Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1965, Side 29
TlMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
117
Raddn hjúkrunakvenna
Ritnefnd: Ingibjörg Sigurðardóttir,
Björg Helgadóttir,
Unnur Sigtryggsdóttir,
Valger/Sur Jónsdóttir (Rvík).
Feröalag til Glostrup 3.—tt. sept. 1965.
Ar hvert haida danskir hjúkrunarnemar lands-
mót, og er þá venja þeirra að bjóða gestum frá
hinum Norðurlöndunum.
Við iögðum af stað föstud. 3. sept. kl. 14.00
áleiðis til Kaupmannahafnar, en mótið átti að
halda í Glostrup.
Að áliðnu kvöldi lentum við í Kaupmannahöfn
og þar tók á móti okkur með útbreiddan faðminn,
formaður hjúkrunarnemafél. í Glostrup.
Eftir skamma ferð í lest komum við til Glost-
rup, sem er útborg Kaupmannahafnar, en þar er
eitt af stærstu sjúkrahúsum Evrópu. Við bjugg-
um í skólanum, sem er 9 hæða há bygging og
stendur skammt frá sjúkrahúsinu.
Er við höfðum þegið te og hlustað á nokkrar
götu þeirra, þar eð þær fóru til stofnana eða
ríkja sem ekki eru í sambandi við A.N.A.
Námsferðir hjúkrunarkvenna (nokkra vikna
eða mánaða):
2 til Danmerkur,
1 — Noregs,
2 — Svíþjóðar,
2 — Finnlands,
1 — Sviss,
8 samtals.
Aðeins ein hjúkrunarkona er við framhaldsnám,
þ. e. hjúkrunarkennaranám í Noregi. Engin hjúkr-
unarkona hefur gert fyrirspurn um upprifjunar-
námskeið, en fræðsluerindi verða á vegum Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur í vetur, og eru þeg-
ar hafin, aðallega ætluð starfandi hjúkrunar-
konum stöðvarinnar er enn hafa ekki lokið fram-
haldsnámi í heilsuverndarhjúkrun.
Að lokum vil ég endurtaka þakkir til stjórnar
félagsins, nefndarfulltrúa og annarra fyrir gott
samstarf, vitandi að allir hafa fengið eitthvað
í staðinn fyrir erfiði, þar sem oftast fylgir félags-
störfum ánægja þegar árangur næst.
Ma/ría Pétursdóttir
formaður.
Formaður hjúkrunarnemafélagsins í Glostrup (i
miðið) Asamt Ingu Teitsdóttur og Valgerði Val-
garðsdóttur.
plötur buðum við góða nótt og gengum til náða.
Herbergin, sem við höfðum til umráða, voru afar
vistleg, og mat fengum við í matsal, sem er sam-
eiginlegur sjúkrahúsi og skóla.
Daginn eftir hófst mótið með því, að skóla-
stjóri hjúkrunarskólans í Glostrup, frk. Anna
Wagner talaði um hjúkrunarnámið.
Taldi hún fram ýmis þýðingarmikil atriði, svo
sem, að hún reyndi að kynnast nemanum áður
en hann hæfi námið, og að æskilegt væri að for-
eldrar kæmu með til viðtals. Hún taldi einnig
heppilegt að gert yrði sálfræðilegt próf á um-
sækjendum.
Næst talaði kennari við hjúkrunarskólann í
Árhus, Lis Hove, um möguleika í hjúkrunar-
námi. Sýndi hún námstilhögun á Norðurlöndum
og í Bandaríkjunum.
Eftir kvöldverð var okkur skipt í 15 hópa, og
skildi hver hópur ræða ýmis mál, sem lögð höfðu
verið fyrir mótið. Valdi hver hópur einn nema
til að stjórna umræðum, sem síðan sagði frá
niðurstöðum hópsins á sunnudagsmorgun.
Fyrst var rætt um að hækka inntökualdur í
19 ár og að krafizt yrði gagnfræðaprófs.
Háværar raddir voru um, hvort fella ætti nið-
ur það inntökuskilyrði, sem krefst þess að stúlk-
ur vinni eitt ár við heimilisstörf áður en þær
hefja nám. Kom flestum saman um að það
mætti gjarna.
Næstu mál voru launamál. Þá kom nemendum
saman um, að nauðsyn væri á meiri kennslu og