Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Page 28
LAUSAR STÖÐUR O. FL
Elli- og hjukrunarhoiinilið
Sólvangur, Hafnarfirði.
Yfirhjúkrunarkona.
Staða yfirhjúkrunarkonu Elli- og
hjúkrunarheimilisins Sólvangs,
Hafnarfirði, er laus til umsóknar og
veitist eigi síðar en frá 1. janúar 1975.
Æskilegt er að umsækjandi hafi
stundað framhaldsnám í sjúkrahús-
stjórn eða hafi að baki verulega reynslu
í slíku starfi. Til greina kæmi hjúkr-
unarkona sem hefði í hyggju að afla sér
slíkrar menntunar seinna meir. Frekari
upplýsingar veita yfirlæknir og/eða
forstjóri Sólvangs.
Umsóknir ásamt upplýsingum og vott-
orðum um menntun og fyrri störf
skuli send bæjarskrifstofunum í Hafn-
arfirði fyrir 15. september 1974.
Forstjóri Sólvangs.
Landspítalinn í Reykjavík.
Hjúkrunarkonur óskast til starfa á
hinar ýmsu deildir spítalans.
Ennfremur eru lausar stöður við
gj örgæsludeildina.
Nánari upplýsingar veitir forstöðukona
Landspítalans í síma 24160 og
á staðnum.
Skrifstofa Ríkisspítalanna.
Borgarspitalinn.
Hjúkrunardeildarstjóri óskast til starfa
á skurðlækningadeild Borgarspítalans,
sem fyrst.
Hjúkrunarkonur óskast til starfa við
hinar ýmsu deildir Borgarspítalans.
Fastar kvöld- eða næturvaktir koma til
greina, einnig er um hlutavinnu að ræða.
Upplýsingar veitir forstöðukona
í síma 81200.
Borgarspítalinn.
Kleppsspítalinn.
óskum eftir að ráða hjúkrunarkonur að
Flókadeild á næturvaktir, nú þegar.
Þar er um að ræða fullt starf eða hluta
úr starfi eftir samkomulagi.
Barnagæsla og skóla-dagheimili.
Nánari upplýsingar veitir forstöðukona
á staðnum og í síma 38160.
ForstöSukona.
Vífilsstaðaspítali.
Hjúkrunarkonur óskast að Vífilsstaða-
spítala nú þegar.
Um er að ræða fullt starf og einnig
hluta úr starfi.
Einnig óskast hjúkrunarkonur á
næturvaktir.
Sjúkrahúsið er deildaskipt, lungna-
deild og hjúkrunar- og endurhæfingar-
deild.
Barnagæsla.
Nánari upplýsingar gefur forstöðukona
Vífilsstaðaspítala á staðnum og í
síma 42800.
Sjúkrahús Akraness.
Sjúkrahús Akraness óskar eftir að ráða
2—3 hjúkrunarkonur nú þegar eða
eftir samkomulagi.
Sjúkrahúsið er deildaskipt, það er lyf-
lækningadeild, 31 rúm, handlækninga-,
fæðinga- og kvensjúkdómadeild, 31 rúm.
I starfsmannabústað fá hjúkrunarkonur
herbergi búin húsgögnum, einnig hafa
þær sameiginlegt eldhús, dagstofu,
baðherbergi og þvottahús.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumað-
ur sjúkrahússins á staðnum og í
síma 93-2311.