Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Blaðsíða 31
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
119
i---------—
r
FRÉTTIR □ G
TILKYNNINGAR
Breytingar á stjóm H.F.Í.
Elín Eggerz Stefánsson og Kristín Gunnars-
dóttir létu af stjórnarstörfum. 1 þeirra stað voru
kosnar Sigurlín Gunnarsdóttir og Sigrún Jóna-
tansdóttir. Til vara eru Guðrún Margeirsdóttir
og Ragnhildur Stephensen.
I stað Jónu Hall, Sigríðar Jakobsdóttur og
Rögnu Haraldsdóttur voru kosnar í ritnefnd:
Lilja Bjarnadóttir Nissen, Guðrún Kristjánsdóttir
og Guðrún Blöndal. Til vara voru kosnar Mar-
grét Jóhannsdóttir og Vígdögg Björgvinsdóttir.
Hjúkrunarf élag Islands
vill ráða skrifstofustúlku, hálfan daginn, helzt
hjúkrunarkonu. Þarf að vera vel fær í bókfærslu
og bréfaviðskiptum á ensku og einhverju Norð-
urlandamáli.
Þær sem hefðu áhuga á þessu hafi vinsamleg-
ast samband við Maríu Pétursdóttur (simi 16624).
Hjónabönd.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband:
Jóna Hall, hjúkrunarkona og Guðmundur Ei-
ríksson, vélstjóri.
Erla Bernódusdóttir, hjúkrunai-kona og Ágúst
Sigurðsson, starfsmaður Skattstofunnar.
Edda Árnadóttir, hjúkrunarkona og Jón Stefán
Arnórsson, jarðfræðingur.
Ida Einarsdóttir, hjúkrunarkona og Páll Sig-
urðsson.
Sesselja Halldórsdóttir, hjúkrunarkona og Enok
Thomsen.
Hjúkrunarfélag íslands hélt félagsfund að
Hrafnistu mánudaginn 27. september s.l. Mættir
voru 130 félagar. Formaður setti fundinn og bauð
velkominn Jóhannes Ólafsson, lækni og konu hans
Áslaugu Johnsen, hjúkrunarkonu. Fundurinn var
haldinn í boði Hrafnistu og þakkaði formaður
þetta ágæta boð forstjóra Auðuns Hermannsson-
ar og forstöðukonu, frú Astrid Hannesson. Þá
rakti formaður nokkuð sögu Hrafnistu og sagði
frá tildrögum að stofnun Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna.
Margrét Jóhannesdóttir, forstöðukona Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur, sagði frá fræðslu-
námskeiðum sem hefjast á þessu hausti.
Jóhannes Ólafsson, læknir, sagði frá Ethiópiu
og sýndi myndir. Var máli hans mjög vel tekið,
en formaður þakkaði. Að lokum var sezt að glæsi-
legu kaffiborði og fundi siðan slitið
Góð fundarsókn ber vott urn vakandi félagsáhuga, en uppörvar og liðsinnir þeim, sem reyna að efla
félagsstarfio. Sérhver aðili er samábyrgur heildinni, og spyrji hver sjálfan sig: hvort er ég hlekkur,
scm veikir eða styrkir keðjuna? Hef ég, þótt ekki vseri annað, létt erfiði annarra, með því að greiða
gjöld á réttum tíma, tilkynna bústaðaskipti, sækja fundi, kynna mér málefnin, gefa upplýsingar og
leiðbeiningar, og skrifa greinar i blaðið. Félag, sem nú telur nærri 750 félaga, ætti þá á stuttum
tíma að geta eignast sitt eigið félagsheimili skuldlaust, með því t. d. að láta félagsheimilissjóð sitja
fyrir kaupum á minningarspjöldum, svo að ekki sé fleira nefnt.