Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 26
María Ragnarsdóttir, lögg. sjúkraþjálfari:
Kynning á menntun og starfssviði
sjúkraþjálfarans
1 tilefni þess, að Hjúkrunar-
skóli íslands tók þá nýjung upp
í haust, að gefa hjúkrunarnem-
um í annars árs námskeiði tíu
kennslustundir um sjúkraþjálf-
un, hefur ritstjórn blaðsins far-
ið þess á leit við mig, að ég skrif-
aði nokkur orð um þessa kennslu
í blaðið og gæfi þar með nem-
um, sem komnir eru lengra í
náminu og útskrifuðum hjúkr-
unarkonum, tækifæri til að
kynnast þessari námsgrein.
Þessir tíu tímar, sem mér var
falið að inna af hendi, voru bæði
bóklegs eðlis (þ. e. a. s. í fyrir-
lestrarformi, þar eð engar bæk-
ur eru til um þetta efni á ís-
lenzku) og verklegir tímar. Nú
ber ekki að skilja þetta svo, að
þetta sé í fyrsta sinn, sem
sjúkraþjálfari kennir í Hjúkr-
unarskóla Islands, því fer
fjarri. Undanfarin sex holl
hafa fengið tíu tíma í starfsstell-
ingum, bóklegt og verklegt,
hjá Svanhildi Elentínusdóttur
sjúkraþjálfara og auk þess höf-
um við flest allar, þ. e. sjúkra-
þjálfarar á Landsspítalanum,
tekið tíma í hliðarkennslu við
og við. En þetta er sem sagt
fyrsta tilraunin til að koma
þessu námsefni í fast form og
mun vera ætlunin að halda
áfram á þessari braut og fella
það inn í fasta kennslu, þó ein-
hverjar breytingar kunni að
verða á námsefninu, t. d. fleiri
tímum bætt við. Auk þess held-
ur áfram hliðarkennslan.
Nú mun mörgum eflaust leika
forvitni á að vita um hvað tím-
ar þessir fjölluðu og skal ég
gera örlítið grein fyrir því hér
á eftir. 1 fyrsta tímanum, sem
var sameiginlegur fyrir A og
B bekk (en þar voru allir tímar
í fyrirlestrarformi), kynnti ég
menntun og starf sjúkraþjálf-
arans með orðum og myndum.
Ég tel þetta ákaflega heppilega
byrjun, þar eð starf sjúkraþjálf-
arans er mörgum algjörlega
óþekkt og aðrir hafa einungis
um það óljósar hugmyndir.
Þekking skapar skilning og
skilningur er skilyrði fyrir sam-
vinnu, en samvinna er aftur
skilyrði fyrir góðum árangri á
sviði hjúkrunar sem annars
staðar.
1 öðrum tíma ræddi ég við
nemendur um lungnaþjálfun eða
öndunaræfingar, eins og það er
oftast kallað, bæði fyrir almenna
kirurgiska-, medicinska- og
thoraxkirurgiska sjúklinga og
kynnti fráveitustellingar. Næstu
tveir tímar á eftir voru verk-
legir, þar sem ég leiðbeindi nem-
endum í að aðstoða sjúklinga við
að ná upp slími og að banka.
Tilgangurinn með þessum tím-
um var alls ekki, að kenna
hjúkrunarnemum lungnaþjálf-
un, enda krefst það mikillar
undirstöðuþekkingar og miklu
fleiri tíma en hér var um að
ræða. En ég taldi það geta orð-
ið sjúklingum til hjálpar, ef
hjúkrunarkonur, sem eru til
taks fyrir sjúklingana allan
sólarhringinn, gætu aðstoðað þá
við þetta oft erfiða vandamál.
Næsti tími, sem var í fyrir-
lestrarformi, fjallaði um hemi-
plegíur, para- og quadriplegíur.
Efnið reyndist of umfangsmikið
fyrir einn tíma og verður von-
andi bætt úr því með því að
skipta efninu niður á tvo tíma.
Þarna er tvímælaalust einnig
um efni að ræða, sem krefst
skilnings hjúkrunarliðs á end-
urhæfingu sjúklinganna, auk
þess sem hjúkrunarliðið getur
aðstoðað okkur við endurhæf-
inguna. Benti ég á þau atriði
og í næstu tveim tímum æfðum
við þau og tókum fyrir, hvernig
við getum aðstoðað og kennt
sjúklingunum að hjálpa sér
sjálfum, að setjast upp, fara úr
rúminu í hjólastól o. s. frv.
1 síðasta fyrirlestri fjallaði
ég um endurhæfingu amputa-
tions-sjúklinga og hve geysilega
mikla þýðingu samvinna allra
aðila, lækna, hjúkrunarkvenna,
sjúkraþjálfara og gerfilima-
smiðs hefur fyrir árangur á
eftirmeðferð þeirra. 1 lok tím-
ans sýndi ég myndir af stúf-
um, frá ýmsum stigum endur-
hæfingarinnar og af gerfilim-
um. I síðustu tveim verklegu
tímunum kenndi ég að vefja
stúf. Þetta er mjög mikilvægt
atriði og þarf að gera oft á sól-
arhring og því nauðsynlegt að
hjúkrunarkonur kunni, en því
miður hef ég ekki rekizt á neina
enn, sem kann þetta. Þetta
stendur þó til bóta, því í fram-
tíðinni mun ætlunin vera, að
fella stúfvafning inn í almenna
verklega kennslu.
Mcmifim ofí sfarfsKviA
sjúkraþjálfarans.
Sjúkraþjálfun hefur verið
lítt þekkt hér á landi til skamms
tíma, en hefur þó miðað nokk-
uð í rétta átt á síðustu árum-
Margir halda, að sjúkraþjálf-
un sé einungis annað orð yfh'
nudd og sjúkraþjálfari sé það
116 TÍMARJT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS