Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Síða 27

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Síða 27
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 115 Kjarasamningur og dómur Kjaradóms frá 3. júlí 1963 féll úr gildi 1. júlí 1965, þar sem honum hafði verið sagt upp, samkvæmt ákvörðun félags- manna við allsherjar atkvæðagreiðslu. Seint í desember 1964 voru tillögur Hjúkrunarfélags Is- lands um kjarabætur og launahækkanir sendar Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Samning- ar milli ríkis og B.S.R.B. tókust ekki og eins og kunnugt er, er nú beðið úrskurðar Kjaradóms. Atkvæðagreiðsla fór fram dagana 24., 25. og 26. apríl, á skrifstofu félagsins að Þingholtsstræti 30, um uppsögn kjarasamninga Hjúkrunarfélags Islands við Reykjavíkurborg. Á kjörskrá voru 61 félagi og greiddu atkvæði með uppsögn 48. Með vísan til þessa og ákvæða reglugerðar frá 13. maí 1965 um breytingar á reglugerð nr. 159/ 1962 sagði Hjúkrunarfélag íslands upp gildandi kjarasamningi, og fylgdu tillögur H.P.Í. um kjarabætur og launahækkanir hliðstæðar og send- ar voru B.S.R.B., og var þetta gert í samráði við fulltrúa starfshópa hjúkrunarkvenna hjá Reykjavíkurborg, og greinargerð til stuðnings látin fylgja. Samningafundir urðu þrír og 13. október 1965 náðist samkomulag um að núverandi skipan í launaflokka verði miðuð við niðurstöður kjara- dóms, og kaup samkvæmt launaflokkum fari fram eftir launastiga samkvæmt væntanlegum dómi kjaradóms, svo og reglur um vinnutíma, yfirvinnu o. s. frv. Þar sem vitað var að samningar við ríkið um kjör hjúkrunarkvenna ætti að fara fyrir Kjara- dóm og nauðsynlegt að hafa samræmi milli þeirra hjúkrunarkvenna er vinna hjá Reykjavíkurborg og ríki, var heppilegasta lausnin talin sú, að gera samkomulag um það, að úrskurður Kjaradóms um kjaramál hjúkrunarkvenna starfandi hjá Reykjavíkurborg, án þess að það yrði lagt sér- staklega fyrir dóminn, og með því spara fyrir- höfn og e. t. v. málskostnað. Auk þess fékkst samkomulag við Launamála- nefnd Reykjavíkurborgar, um að fastráðnar hjúkrunarkonur í þjónustu Reykjavíkurborgar fengju ókeypis vinnukjóla og kappa svo og þvott á þessum fatnaði. „Verði talið æskilegt að mati beggja aðila að taka upp sérstakan einkennis- búning fyrir borgarhjúkrunarkonur og heilsu- verndarhjúkrunarkonur skal hann einnig látinn í té ókeypis.“ Aðilar voru sammála um, að um framkvæmd þessa ákvæðis, þ. m. um magn búninga og fleira, skulu reglur samdar af starfskjaranefnd aðila, og 21. október 1965 var tillaga þessi samþykkt á fundi borgarstjórnar. Saminganefnd ríkisins og Borgarráði Reykja- víkur voru send bréf 14. nóvember 1964 þess efnis að stjórn Hjúkrunarfélags Islands hefði ákveðið nýjan tímataxta. Viðræður um nýjan taxta fóru fram á 6 fundum, sem haldnir voru á tímabil- inu 18. desember 1964—3. febrúar 1965, og tóku þátt í þeim, auk stjórnar Hjúkrunarfélags ís- lands, fulltrúar hjúkrunarkvenna sem vinna sam- kvæmt tímakaupstaxta og samnings aðilar frá ríki og bæ. Samningar gengu erfiðlega og 25. janúar var ákveðið, að þessi starfshópur hjúkrunarkvenna hætti að taka að sér hjúkrunarstörf, þar til sann- gjörn lausn fengist. Samkomulag náðist 15. febrú- ar 1965, en af Hjúkrunarfélagsins hálfu sömdu stjórn félagsins, 6 fulltrúar fyrrnefnds starfs- hóps og Guðjón B. Baldvinsson, en hann tók þátt í þessum samningafundum okkur til aðstoðar. Launataxtinn nýji var birtur í Tímariti Hjúkr- unarfélags Islands 1. tölublaði 1965. Of langt mál yrði að segja nánar frá samn- ingafundum, en allir samningar eru og verða birtir í tímariti okkar, og ber að þakka öllum hjúkrunarkonum og öðrum er lagt hafa á sig auka erfiði, en okkur lið í þessum erfiðu og vanda- sömu málum, og vonandi að erfiði þeirra beri sem mestan og beztan árangur. Á síðasta Alþingi gengu í gildi ný lög er varða hjúkrunarstéttina, þ. e. a. s. Lög um Lífeyris- sjóð hjúkrunarkvenna og Hjúkrunarlög. Varð stjórn Hjúkrunarfélags íslands að hafa talsverð afskipti af lagasetningum þessum. Samkvæmt nýju hjúkrunarlögunum er gefin heimild til að þjálfa konur og karla til aðstoðar við hjúkrun, og hefur því fólki nú verið gefið starfsheitið sjúkraliðar, og námsskeið þegar haf in í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Klepps- spítalanum og Landakotsspítalanum. Ingibjörg Magnúsdóttir, forstöðukona flutti ýtarlegt erindi um þetta mál á síðasta félagsfundi, og verður erindið birt í tímariti okkar. 13. alþjóðaþing hjúkrunarkvenna var haldið dagana 16.—26. júní, síðastliðið sumar í Frank- fui-t-Am-Main, og sóttu að af hálfu Hjúkrunar- félags íslands, formaður, 4 fulltrúar, þær Ingi- björg Magnúsdóttir, Sigurlín Gunnarsdóttir og systurnar Annae Pauline og Anne Benedikta og Sigríður Eiríksdóttii’. Formaður sat 16. landsþing Kvenfélagasam- bands íslands dagana 25.—28. ágúst sl. en sagt

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.