Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Page 10
Formannaráðstefna BSRB
Formannaráðstefna Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja fór fram 14. og
15. febrúar sl. á Hótel Sögu. Höfuð-
mál ráðstefnunnar var að ræða sam-
ræmdar aðgerðir gegn fyrirhugaðri
kjaraskerðingu ríkisstjórnarinnar.
Að loknum nefndarstörfum og al-
mennum umræðum voru eftirfarandi
samþykktir gerðar:
Með kjarasamningum samtaka
launafólks á sl. ári var réttur hlutur
launamanna eftir langvarandi stór-
fellda kjaraskerðingu, er leiddi af
riftun kjarasamninga vorið 1974,
þegar hætt var að greiða umsamdar
vísitöluuppbætur á laun.
Með frumvarpi því, sem ríkis-
stjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi
um ráðstafanir i efnahagsmálum, er
enn á ný rift nýlega gerðum kjara-
samningum. Á þennan hátt er komið
í veg fyrir að launafólk geli í frjáls-
um samningum samið um launakjör
sín eins og lög um stéttarfélög og
vinnudeilur frá 1938 og lög um
kjarasamninga Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja frá 1976 gera
ráð fyrir.
Formannaráðstefna BSRB 1978
ályktar að ekki verði lengur við það
unað, að fjárskuldbindingar þær er
felast í kjarasamningum, séu að engu
hafðar af ríkisstjórn og Alþingi.
Því ákveður formannaráðstefnan
að stjórn Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja leiti samstarfs við önnur
samtök launafólks, sérstaklega Al-
þýðusamband íslands, Farmanna- og
fiskimannasamband Islands, Banda-
lag háskólamanna og Samband ísl.
Frá formannaráðstejnu BSRB. Frá vinstri: Agást Geirsson, formaSur Fclags íslenskra
símamanna (virSist hafa slakaS á rétt í augnablikinu), Svanlaug Árnadóttir, formaSur
HFI og Brynja GuSjónsdóttir hjúkrunarfrœSingur, ásamt jleirum.
Frá vinstri: Sigurveig SigurSardóttir HFI, ÞuríSur Backman HFI, Lára Hansdóttir, for-
maSur Starfsmannafélags Sjúkrasamlags Reykjavíkur. í ræSustól er Albert Kristinsson,
formaSur Starfsmannajélags HafnarfjarSar. Lengst t. h. situr Ingibjörg Helgadóttir HFÍ,
en hún var fundarstjóri ráðstefnunnar ásamt Albert Kristinssyni.
8
IiJUKKUN