Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Side 6

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Side 6
94 TÍMARIT HJÚKRUNARPÉLAGS ÍSLANDS og „er lum fyrsta fullnuma hjúkrunar- konan“. Forvitni mín var vakin og ég reyndi að komast að raun um hvor þessara kvenna væri fyrsta íslenzka hjúkrunarkonan, og afla mér meiri vitneskju um námsferil og störf þessara merku ágætiskvenna. Nú hef ég fengið nokkrar upplýsingar í hend- ur, frá Royal Infirmary í Edinborg og Kommunespítalanum í Kaupmannahöfn og Dansk Sygeplejerád, en þar sem líklegt er að fleiri kunni að hafa áhuga á þessu máli og e. t. v. geta látið í té enn frekari Ástríður Torfadóttir. upplýsingar, sem gætu komið okkur að góðum notum við samning hjúkrunarsögu og væntanlegs hjúkrunarkvennatals, rita ég þessar línur. Hafa ber það hugfast, að þótt hjúkr- unarnám hafi í nokkra áratugi, víðast hvar, verið þriggja ára nám, var það óvíða svo um aldamótin. I danskri hjúkr- unarsögu er Ilia Fibiger fyrsta konan, sem getið er um í sambandi við hjúkrun, þótt hún hafi ekki lagt stund á hjúkrunarnám, en hún var kennslukona, sem vann merki- legt hjúkrunarstarf, þegar um miðja 19. öld. Linda Richards, er talin fyrsta lærða hjúkrunarkona í Bandaríkjunum, en að loknu ársnámi brautskráðist hún árið 1873, og þótt hjúkrunarnámið hafi á okk- ar mælikvarða, og að hennar dómi síð- ar, verið mjög takmarkað, bar það ríkuleg- an ávöxt í starfi hennar víða í föðurlandi hennar og erlendis. En kröfur um undirbúningsmenntun og námstilhögun breytast með tímanum, eins og allt annað, og eftir hálfa öld verður okkar mat og fyrirkomulag sennilega ósamræmanlegt þeirra tíma kröfum um menntun. Ég vil taka það fram að heimildir okk- ar eru enn mjög ófullnægjandi, en frá danska hjúkrunarfélaginu fékk ég að vita að frú Steinunn gerðist félagi þar árið 1906, og geta þær sér þess til, þess vegna, að hún hafi lokið námi 1905 eða 1906, en eftir öðrum heimildum, tel ég líklegra, að það muni hafa verið fyrr, sennilega ekki seinna en 1904. Þegar leitað var til Kommunespítalans heimilda um þessa konu, fékk ég eftirfar- andi upplýsingar í bréfi frá Dansk Syge- plejerád 30. ágúst 1965. „Astrid Halldórsson f. 11/1 1867 skulle have afsluttet sin uddannelse den 1. jan. 1903, mens Guðrún Ulrikka Friis Frand- sen (det lyder ikke spor islandsk!) födt

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.