Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Blaðsíða 28
116
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
hefur verið frá ályktunum þingsins í útvarpi
og dagblaðinu Tímanum.
Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík var
haldinn 8. og 9. nóvember 1965. Auk formanns
sátu fundinn, fulltrúarnir Guðmundína Gutt-
ormsdóttir og Ásta Björnsdóttir, og um tíma
einnig varafulltrúinn, Ásta Jónasdóttir. María
Pétursdóttir og Elín E. Stefánsson voru kosnar
þar í heilbrigðisnefnd, en Sigríður Thorlacius á
einnig sæti í þeirri nefnd. Nánar verður sagt í
dagblöðum frá störfum aðalfundarins.
María Finnsdóttir og Sigríður Jakobsdóttir sátu
í umboði Hjúkrunarfélags íslands viku fund sl.
september i Helsingfors, en hann var haldinn á
vegum kjaranefndar S.S.N. (kommiteen för fack-
liga frágor). Sigríður Jakobsdóttir sat auk þess
tveggja daga fund launanefndar á undan, en
nánari frásögn um þessa fundi verður í blaði
okkar. Hlutu þær kr. 500,00 sænskar í fararstyrk,
af námsstyrk S.S.N. til H.F.Í., samkvæmt ábend-
ingu frá ritara S.S.N., en það er sótt fast af
hálfu Norðurlandasamvinnunnar að félag okkar
sendi fulltrúa, sem er vel inn í launa- og kjara-
málum, framvegis á nefndarfundi varðandi kjara-
mál.
Formaður hélt fund með hjúkrunarkonum á
Isafirði 3. október sl. og hjúkrunarkonum á Ak-
ureyri 3. nóvember sl. og sagði frá félagsmálum
og alþjóðamóti hjúkrunarkvenna í Frankfurt.
Báðir fundir voi’u vel sóttir og virtust hjúkrun-
arkonur ánægðar með að fá þannig aukið sam-
starf við félagsheildina, og voru móttökur af
þeirra hálfu mjög góðar og hlýlegar, og er von-
andi að hægt verði að koma á nánara samstarfi
við hjúkrunarkonur úti á landsbyggðinni, eftir
því sem tækifæri gefast.
Eins og sagt var frá í síðasta tölublaði hefur
stjórnin leitað ráða og aðstoðar borgarstjóra
Reykjavíkurborgar, stjórnar stéttarfélagsins
Fóstru, stjórenda Sumargjafar og nú síðast
fræðslustjóra til að koma upp dagheimili hér í
borg, sem hentaði börnum starfandi hjúkrunar-
kvenna, en málið er enn óleyst, þrátt fyrir mikl-
ar viðræður og vinsamlegar undirtektir.
48 hjúkrunarkonur starfandi hjá ríkisspítul-
um, hafa farið þess á leit við stjórn Hjúkrunar-
félags íslands, að hún vinni að því að hjúkrunar-
konur starfandi hjá ríki fái greiddan vinnufatn-
að og viðhald á honum, og þar sem samningar
hafa fengist við Reykjavíkurborg um þetta, má
telja meiri líkur til þess að árangur náist.
Formaður var ofast á skrifstofu félagsins kl.
17—19 á fimmtudögum, en vegna annarra starfa
er taka verður þátt í vegna félagsins var því
miður ekki hægt að koma því við að hafa fastan
skrifstofutíma lengri.
Stjórnarfundir voru 18 og 4 félagsfundir auk
aðalfundar, þar voru flutt erindi, s. s. um félags-
mál. Regína Stefnisdóttir sagði frá dvöl sinni í
Algier, Guðmundur Guðmundsson tryggingafræð-
ingur um Lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna, Jóhann-
es Ólafsson, læknir frá dvöl og starfi í Ethiópíu,
Ingibjörg Magnúsdóttir um þjálfun sjúkraliða
og María Finnsdóttir um nefndarfund á vegum
S.S.N. í Finnlandi og félagsmál. Einn fundurinn
var haldinn í boði Hrafnistu, og var hann vel
sóttur, og þannig höfðinglegt boð metið að verð-
leikum.
Félag Röntgenhjúkrunarkvenna var stofnað 8.
apríl 1965. Allir félagar eru fullgildir aðilar í
Hjúkrunarfélagi íslands. Stofnendur voru 10 og
aukameðlimir 2. Stjórnina skipa: Jóhanna Kjart-
ansdóttir, formaður, Sigrún Sraumland, gjaldkeri
og Guðlaug Benediktsdóttir, ritari. Félagið hefur
fengið upptöku í International Society of Radio-
graphers & Radiological Technicians. Jóhanna
Þórarinsdóttir fór sem fulltrúi félagsins á þriðja
alþjóðaþing þessa félagasambands. Einnig sótti
Sigurlaug Johnsen sama þing.
Stofnendur Félags Röntgenhjúkrunarkvenna
æskja þess, að hið nýstofnaða félag verði deild
innan vébanda Hjúkrunarfélags íslands, en til
þess þarf að samþykkja breytingu á lögum Hjúkr-
unarfélags íslands. Verður tillaga til breytinga
á lögum Hjúkrunarfélags íslands borin undir
atkvæði á eftir, og lög félags Röntgenhjúkrunar-
kvenna lesin, og verði tillagan samþykkt verður
þetta fyrsta sérgreinafélag innan Hjúkrunar-
félagsins, og gefur það öðrum gott fordæmi.
Aðilar Hjúkrunarfélags íslands starfandi er-
lendis á þessu ári voru að tölu:
11 í Danmörku (3 þeirra hafa fengið danska
ríkisviðurkenningu),
5 í Noregi,
6 í Svíþjóð,
2 í Englandi,
24 samtals.
í Bandaríkjunum er engin hjúkrunarkona á
vegum félagsins, en íslenzkar hjúkrunarkonur,
sem þangað hafa farið óskuðu að geta farið á
vegum H.F.Í., en A.N.A. (Félagssamband hjúkr-
unarkvenna í Bandaríkjunum) gat ekki greitt