Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Qupperneq 34
Helgarblað 19.–22. febrúar 201630 Lífsstíll
Blundurinn getur
gert kraftaverk
n Veldu blund sem hentar þér n Eykur afköst og bætir minnið n Þurfum minnst 8 tíma nætursvefn
Þ
að eru líklega ekki margir
í nútímaþjóðfélagi sem ná
8 til 10 tíma nætursvefni
að staðaldri, sem er þó sá
svefn sem venjuleg mann-
eskja þarf til að vera besta útgáfan
af sjálfri sér. Í raun eru aðeins 1 til
3 prósent mannkyns sem komast
upp með það að sofa minna en 8
tíma á nóttunni og vakna úthvíld.
Langvarandi svefnleysi fylgja
ýmsir kvillar, sumir alvarlegri en
aðrir. Þeir sem sofa of lítið eiga til
að mynda frekar á hættu að deyja
fyrir aldur fram. Og flest þekkj-
um við þá líkamlegu vanlíðan sem
fylgir því að fá ekki nægan svefn.
Þá hefur svefnleysi einnig áhrif á
útlitið og gáfurnar. Skýrt og skorin-
ort, þá er svefnleysi ekki bara bráð-
drepandi, heldur gerir það okkur
bæði ljót og heimsk. Það viljum við
að sjálfsögðu koma í veg fyrir.
Hvað er til ráða?
En hvað eigum við að gera ef við
fáum aldrei nægan nætursvefn?
Lausnin er augljósari en mann
grunar. Hún felst nefnilega í að
blunda. Ekki segja að þú hafir ekki
tíma – þú hefur alltaf nokkrar mín-
útur á hverjum degi til að lygna
aftur augunum og gleyma stað og
stund. Sumir hafa vissulega meiri
tíma en aðrir og þá er um að gera
að nýta hann. Stuttur blundur get-
ur skipt sköpum. Þú getur sagt yf-
irmanni þínum það þegar hann
kemur að þér sofandi við skrif-
borðið.
Rannsóknir á vegum Nasa hafa
nefnilega sýnt fram á að blundur
eykur afköst. Gerðar voru tilraunir
með að láta hóp flugmanna blunda
í 25 mínútur og niðurstöðurnar
leiddu í ljós að eftir blundinn var
viðbragðsflýtir þeirra 35 prósent
meiri og athyglin tvöfaldaðist. Þá
mun vera nóg að taka 15 mínútna
blund til að skerpa á vitsmunalegri
getu.
Hvernig blundur hentar?
En þá er það stóra spurningin.
Hvernig er best að blunda til að
fá sem mest út úr því? Hægt er að
notast við nokkrar aðferðir sem all-
ar hafa verið vísindalega prófaðar
með einum eða öðrum hætti og
þykja sýna fram á árangur.
n Skortur á viðbragðsflýti
og athygli
Ef þú finnur fyrir skorti á þessu
tvennu, fáðu þér þá 10 til 20 mín-
útna blund. Það ætti að duga þér
sem eldsneyti í að minnsta kosti
tvo tíma. Svona stuttur blundur
getur jafnframt stuðlað að lægri
blóðþrýstingi.
n Heilinn er ekki að virka
Þegar staðan er þannig þá er best
að taka góðan blund. Allt upp í
klukkutíma. Þá færðu ávinninginn
af stutta blundinum ásamt því að
bæta minnið og lærdómsgetuna.
Það er þó gott að hafa í huga að
fólk getur verið örlítið ringlað eftir
klukkutíma blund.
n Þú þarft allan pakkann
Ef þú hefur tíma, taktu þá 90 mín-
útna blund. Þannig nær heilinn að
fullkomna svefnþörfina, með öll-
um þeim ávinningi sem því fylgir.
Eftir blundinn upplifirðu meiri
viðbragðsflýti, minnið batnar og
hugsunin verður meira skapandi
ásamt því að afköstin aukast. Og
með því að blunda í 90 mínútur
kemur fólk í veg fyrir að það verði
ringlað.
n Þú veist ekki hvað þú þarft
Ef þú áttar þig ekki alveg á því
hvaða gerð af blundi hentar þér
best, taktu þá bara einn stuttan. 10
á að vera töfratala í þessum efnum.
10 mínútna blundur þykir betri en
5 mínútna og jafnvel 30 mínútna.
n Þú hefur engan tíma
Enginn blundur er í raun of
stuttur. Rannsóknir hafa sýnt fram
á að ávinningur hlýst jafnvel af
nokkurra mínútna blundi. Þó það
sé ekki nema bara til að lækka
blóðþrýstinginn aðeins. n
Gott að hafa í huga
Best er að fá sér blund sex eða sjö
tímum eftir að fólk fer á fætur.
Ef þú átt erfitt með að festa svefn,
reyndu þá að hugsa jákvæðar hugsanir.
Samt ekki of spennandi. Gott er að hafa
í huga að það skilar aldrei árangri að
rembast of mikið við að sofna.
Ef þú hefur áhyggjur af því að sofa
of lengi, skelltu þá í þig einum kaffibolla
áður en þú leggst í rúmið. Hann byrjar að
hafa áhrif eftir um 25 mínútur.
Taktu blund Nokkurra mínútna
blundur yfir daginn getur skipt
sköpum hvað varðar afköst.
Verið alltaf velkomin í Kolaportið!
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17.
Næg bílastæði við
Kolaportið
Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína!
Kolaportið
er umkringt af
bílastæðahúsum.
Vesturgata · Mjóstræti
Fjöldi stæða 106
Ráðhúsið · Tjarnargata 11
Fjöldi stæða 130
Traðarkot · Hverfisgata 20
Fjöldi stæða 270
Kolaportið · Kalkofnsvegur 1
Fjöldi stæða 270
K
V
IK
A