Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Qupperneq 20
Rætt viðpýsku hjúkrunarkonuna
G. Marianne D. F. Arndt
Af hvaða ástæðum lcomst þú til
Islands ?
Ég kom til íslands á heim-
leið frá Bandaríkjunum —
dvaldist milli flugferða á leið
til Þýskalands í því skyni að
heimsækja vinkonu mína, hjúkr-
unarkonuna Marga Thome, sem
vinnur við hina nýju námsbraut
í hjúkrunarfi-æðum við Háskóla
Islands, og fara inn í óbyggðir
Islands.
Getur þú sagt ohhur eitthvað
um hjúkmnarferil þinn?
Ég er Þjóðverji, en fór í
hjúkrunarnám í Bretlandi við
General Hospital Kettering í
Northhamptonshire. Ég hef
starfað í Finnlandi, Bretlandi,
á íslandi og í Afríku. Fram-
haldsnámi í geðhjúkrun lauk ég
í Þýskalandi. Nú er ég við hjúkr-
unarkennaranám í Heidelberg í
Þýskalandi. Þáttur í námi mínu
var ferð þessi til Bandaríkjanna
í fjögurra vikna námsdvöl í
Adelphi-háskóla til að fræðast
um hjúkrunarnám í Bandaríkj-
unum.
Hvaða skerf leggur háskóla-
nám í Bandaríkjunum til hjúkr-
unarmenntunar, hverjir eru
kostir hennar og vandamál, og
hvemig vinna bandarískir
hjúkruncvrkennarar bug á erfi'ð-
leikunum ?
Frá háskólanámi koma um
12% af öllu hjúkrunarstarfs-
liði í Bandaríkjunum,það hjúkr-
unarnám er að öllu leyti á veg-
um háskólanna.
1 þessu sambandi langar mig
til að benda sérstaklega á nokk-
ur atriði í bandarískri hjúkr-
unarmenntun á háskólastigi.
Háskólanemar í Bandaríkjun-
um fara ekki í heilbrigðisstofn-
anir fyrstu tvö árin af fjögurra
ára námstíma. Eitt þeirra við-
fangsefna, sem háskóladeildin í
Adelphi hefur leyst með ágæt-
um, er að tengja nám og starf.
Verklegt nám hjúkrunarnema
tekur skamman tíma, en skil-
yrði, að hjúkrunarkennararnir
fari alltaf með nemendurna á
almenn sjúkrahús, hjúkrunar-
heimili eða heilsuverndarstöðv-
ar í verklegu tímana, með um-
ræðum á undan og eftir í fá-
mennum hópum. 1 þessu er fólg-
ið að ræða um og gera grein
fyrir vandamálum, sem upp
kunna að koma, til þess að fá
traustan grundvöll að þeirri tak-
mörkuðu reynslu, sem nemend-
ur öðlast.
Á fjórða ári eru nemendur í
verklegu námi eftir vali 20
klukkustundir á viku í 15 vikur
og starfa þá með kennara, sem
leiðbeinir þeim og hjálpar þenn-
an tíma.
Ein aðferð til að veita há-
skólanemendum sjálfstraust til
væntanlegs hj úkrunarstarfs er
fólgin í starfskynningu fyrir ný-
útskrifaða h j úkrunarfræðinga,
sem flest sjúkrahús hafa komið
á. Tilgangurinn er að kynna al-
menna starfsemi stofnunarinn-
ar, starfslið hennar og aðferðir
og koma á framfæri hugmynda-
kerfi hennar.
Hvaða möguleika sérð þú til
að koma hjúkmncurmenntun á
háskólastig í Evrópu? Finnst
þér nauðsynlegt, að það sé gert ?
Mér virðist áskorun sé beint
til þeirra hjúkrunarkvenna, sem
gegna ábyrgðarstörfum í ís-
lenskum sjúkrahúsum. Vegna
starfsreynslu og fagþekkingar
þeirra væri unnt að kveðja úr
þeirra hópi kennara til að leið-
beina nemendum við hina nýju
námsbi’aut í Háskóla Islands.
Hjúkrunarnám á háskólastigi
er leið til:
a) að koma hjúkrun almennt á
hærra stig,
b) að vera samstiga við nútíma-
þjóðfélag,
Framh. á bls. 103.
78 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS