Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 30
Fyrirtæki sem runnu úr höndum Sambands íslenskra samvinnu­félaga (SÍS) fyrir aldar­fjórðungi eða meira hafa verið áberandi á forsíðum blaðanna síðustu daga. Ástæðan er sú að þau má finna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um þátttöku þýska bank­ ans Hauck & Aufhäuser í einka­ væðingu Búnaðarbankans árið 2003. Niðurstaða hennar var að athafnamaðurinn Ólafur Ólafsson hefði þá staðið fyrir miklum blekk­ ingarleik, en hann var ráðinn for­ stjóri Samskipa eftir að SÍS endaði í gjörgæslu Landsbankans í byrjun tíunda áratugarins. Í kjölfarið tók Ólafur þátt í viðskiptum með hlut í Samskipum sem hefur verið líkt við Búnaðarbankafléttuna. Forstjóri eftir fall SÍS SÍS, eða Sambandið eins og það var kallað í daglegu tali, var um ára­ tugaskeið stærsta fyrirtæki lands­ ins og mikill áhrifavaldur í íslensku atvinnulífi. Samvinnuhreyfingin, þar sem kaupfélögin voru burð­ arásinn sem veldið byggði á, lenti aftur á móti í miklum erfiðleikum á sjöunda áratugnum og þegar komið var fram á þann níunda var útflutn­ ingur á sjávarafurðum meginundir­ staðan í rekstri SÍS. Endalok Sambandsins í byrjun 10. áratugarins leiddu til þess að sjávarafurðadeildinni, besta bit­ anum úr eignasafni SÍS, var skipt í smærri einingar. Landsbankinn tók þá hluta hennar eða skipadeildina yfir sem skömmu áður hafði verið færð yfir í nýstofnaða hluta­ félagið Samskip. Ólafur Ólafsson, þá nýhættur sem forstjóri Álafoss, ullariðnaðardeildar Sambandsins sem fór í þrot árið 1991, var í kjöl­ farið ráðinn forstjóri Samskipa. Samkvæmt fjölmiðlaumfjöllun þess tíma, um aðkomu Ólafs að Sam­ skipum, fékk Sverrir Hermannsson, þáverandi bankastjóri Landsbank­ ans, hann til að taka við skipadeild­ inni. Ólafur var kaupfélagsstjórason­ ur úr Borgarnesi, þekkti rekstur SÍS vel og bankinn var búinn að eignast 85 prósenta hlut í Samskipum. Árið 1994 fóru nýir hluthafar inn í Sam­ skip og var þýska skipafyrirtækið Bruno Bisch off í þeim hópi ásamt VÍS, Olíufélagi Íslands (ESSO), Sam­ vinnulífeyrissjóðnum og fleirum. Í umfjöllun Frjálsrar verslunar í febrúar 1996 var fullyrt að Ólafur og Landsbankinn hefðu „plottað“ saman um söluna með þeim for­ merkjum að bankinn og þáverandi forstjóri Samskipa hefðu engu að síður haldið utan um meirihlut­ ann í félaginu og stýrt því eins og þeim þóknaðist. Bruno Bisch­ off átti í Samskipum í gegnum helmingshlut sinn í eignar­ haldsfélaginu NAT, North Atlantic Transport GmbH, sem átti aftur 29 prósent í Samskipum. Nokkru síðar var upplýst að Ólafur átti helming í því félagi. Sagnfræðingurinn Björn Jón Bragason hefur bent á, fyrst í tímariti Sögufélagsins árið 2011, að aðkoma Hauck & Auf­ häuser að Búnaðarbank­ anum minni um margt á fjárfest­ ingu Bruno Bischoff í Samskipum. Í báðum tilvikunum, líkt og í Al Thani­málinu þar sem Ólafur var dæmdur sekur fyrir markaðsmis­ notkun, hafi Íslendingar verið blekktir um aðkomu útlendinga að kaupum á stórum hlut í annars vegar Samskipum og hins vegar Búnaðarbankanum. Ólafur náði síðar yfirhöndinni í Samskipum, er aðaleigandi skipafélagsins í dag, og hefur byggt úr því stórt og mikið evrópskt viðskiptaveldi. Tók þátt í kaupunum Tryggingafélag SÍS, Samvinnutrygg­ ingar, kemur einnig ítrekað fyrir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar eða sá hluti þess sem síðar varð Eignarhaldsfélagið Samvinnu­ tryggingar. Það félag varð til eftir sameiningu tryggingahluta Sam­ vinnutrygginga og Brunabótafélags Íslands árið 1989 í Vátryggingafélag Íslands eða VÍS. Aðrar eignir Sam­ vinnutrygginga, sem voru stofnaðar fyrir forgöngu Sambandsins árið 1946, runnu þá inn í eignarhalds­ félagið sem tók síðar þátt í kaupum S­hópsins svokallaða á 45,8 pró­ senta hlut íslenska ríkisins í Bún­ aðarbankanum. Félög samvinnumanna og þekktir Framsóknarmenn voru áberandi í S­hópnum við kaupin á hlut ríkisins en þar mátti, eins og í endurfjár­ mögnun Samskipa árið 1994, finna Samvinnulífeyrissjóðinn og VÍS. Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráð­ herra Framsóknarflokksins, var þá nýlega orðinn forstjóri trygginga­ félagsins. Þegar rannsóknarnefnd Alþingis kynnti skýrslu sína í síð­ ustu viku var tekið fram að ekkert hefði komið fram um að aðrir ein­ staklingar sem voru í forsvari fyrir aðila inna S­hópsins hefðu vitað að aðkoma Hauck & Aufhäuser að kaupunum á Búnaðarbankanum hefði einungis verið til málamynda. Eignarhaldsfélaginu Samvinnu­ tryggingum var slitið í júní 2007 og eignir þess og skuldir þá færðar til dótturfélagsins Giftar fjárfestingar­ félags ehf. Félagið hélt áfram að fjárfesta á markaði með eignir Sam­ vinnutrygginga og þá meðal annars í félögum sem tengdust stjórnend­ um Giftar. Arion banki samþykkti að veita Gift nauðasamning árið 2011 en síðarnefnda félagið var áður stærsti hluthafi Eignarhaldsfélagsins Andvöku. Það félag byggði á líf­ tryggingafélaginu Andvöku sem Samvinnutryggingar ráku fram að sameiningunni í VÍS. Eignarhalds­ félaginu Andvöku var slitið í febrúar 2015 og var eigið fé þess þá greitt út til eigenda. Samband íslenskra samvinnufélaga, sem enn er til en í formi eignarhaldsfélags, fékk þá 49 milljónir króna vegna slitanna eins og fjallað var um í DV í sept­ ember það ár. Var sú ákvörðun rök­ studd með vísun í að kaupfélögin í landinu hefðu verið viðskiptavinir Samvinnutrygginga allt frá stofnun þess og þangað til félagið sameinað­ ist VÍS árið 1989 og úr varð stærsta tryggingafélag landsins. Sambandið lifir Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis var kynnt rétt tæpum 25 árum eftir að Landsbankinn bútaði SÍS niður eftir að ljóst varð að félagið rambaði á barmi gjaldþrots. Sam­ bandið fagnaði 115 ára afmæli sínu í febrúar síðastliðnum og stjórn­ endur þess halda aðalfund á hverju ári. Um tuttugu samvinnufélög eru enn virk hér á landi og má þar nefna Kaupfélag Suðurnesja, KEA, Slátur­ félag Suðurlands og Kaupfélag Skag­ firðinga. Mikil breyting varð á eigna­ stöðu SÍS árið 2015 þegar greitt var úr Andvökusjóðnum. Eignir þess hækkuðu þá úr fjórtán milljónum króna í 58 og skuldirnar námu ein­ ungis 250 þúsund krónum. Síðasti aðalfundur félagsins var haldinn í nóvember á Grand Hóteli. „Þar ræddum við möguleg fram­ tíðarverkefni SÍS. Það er engin niðurstaða komin í það en þessi vinna er í gangi og menn horfa bæði til Skandinavíu og Bretlands og samvinnufélaganna þar. Ég bendi til dæmis á að Airbnb er sam­ vinnufélag,“ segir Hannes Karlsson, stjórnarformaður SÍS. „Við höldum líka reglulega stjórnarfundi og erum með ákveð­ ið verkefni í gangi núna varðandi stefnumótun til lengri tíma og þá í samstarfi við kaupfélögin og þau samvinnufélög sem eru í landinu. Við erum aftur á móti ekkert að flýta okkur og höfum nægan tíma.“ Þræðirnir liggja til Sambandsins Ólafur Ólafsson var ráðinn forstjóri Samskipa rúmu ári eftir að skipadeildin var færð út úr SÍS. Mynd/ljÓSMyndaSaFn Rvk aðalfundir SÍS voru oft haldnir í Samvinnuskólanum á Bifröst. Samvinnutryggingar fögnuðu 40 ára afmæli í ágúst 1986. Endalok og uppgjör SÍS leiddu til þess að Ólafur Ólafsson var ráðinn forstjóri Samskipa. Fyrir- tæki Sambandsins eru nú enn og aftur í sviðsljósinu í kjölfar skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Haraldur Guðmundsson haraldur@frettabladid.is Ólafur Ólafsson, aðaleigandi samskipa, hÓf afskipti af félag- inu árið 1993 og hefur síðan þá byggt upp stÓrt evrÓpskt viðskiptaveldi. 8 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r30 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 0 8 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 1 4 4 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 1 -D 3 2 8 1 C A 1 -D 1 E C 1 C A 1 -D 0 B 0 1 C A 1 -C F 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 4 4 s _ 7 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.