Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 7

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 7
3. Deildarstjórn. 3.1. Gegni hjúkrunarfræöingur, sem hefur 60 starfs- eÖa námsstig, starfi deildarstjóra skal hann fá greidda þóknun fyrir deildarstjórnina er svarar til mismunar launa í launaflokki 16 og 17. 3.2. Deildarstjóri í 16. launaflokki skal eftir fimm ára starf í slíkri stöðu taka laun samkvæmt launaflokki 17. 3.3 Aöstoðardeildarstjóri við hjúkrun fái greidd laun skv. starfs- og námsstigum sínum að viðbættum einum launaflokki. 4. Ú tkallsvakt. 4.1. Greiðsla fyrir fasta útkallsvakt, sem yfirmaður hef- ur ákveðið, skal nema sömu fjárhæð og vaktaálag skv. aðalkjarasamningi. 5. Hlutastarj. 5.1. Hjúkrunarfræðingur, sem vinnur fastan hluta úr fullu starfi, fái hlutfallslega styttingu á vinnu- skyldu sinni, þegar helgidagar falla inn í vinnu- viku. 6. Námsleyji. 6.1. Hjúkrunarfræðingur, sem með sérstöku leyfi hjúkrunarforstjóra stundar viðurkennt sérnám í hjúkrun eða sækir framhalds- eða endurmenntun- arnámskeið í hjúkrunarfræðum, sem nýtur viður- kenningar heilbrigðisyfirvalda, skal halda föstum launum með fullu vaktaálagi meðan slíkt nám var- ir allt að 3 mánuði á hverjum 5 árum. Heimilt er að veita hjúkrunuarfræðingi námsleyfi með þess- um kjörum tíðar en að framan greinir en þá skem- ur hverju sinni, þó ekki umfram 1 mánuð á hverj- um 20 mánuðum, enda leiði ekki af því aukinn kostnað. 7. Vinna á fámennum stöðum. 7.1. Á fámennum stöðum, þar sem eru 1-2 hjúkrunar- fræðingar, skal samið sérstaklega um vinnutíma þeirra, greiðslu fyrir útkallsvaktir og annað, sem af vinnutímafyrirkomulagi leiðir. Samningar þess- ir skulu gerðir milli Hjúkrunarfléags íslands ann- ars vegar og fjármála- og heilbrigðisráðuneytanna hins vegar. 8. Gildistími. 8.1. Samningur þessi gildir frá 1. júlí 1977 og fer um gildistíma hans og uppsögn skv. lögum nr. 29/ 1976. Benedikt Blöndal Jón Finnsson Jón Sigurðsson Jón G. Tómasson. Athugasemd lnga Kristinssonar Eg tel að byrjunarlaunaflokkur hjúkrunarfræðinga ætti ekki að vera lægri en lfl. 12, að öðru leyti get ég fallist á úrskurðinn. Jngi Kristinsson. Kjaranefndarmálið nr. 7/1978 Hjúkrunarfélag íslands gegn borgarstjóranum í Reykjvík f. h. Reykjavíkurborgar 1. Hinn 26. október 1977 gerðu Hjúkrunarfélag Is- lands og Reykjavíkurborg með sér aðalkjarasamn- ing fyrir tímabilið 1. júli 1977 til 30. júní 1979. 1 aðalkjarasamningi þessum er svo mælt, að um laun og önnur kjör hjúkrunarfræðinga í starfi hjá sjúkrastofnunum Reykjavíkurborgar skuli gilda ákvæði samnings BSRB og ríkisins frá 25. október 1977 með einstökum, tilteknum frávikum. Hjúkr- unarfélag Íslands er því bundið af ákvæði aðal- kjarasamnings Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um röðun í launaflokka en sá aðalkjarasamn- ingur kveður á um, að við röðun starfa í launa- flokka skuli að megin stefnu til höfð hliðsjón af röðun samkvæmt sérkjarasamningum bandalags- félaga 1976 með síðari breytingum. Frá þessari reglu megi þó víkja, ef ástæða er til vegna saman- burðar við kjör á almennum vinnumarkaði eða af öðrum gildum orsökum. 2. I aðalkjarasamning Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og fjármálaráðherra, sem skv. ofansögðu gildir því einnig fyrir aðila þessa máls, voru nú tekin ýmis ákvæði er áður voru í sérkjarasamning- um og mega því falla þaðan niður. 3. Með bréfi borgarstjóra til Hjúkrunarfélags Islands frá 28. mars 1977 var gefið fyrirheit um vilja borgaryfirvalda til að „taka kjör hjúkrunarfræð- inga á sjúkrahúsum borgarinnar til sérstakrar meðferðar m. a. með hliðsjón af því að kannað verði, hvort kjör þeirri hafi við gerð kjarasamn- inga að undanförnu hækkað til jafns við kjör ann- arra aðildarfélaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.“ I samningaviðræðum hafa borgaryfirvöld boðið eins launaflokks hækkun fyrir hjúkrunar- fræðinga eða jafngildi hennar eftir nánara sam- komulagi og fyrir kjaranafnd gerir varnaraðili kröfur um, að laun og önnur kjör hjúkrunarfræð- inga verði ákveðin með sama hætti eða hliðsjón Hjúkrun 5

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.