Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 19

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 19
TÍMAUIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 107 kennurum og þeim, sem vinna við spítala- stjórn og önnur hliðstæð störf. Skýringin var sú, að þessi hópur ynni ekki á hinum svokallaða óhagstæða vinnutíma. Ekki var talið ósanngjarnt, að stytting vinnuviku gæti hækkað eftirlaunaaldur. Hjúkrunarkonur' yfir fimmtugt ættu að hafa styttri vinnuviku en aðrir. Eitt umræðuefni var sameiginlegt fyrir alla hópana, „strids átgræder." Við Sigríð- ur héldum, að þetta væri um störf hjúkr- unarkvenna á stríðstímum, en annað kom nú á daginn. Þetta fjallaði um þær bar- áttuaðferðir, sem notaðar eru til þess að koma kröfum sínum fram. 1 Svíþjóð hafa þær verkfallsrétt, og á öllum hinum Norð- urlöndunum hafa þær sagt upp í stórhóp- um, en aldrei komið til framkvæmda, rík- isvaldið greip þá inn í. Varað var við að misnota þessar aðferðir, þá misstu þær marks, yrðu gagnslausar. Næstsíðasta daginn var aftur hópvinna, nú var skipt um stjórnanda og ritara, þær voru nú sænskar. Stefnt var að því að gera sem flesta þátttakendur virka. Umræðuefnið var: Hvernig getum við fengið beztu einstaklingana í sjálfboða- starf innan félaganna? Hvaða kröfur á að gera til þeirra, sem eru í fullri vinnu hjá félögunum? Hvernig fáum við beztu einstaklingana? Hverjir eru beztir? Eru það þeir, sem hafa áhuga eða þeir, sem hafa gáfur og menntun ? Til hvers er að hafa hlotið gáfur og menntun, ef áhugann vantar? Við viljum sleppa því að skilgreina hverjar eru þær beztu. Það er fyrst að finna þær, sem hafa áhuga og svo er það skylda félagsins að uppfræða þær og leiðbeina, svo að þær geti orðið hæfar og það er skylda félags- ins að borga þá uppfræðslu. Hvernig getum við vakið áhuga ungu hjúkrunarkvennanna? Jú, með því að byrja uppfræðslu hjúkrunarnemanna strax á fyrsta ári og halda henni áfram gegn- um nematímann og halda svo áfram upp- fræðslunni í sjálfu félaginu. Bjóða nem- endum á félagsfundi. 1 öðru lagi kom það fram, að félögin þyrftu að vera svo vel skipulögð, og þeim svo vel stjórnað, að þau í sjálfu sér væru hvatning fyrir meðlimina að koma og vinna sjálfboðavinnu. Rætt var um kröfur, sem gera þyrfti til fastra starfskvenna á skrifstofum, senda þær á námskeið, sem félögin sjálf eða aðrir aðilar halda, en aldrei hjá stjórn- málafélögum. Þessar starfskonur þurfa að geta stjórnað fundum og umræðuhópum. Karen Bisbo, sem stjórnað hafði fyrri fundinum, sat nú hjá mér, þegar verið var að ræða um þær kröfur, sem gerðar skyldu til fastra starfskvenna hjúkrunar- félaganna, sneri hún sér skyndilega að mér og sagði: „Þú segir ekki neitt, er það af því að ég tala svo mikið?“ Ég hrökk við, og síðan hrökklaðist sannleikurinn út. úr mér. „Við höfum ekkert launað starfs- fólk á skrifstofu félagsins, og því hef ég ekkert til málanna að leggja“. Síðasta daginn fóru fram skýrslugjafir hinna ýmsu hópa. Meðal annars var rætt um ársgjöldin. Meðlimirnir, sagði einn af finnsku fulltrúunum, vilja láta vinna fyr- ir sig, en þegar að því kemur að borga ársgjöldin kemur annað hljóð í skrokkinn. Rætt var um nauðsyn þess að á hverri stofnun væri trúnaðarmaður hjúkrunar- kvenna, sem milliliður þeirra og sjúkra- hússins og einnig félagsins. Að lokum kom það fram að störf í þágu félagsins þyrftu hjúkrunarkonur að gera að aðalstarfi. Það, að vinna að skipulagn- ingu og uppbyggingu félaganna og að öðr- um félagsmálum, er ekki síður mikilvægt en önnur störf innan stéttarinnar. Mikilsvert er að í það veljist góðar

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.