Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 23

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Page 23
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 111 átti ólifað. Einnig tóku þau til sín gamla einstæðingskonu og átti hún heimili hjá þeim í fullan áratug, eða þangað til hún varð að fara í sjúkrahús sökum vanheilsu. Gamla konan átti ekki afturkvæmt til þeirra, en þau, 8 ár sem hún lifði eftir þetta, heimsótti María hana minnst einu sinni í viku hverri og gladdi hana á ýms- an hátt. Börnum eiginmanns síns frá fyrra hjónabandi reyndist María afburða vel, svo og þeirra börnum. Systkinabörn hennar áttu í henni hollvætti sem aldrei brást. Eiginmanni sínum var hún trúr og ti'ygg- ur förunautur öll þessi ár. María hafði til að bera mikinn félags- þroska, enda vann hún allmikið að félags- málum. Hún var í stjórn Kvenfélags Lang- holtssafnaðar í 11 ár og studdi eiginmað- ur hennar hana í því starfi með ráðum og dáð. Þau hjónin störfuðu einnig mikið að áfengisvarnamálum. Ætíð var María boðin og búin ef stétt- arfélag hennar þurfti á starfskröftum hennar að halda. Þrátt fyrir öll þessi umsvif afrækti María ekki vini sína. Eins og að líkum læt- ur skildust leiðir okkar að námi loknu, og leið jafnvel áratugur á milli samfunda, en þegar fundum okkar bar saman komumst við jafnan að raun um að ekki hafði fyrnst yfir gömul kynni, og meðal okkar bekkjar- systranna myndaðist orðtakið: „Hún er alltaf sú sama María“, og vissar erum við þess að hún verður einnig „sú sama María“ auðnist okkur endurfundir „á landi lif- enda“. Við ljúkum þessum fátæklegu kveðju- orðum með því að votta eiginmanni henn- ar, ættingjum og venzlafólki, okkar dýpstu samúð, og ósk okkar og von er sú, að stétt- arfélagi okkar megi stöðugt bætast nýir liðsmenn gæddir hjartalagi Maríu. Tvær bekkjarsystur. Nonni og Nína í starfi hjúkrunarkonunnar verða, sem betur fer, mörg smáatvik, sem vekja stundar kátínu, en gleymast svo fljótt aftur í dagsins önn. Ekki væri úr vegi, að slíkum augnabliksmynd- um hversdagsins yrði haldið til haga, örugglega er af nógu að taka, allar hjúkrunarkonur geta rifjað upp skemmtilegar smásögur úr starfinu. Hjúkrunarblaðið vill fyrir sitt leyti vera til aðstoðar við söfnun slíks smávamings, með því að ætla honum lítið horn hér í blaðinu. Þótt um sé að ræða sannar sögur, þurfa nöfnin ekki að vera hin réttu, enda sjaldnast aðalatriðið. Sem sýnishorn fylgir hér saga, sem við heyrð- um nýverið, það er sagan um Nonna litla og Nínu. Nonni var sjúklingur á barnadeild Lands- spítalans, vonandi hneykslar það engan, þótt tungutak hans komi hér ótilpússað. Og Nína, hún er hjúkrunarkona á sama stað. Þótt svo ætti að heita, að Nonni væri sjúkling- ur, fór því fjarri að hann væri miður sín af þeim sökum, og satt að segja urðu hjúkrunarkonurnar að hafa „auga á hverjum fingri" allar stundir, til að fylgjast með bauki hans og fyrirtektum. Og þá kemur sagan, sýnu styttri en formálinn: Nína þurfti að bregða sér á salemið, sem ekki er í frásögur færandi. Hún hafði skömmu áður séð Nonna litla hverfa inn á salernið við hliðina, og nú heyrði hún þaðan eitthvert brambolt, sem henni fannst ekki í samræmi við eðlilegt erindi hans á þennan stað. Hún bankaði því milliþilið, og kallaði um leið: „Nonni, hvað ertu að gera?“ Hávaðinn þagnaði, og Nonni svaraði að vörmu spori: „Ég er að kúka, en hvað ert þú að gera?“ -K -K -x LÁTLEYSI Drottinn, tempra meö mildi róseminnar margbreytileik iöju minnar, aö öll mín störf geti eg unniö þér í algeru látleysi hugprýöinnar. Höf. ókunnur. Lausl. þýðing, P. S.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.