Fréttablaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 106
Á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar 5. mars
síðastliðinn tóku börn og unglingar á
Suðurnesjum, Kjalarnesi, Hafnarfirði,
Garðabæ og Álftanesi höndum saman
og söfnuðu fyrir múrssteinshúsum fyr-
ir munaðarlaus börn í Úganda. Þau
stóðu m.a. fyrir kaffisölu, kaffihúsi,
fjáröflunarbingói og einnig var safnað
framlögum með samskotum við guðs-
þjónustur. Nokkrar kirkjur munu halda
söfnuninni áfram út vorið, en nú hafa
safnast 287.227 krónur en fyrir þá
upphæð er hægt að byggja tvö múr-
steinshús fyrir munaðarlaus börn.
Söfnunin fór fram með fjölbreyttum
hætti. Í Keflavíkurkirkju voru ung-
lingar með kaffihús eftir æskulýðs-
messu, í Bessastaðakirkju seldi æsku-
lýðsfélagið mat eftir síðdegismessu og
í Ástjarnarkirkju héldu börn og ung-
lingar fjáröflunarbingó og voru með
kaffiveitingar. Í Útskálakirkju og safn-
aðarheimili Sandgerðis stóðu ung-
menni fyrir kaffisölu eftir messu. Í
Hafnarfjarðarkirkju föndruðu ferm-
ingarbörnin söfnunarbauk sem var lát-
inn ganga um kirkjuna við guðsþjón-
ustu dagsins og í Vídalíns-, Braut-
arholts- og Víðistaðakirkju var sagt frá
verkefninu í æskulýðsmessu og tekið
við samskotum.
Í Úganda hafa mörg börn misst for-
eldra sína úr alnæmi og þau búa við bág
kjör í hrörlegum húsum með stráþaki.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur lagt á
það áherslu að bæta aðstæður þessara
barna með því að byggja múrsteinshús
með bárujárnsþaki. Þau veita skjól fyr-
ir vindi, vatni og nætursvalanum.
Einnig er minni hætta á smiti og sjúk-
dómum og af bárujárnsþakinu er hægt
að safna vatni sem dugar langt inn í
þurrkatímabilið. Unglingar taka þátt í
byggingu húsanna og læra um um leið
handverkið sem mun nýtast þeim til
framtíðar.
„Það er dýrmætt fyrir börn og unglinga
að finna að þau geta lagt lið og með
samstarfi og samhentu átaki er hægt
að koma svo miklu í verk sem veitir von,
bjartsýni og margfalda blessun,“ sagði
Stefán Már Gunnlaugsson, settur hér-
aðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi,
við afhendingu söfnunarfjár.
Unglingar á Íslandi safna fyrir húsum
fyrir munaðarlaus börn í Úganda
Steina Björk Ketilsdóttir og Urður Unnar-
dóttir ánægðar með afraksturinn en
í heild söfnuðust 287.227 krónur.
Sárafátæk og lúin amma og sjö barnabörn hennar sem áður bjuggu í kofaskrifli hafa fengið nýtt hús, vatnstank,
kamar, geitur og hænur til þess að bæta lífsafkomuna en foreldrar barnanna eru látin af völdum alnæmis.
Með styrk frá íslenskum unglingum fá nú tvær fjölskyldur þak yfir höfuðið.
8 – Margt smátt ...
0
8
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
1
-8
4
2
8
1
C
A
1
-8
2
E
C
1
C
A
1
-8
1
B
0
1
C
A
1
-8
0
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
7
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K