Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Blaðsíða 14
102
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
þau náms- og starfsatriði, sem leggja á
stund á, og hafa verið gerð drög að slíkri
námsskrá. Einnig er sennilega heppilegt
að hleypa námsskeiðum af stað, áður en
fullgengið er frá námsskrá, til þess að
nokkur reynsla fáist um námskeiðshaldið.
Ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu, að
í byrjun yrði unnið eftir óstaðfestri bráða-
birgðanámsskrá, sem landlæknir teldi
fullnægjandi".
Vonandi verður gengið frá þessari reglu-
gerð um nám og störf sjúkraliða sem allra
fyrst. Það, sem á stendur, mun vera laun
og kjör nemenda á námstímanum, og í
hvaða launaflokki sjúkraliðar skuli vera
að námi loknu. Þrjú sjúkrahús hafa þegar
fengið leyfi til að byrja með námskeið —
eru það St. Jósepsspítalinn að Landakoti,
Kleppsspítalinn og Fj órðungssj úkrahúsið
á Akureyri. Nemendur á þessum þremur
stöðum eru samtals 42. Þau fög, sem kennd
verða eru: Hjúkrunarfræði 45 stundir, þar
af 20 stundir í verklegum æfingum, lík-
amsfræði 20 stundir, heilsufræði 8 stundir
og um 7 stundir í siðfræði, upplýsingum
um nám og starf og fleira. Auk þess munu
nemendur í Kleppsspítalanum læra eitt-
hvað í hjúkrun geðsjúklinga og sálarfræði.
Að lokum vil ég láta þá von mína í ljós,
að þetta nýja hjálparfólk okkar komi að
tilætluðum notum — að það megi verða
farsælt í námi og starfi, að það hljóti við-
unandi kjör og starfsskilyrði og að í þessa
nýju stétt veljist gott fólk — góðir menn
og góðar konur. Við þurfum svo mikið á
góðu fólki að halda — fólki, sem er sam-
vizkusamt og heiðarlegt í starfi, alúðlegt
og gleðilegt í viðmóti, og ef ég má komast
svo gamaldags að orði og segja — með
hjartað á réttum stað.
Þessum nýju samherjum verðum við að
taka á móti á þann hátt, að við sköpum
hjá þeim virðingu og traust — látum þá
finna, að þeir eru kærkomnir, og reyn-
umst þeim góðir og skilningsríkir húsbænd-
ur. Það mun koma í verkahring okkar,
starfandi hjúkrunarkvenna, að leiðbeina
sjúkraliðum, kenna þeim, sjá um, að þeir
vinni sín störf á þann hátt, er við sjálfar
höfum kennt þeim, og að lokum — að
sýna þeim þakklæti að góðu dagsverki
loknu.
Ingíbjörg Magnúsdóttir.
Spalcmæli:
Sóttin er hamla á líkamanum, en ekki viljan-
um nema hann kjósi sjálfur, að svo sé. Helti
hamlar fætinum að vísu, en viljanum ekki. Seg-ðu
sjálfum þér þetta, hvert sinn er á bjátar, og þú
munt komast að raun um, að atburðirnir hamla
einhverju öðru en þér. (Úr handbók Epiktets).
Einu gildir, hverjar lífsreglur þú hefur sett
þér, þú skalt fylgja þeim, sem lög væru, og láttu
sem þú brjótir gegn Guði, ef þú víkur frá nokk-
urri þeirra. En skeyttu engu um það, sem um
þig er rætt, því að það er ekki á valdi þínu.
(Úr handbók Epiktets).
Hjúkrunarkonur
eru vinsamlega áminntar um að til-
kynna bústaðaskipti sem allra fyrst
til formanns Hjúkrunarfélags Islands
Maríu Pétursdóttur
Þingholtsstræti 30
sími 21177
og einnig til ritstjórnarinnar.