Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Síða 21

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Síða 21
TlMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 109 Frá Heimilissjóði H.F.I. Fi'ú Anna 0. Johnsen hefur gefið til heimilissjóðs H.F.Í. helming þeirra eftir- launa, sem hún fær um næstu tvö ár frá Verzlun G. J. Johnsen. Er þessi gjöf gefin í minningu eiginmanns hennar Gísla J. Jhonsen forstjóra. Viljum við hérmeð færa frú Önnu hjartanlegar þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf, en eins og hjúkrunar- konum er kunnugt, hafa þau hjón þráfald- lega sýnt Hjúkrunarfélagi Islands sérstaka velvild með því að efla á ýmsa lund heim- ilissjóðinn. 237 hjúkrunarkonur hafa sent framlag til sjóðsins, og vill nefndin hér með færa þeim beztu þakkir. 254 hjúkrunarkonur hafa skilað spjald- happdrætti. Eru því allmargar, sem ekki hafa gert skil, og eru það vinsamleg til- mæli okkar að þær geri þau hið allra fyrsta. Munið heimilissjóð H.F.Í. G. Á. Hjónin Anna O. og Gísli J. Johnsen. svo við séum sem virkur þátttakandi, en ekki auka. Baráttumálin eru efst á baugi í dag. Ég vil vera kona 20. aldarinnar, sem ekki hefur neinn geislabaug og vil vera með í að komast á það þrep þjóðfélagsstigans sem okkur ber og standa þar fast. En ég verð að viðurkenna að ég er ekki svo gam- aldags, að mér þætti það mjög miður ef það hugtak hyrfi úr málinu, að störf okk- ar séu líknarstörf. Eru þau ekki líknar- störf? Við skulum líta út fyrir okkar þrönga sjóndeildarhring, til frumstæðra þjóða og vanþróaðra landa. Það eru hóp- ar hjúkrunarkvenna sem vinna við frum- stæðustu skilyrði og fyrir mjög lág laun, þar sem aðrir hópar, sendir af alþjóða- samtökunum, til þeirra eru gerðar miklar kröfur, hámenntað og hæft fólk á háum launum, sem vinnur í flóttamannabúðum, bjargar sveltandi börnum, skipuleggur heilbrigðismál. Eru þetta ekki hvoru- tveggj a 1 íknarstörf ? Og hvaða munur er á þeim störfum, sem við vinnum hér heima, skipulagning heil- brigðismála, koma í veg fyrir ungbarna- dauða, lina þjáningar, endurhæfa sjúka, andlega og líkamlega. Hvaða munur er á þessum störfum eða gerir fjarlægðin fjöll- in blá og mennina mikla. María Finnsdóttir.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.