Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 20

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 20
108 TlMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS hjúkrunarkonur. Spurningunni um það, hvort halda skuli námskeiðum sem þessum áfram, var svarað játandi, en stjórn Nor- rænu Samvinnunnar falið að ákveða í hvaða formi og hvenær. Eitt kvöldið vorum við boðnar í kaffi- drykkju í húsakynnum sænska félagsins. Þegar á kvöldið leið birtist ung hjúkrun- arkona með blokk og blýant, — blaðavið- tal, — nú var kjarkurinn orðinn svolítið meiri, enda ekki undankomu auðið. Hún spurði um félagsmál okkar, um skrifstofu og starfsfólk. Ég leyfði mér að segja, að það hefði verið mikill áfangi er við feng- um eigið húsnæði, skrifstofuhjálp er eng- in, allt er unnið í sjálfboðavinnu. En svo hef ég víst örlítið hallað á sannleikann, þegar ég bætti við, en það er nú unnið að því að fá skrifstofuhjálp, kannski kem- ur hún á þessu ári, kannski á því næsta. Þegar ég fer að hugsa um, af hverju ég segi þetta, þá finn ég það út að það er mín eigin óskhyggja. Að lokum eru það nokkrar hugsanir sem hafa verið að bögglast fyrir mér og vilja gjarnan fá að rétta úr sér. Bæði áður og eftir að ég kom í stjórnina hef ég heyrt setningar sem þessa: Ég veit ekki til hvers við erum að kjósa stjórn, hún gerir ekki neitt, það sést bezt á því hve kjörin eru léleg og aldrei eru haldin upprifjunarnámskeið. Það er þó stjórn- arinnar að gera það. En við skulum vara okkur á gagnrýn- inni. Sanngjörn gagnrýni er nauðsynleg bæði einstaklingum, stofnunum og félög- um, þegar um leið er komið með leiðir til úrbóta, sú gagnrýni verkar uppbyggandi. En til er blind gagnrýni, sem verkar að- eins til niðurrifs af því að ekkert kemur í staðinn. Samvinna innan stofnunar, inn- an félagsskapar er lífsnauðsyn ef um upp- byggingu á að vera að ræða. Höfum við nokkurn siðferðilegan rétt til þess að segja, að stjórnin eigi að gera þetta og hitt og standa sjálfar með hend- ur fyrir aftan bak. Eigum við ekki fyrst að gera kröfur til okkar sjálfra og svo til annarra. Væri ekki gott að líta í eigin barm og spyrja, hvað geri ég áður en ég segi: Þetta átt þú að gera. Ber okkur ekki fyrst og fremst að þakka það starf sem unnið hefur verið í sjálf- boðavinnu á undanförnum áratugum. Við gerum okkur áreiðanlega enga grein fyrir því erfiði, þeim tíma og peningum, sem einstaklingar hafa lagt fram. Peningum úr eigin vasa. Það væri fróðlegt að heyra hve margra stunda vinnuviku formaður, ritari og gjaldkeri félagsins hafa í dag í þágu fé- lagsins eða ritstjórn blaðsins. Er ekki kom- inn tími til þess að létta eitthvað af þeim þeim störfum, sem ekki þurfa nauðsyn- lega að vera í þeirra verkahring og laun- uð skrifstofuhjúkrunarkona getur gert, eða bíðum við eftir því að engin vilji taka þessi störf að sér. Við krefjumst launa fyrir þá þjónustu, sem við veitum öðrum, við eigum einnig að greiða fyrir þá þjónustu sem okkur er veitt, en það verður að gerast með hærri félagsgjöldum. Eftir þessa dvöl mína í Finnlandi hefur þetta verið mér ríkt í huga: Ef við vilj- um vera með í norrænu samvinnunni, þurf- um við að geta sent fulltrúa, sem er vel inn í félagsmálum, sem hefur tíma til að vinna að undirbúningi og upplýsingum, og gerir það í vinnutíma. Samvinnan verður stopul ef við verðum í framtíðinni að treysta á að einhver sé stödd í réttu landi á réttum tíma. Þurfum við ekki að taka einhvern hluta af ársgjaldinu og stofna sjóð, sem hefur það eina markmið að senda fulltrúa á mót og fundi, sem félagið telur nauðsynlegt,

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.