Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Blaðsíða 24
25 ára hjúkrunarkonur
Vorið 1937 hófu 13 ungar stúlkur nám í Hjúkr-
unarkvennaskóla íslands, en við hann starfaði
þá í fyrsta sinn forskóli. Sigríður Bachmann fékk
frí frá störfum hjá Rauða Krossi Isiands til
kennslustarfa á þessu 4 vikna námskeiði.
1. maí 1965 hélt þessi sami hópur hátiðlegt
25 ára hjúkrunarkvennaafmæli og bauð Sigríði
Bachmann til fagnaðarins, en þeim sið hafa þær
ailtaf haldið í sambandi við afmæli, og þá áður
einnig boðið Kristínu Thoroddsen, forstöðukonu
skólans.
Allar þessar hjúkrunarkonur hafa leyst af
hendi langt og gott starf, og má Sigríður Bach-
mann sannarlega vera stolt af þessum fyrsta
nemendahóp sinum. En ef ætti að gera grein fyrir
því mikla starfi, sem Sigríður Bochmann hefur
gegnt í þágu heilbrigðis- og hjúkrunarfélagsmála
væri það markverð saga, ef henni væru gerð full
skil, og sama má segja um hennar skerf til mennt-
unar hjúkrunarkvenna.
Ein hjúkrunarkonan úr þessum hópi er iátin,
tvær eru búse'ttar erlendis, en á myndina vantar
Oddnýju Pétursdóttur. Hinar eru, talið frá
vinstri: Katrín Tómasdóttir, Gerður Guðmunds-
dóttir, Sigríður Bachmann, Kristín Gunnarsdótt-
ir, Sigríður Jónsdóttir, Guðrún Árnadóttir, Kat-
rín Pálsdóttir, Óla Þorleifsdóttir, Ingunn Hlíðar,
Arndís Einarsdóttir.
M. P.