sig á bak við mis-
gáfulega afsökun á axarskafti sínu.
Knattspyrnutímaritið FourFourTwo
tók saman brot af þeim bestu. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Brolin í bullinu Sænski
markahrókurinn Tomas Brolin átti ekki sjö
dagana sæla hjá Leeds á Englandi. Hann var
á leið í flug til að taka þátt í undirbúnings-
tímabili félagsins í júní 1997 þegar hann
keyrði á fugl með þeim afleiðingum að
framrúða bílsins mölbrotnaði. Atvikið
hræddi líftóruna úr Brolin sem treysti sér
ekki til að halda ferðalaginu áfram. George
Graham, stjóra Leeds, var ekki skemmt.
Brolin yfirgaf Leeds síðar um veturinn eftir
ótal fleiri vandamál og var árið 2003 kosinn
einn versti leikmaðurinn í sögu félagsins af
stuðningsmönnum Leeds.
Allt fjölmiðlum að
kenna Það er almennt talið á ábyrgð
stjórnarformanna knattspyrnufélaga að ráða
og reka stjóra. En Rupert Lowe, stjórnarfor-
maður Southampton, ætlaði sér ekki að vera
blóraböggull þegar hann rak Paul Sturrock
eftir aðeins tvo leiki tímabilið 2004/05. Hann
kenndi „stanslausu flæði neikvæðrar og
ósanngjarnrar umfjöllunar fjölmiðla“ um eigin
ákvörðun. „Fólkið sem ber ábyrgð á því að
halda uppi þessum áróðri ætti að líta í eigin
barm,“ sagði Lowe, alveg staurblindur.
Blindaður af
skallablett
Chris Mooney,
fyrrverandi markvörður
Rotherham, hafði ansi
sérstaka afsökun á því
þegar hann lét laflaust
skot leka milli fóta sér og
í netið eitt sinn. Hann
kvaðst hafa blindast af
sólinni sem skein af
skallabletti á höfði miðvarðarins
Nick Smith. Auðvitað.
Of mikið loft í
boltunum Kenny Dalglish,
þáverandi stjóri Newcastle, var að vonum
svekktur eftir að sterkt lið hans náði aðeins
1-1 jafntefli gegn utandeildarliði
Stevenage í þriðju umferð
FA-bikarsins á sínum tíma.
Dalglish skýrði lánleysi
stjörnuframherjans Alans
Shearer og félaga fyrir
framan markið með því að
„boltinn hafi skoppað of
mikið“ og átti þar við að of
mikið loft hefði verið í
tuðrunni. Það mátti svo
sem reyna, Kenny.
Ætti ekki að spila með
gleraugu Joop van Daele, varnarmaður
Feyenoord, skartaði jafnan flennistórum
gleraugum þegar hann lék á sjöunda áratug síðustu
aldar. Og ekki sérstökum íþróttagleraugum í anda
Edgars Davids eins og margir þekkja, heldur stórum,
hefðbundnum hversdagsgleraugum með
hnausþykku gleri. Það var því ljúfsár reynsla þegar
hann skoraði sigurmarkið í sigri Feyenoord gegn
Estudiantes í úrslitaleik Intercontinental Cup árið
1970. Andstæðingurinn Oscar Malbernat stappaði á
og mölbraut gleraugu hans og útskýrði athæfið svo:
„Þú ættir ekki að spila fótbolta með gleraugu. Ekki í
Suður-Ameríku.“
Ferguson fékk í
magann Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, slapp með skrekkinn
þegar hann var tekinn fyrir of hraðan akstur
fyrir utan Manchester árið 1999. Fyrir dómara
sagði Ferguson að um neyðartilfelli hafi verið
að ræða sökum niðurgangs sem hann var að
glíma við. Hann þurfti því að kitla pinnann
áður en honum yrði brátt í brók. „Og þegar ég
kom á M602-hraðbrautina fór ég að finna
fyrir þessum magakrampa aftur,“ sagði
Ferguson sem var að sjálfsögðu sýknaður.
Ekki þessi læti! Adrian
Bradnam, framherji Sutton United, hafði
svör á reiðum höndum þegar hann var
spurður út í dauðafæri sem hann misnotaði
fyrir smáliðið. Þótt það hafi sjaldnast verið
mikið vandamál hjá Sutton, þá sagði Bradnam
að áhorfendur hefðu verið of háværir og því hefði
honum brugðist bogalistin.
Ítalir í óþægilegum sokkum Ítölsku landsliðsmennirnir
Francesco Totti og Christian Panucci kvörtuðu sáran eftir markalaust jafntefli gegn
Danmörku á EM 2004 í 34 stiga hita í Portúgal. „Þetta var eins og vera með
fæturna í sjóðandi sandi,“ sagði Totti og Panucci bætti við: „Þræðirnir í
sokkunum eru allt of grófir.“ Varnarjaxlinn Alessandro Nesta gaf þó lítið
fyrir vælið í félögunum. „Fólk á eftir að halda að við séum vitleysingar.
Totti er svo góður að hann gæti spilað berfættur.“
Of frægur til að
missa prófið Í febrúar
2015 átti að svipta fyrrverandi
knattspyrnumanninn og sparkspek-
inginn Robbie Savage bílprófinu fyrir
ofsaakstur. Hann slapp þó með sekt
og punkta eftir að lögmaðurinn hans
hélt því fram að miðjumaðurinn
fyrrverandi yrði „reglulega fyrir
aðkasti á almannafæri“ og gæti því
ekki verið án bílprófs og notað
almenningssamgöngur.
Ekkert djók fyrir Stoke Sömu sögu má
segja af knattspyrnustjóranum Tony Pulis sem er greinilega
mikilvægur maður. Árið 2012, þegar hann þjálfaði Stoke, var hann
sömuleiðis tekinn fyrir of hraðan akstur en slapp með punkta og sekt.
Ástæðan? Pulis hélt því fram að hann gæti ekki notast við einkabíl-
stjóra vegna þess að hann þyrfti að taka svo mörg viðkvæm
trúnaðarsímtöl, sem hann vildi ekki að yrðu hleruð af bílstjórum.
Og til að bæta um betur benti lögmaður Pulis réttvísinni á að þessi
símtöl milli Pulis og stjórnarformanns Stoke City væru lykilþáttur
í velgengni félagsins og veru þess í ensku úrvalsdeildinni. Það
hefði komið Stoke-on-Trent á kortið og gert kraftaverk fyrir
efnahagslífið á svæðinu. „Fjöldi fyrirtækja treystir á Stoke City
og þessi fyrirtæki myndu skaðast ef félagið félli um deild.
Fólkið í Stoke-on-Trent myndi skaðast ef herra Pulis missti
ökuréttindi sín og starfið,“ sagði lögmaðurinn lævís og
bjargaði Pulis og efnahagskerfi Stoke.