Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Qupperneq 5

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Qupperneq 5
Hverjar voru fyrstar? Á síðari hluta 19. aldarinnar voru ensk- ar hjúkrunarkonur, öðrum fremur, braut- ryðjendur í hjúkrunarmálum. Nightingale- skólinn varð fyrirmyndarskóli víðs veg- ar um heim. Fyrsta stéttarfélag hjúkrun- arkvenna var stofnað þar 1887, og þótt þeim auðnaðist ekki að ná fyrstar að marki, var 30 ára baráttan, til að öðlast ríkisviðurkenningu, þegar hafin. Nöfn hjúkrunarkvennanna Florence Nighting- ale og frú Bedford Fenwick bera þar hæst, en fyrir forgöngu þeirrar síðarnefndu, var Alþjóðasamband hjúkrunarkvenna stofn- að árið 1899, fyrsta alþjóðastéttarfélag kvenna. Aukin þekking og framfarir í læknavís- indum, baráttan fyrir auknum kvenrétt- indum og margvíslegar þjóðfélagsumbæt- ur greiddu brautina og opnuðu nýjar leið- ir, þótt enn væru seinfarnar, en hjúkrun- arkonur í öðrum löndum Evrópu og vest- anhafs urðu ekki lengi eftirbátar í hjúkr- unarmálum. En fátæklegar eru heimildirnar um hjúkrun á íslandi í þann tíma. Sennilega hefur ekki þótt í frásögur færandi að kon- ur fengjust við hjúkrun, og þótt borizt hefðu tíðindi hingað til lands um þróun þessara mála erlendis og vaxandi tækifæri til að læra, hefðu þessar konur varla átt þess kost að hagnýta sér þetta, enda langt úr alfaraleið, og oftast skort til þess fé og málakunnáttu. Steingrímur J. Þorsteinsson skrifar minningargrein um Steinunni Ólafsdóttur Jónsson í Morgunblaðið, 17. ágúst 1963. Þar segir hann, „Fyrsta íslenzka hjúkr- unarkonan er látin,“ og seinna, „Ári síð- ar lauk hún þar hjúkrunarprófi, fyrst ís- lenzkra kvenna.“ Vakti þessi grein athygli þeirra, er höfðu talið að Þóra Jónsdóttir Einarsson hefði skipað þann sess, sbr. grein frú Sigríðar Eiríksdóttur í Hjúkrunarkvenna- blaðinu, 3. tbl. 1944, en þar segir hún að Þóra J. Einarsson hafi lokið prófi við sjúkrahúsið Royal Infirmary í Edinborg Steinunn Ólafsdóttir.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.