Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 13
mönnum í menntunarmálum lands-
ins til mikils sóma.
Annar mikilsverður áfangi í
menntunarmálum hjúkrunarfræð-
inga sem mjög ber að þakka og hef-
ur orðið heilladrjúgur, er að síðan
árið 1975 hafa hjúkrunarfræðingar
átt kost á framhaldsnámi í hinum
ýmsu sérgreinum hjúkrunar í Nýja
hjúkrunarskólanum, sem einnig hef-
ur grunnnám.
Síðastliðið haust gekkst mennta-
málaráðuneytið fyrir því í samráði
við Hjúkrunarfélag íslands, að við
Kennaraháskóla Islands hófst nám
fyrir verðandi hjúkrunarkennara,
sem mun hæta úr langvinnum skorti.
Á undanförnum árum hefur það
gerst að nýjar stéttir hafa tilkomið
innan heilbrigðisþjónustunnar. Fyrir
þessar stéttir hefur verið lagt upp
gott nám og ber að fagna því. Fyrir
starfsstéttir sem skýrt og greinilega,
samkvæmt reglugerðum, eru aðstoð-
arfólk hjúkrunarfræðinga, lyfja-
fræðinga eða lækna, eru gerðar
hærri kröfur um undirbúningsnám
en miðað er við fyrir Hjúkrunar-
skóla íslands. Þessi þróun getur vart
talist heillavænleg né eðlileg.
Álitsgerð
Staðsetning og lengd hjúkrunar-
jrœðináms innan menntakerfisins
Frumvarp til laga um framhalds-
skóla gerir ráð fyrir að hjúkrunar-
fræðinám fari fram innan fjölbrauta-
skólanna, og taki 4 ár (9 mánuði
hvert, sem eru 36 mánuðir) og nem-
endur ljúki námi með réttindi sem
hjúkrunarfræðingar. Síðan bætast
við 1-2 ár (9 mánuðir hvert) sem
eru 9-18 mánaða nám til sérfræði-
réttinda. Samfara námi á kjörsviði
virðast nemendur eiga að stunda al-
mennt nám í tungumálum, stærð-
fræði o. s. frv.
Hjúkrunarfélag Islands telur ó-
raunhæft að hjúkrunarfræðinám fari
fram á framhaldsskólastigi, enda
væri það stórt skref aftur á bak frá
því sem hér hefur verið. Allt frá
1931 hefur Hjúkrunarskóli íslands
verið þriggja ára skóli (11 mánuðir
hvert = 33 mánuðir). Samkvæmt
reglugerð eru inngönguskilyrði í
Hjúkrunarskóla Islands gagnfræða-
próf, en reyndin hefur verið sú, að
allt að helmingur umsækjenda eru
stúdentar og aðrir hafa lokið 2-3
bekkjum í framhaldsdeildum gagn-
fræðaskólans (samsvarar 3-4 bekkj-
um í fjölbraut). Þetta hefur orðið til
þess að Hjúkrunarskóli íslands hef-
ur getað aukið gæði þess náms sem
þar fer fram. Það sérfræðinám inn-
an hjúkrunar, sem hér hefur farið
fram, er 11-22 mánaða langt, svo
einnig það yrði skref aftur á bak.
Það nám sem fram fer í hjúkrun-
arskólunum í dag gerir þær kröfur
til nemenda að þeir hafi ákveðna
grundvallarþekkingu á valdi sínu,
ella yrði þeim ókleift að stunda þar
nám. Hjúkrunarfræði er vísinda-
grein og þess vegna óraunhæft að
ætla námsmönnum að leggja stund á
hjúkrunarfræði jafnhliða almennu
námi sem hún byggir á.
„Frumvarp til laga um framhalds-
skóla“ gerir ráð fyrir að 4. árinu sé
skipt í annars vegar hjúkrunarfræði
og hins vegar ljósmóðurfræði.
Hjúkrunarfélag íslands telur að ljós-
mæðranám eigi að vera sérfræðinám
að loknu hjúkrunarfræðinámi, en
ekki sitt hvort námið.
Þeir hjúkrunarfræðingar sem
lykju ljósmæðranámi fengju þá rétt-
indi sem Ijósmœður. Á það má
benda að á síðustu 5 árum hafa milli
40 og 50 ljósmæður farið í hjúkrun-
arfræðinám, lokið þvi og fengið sér-
fræðiviðurkenningu.
Hjúkrunarfélag Islands telur eðli-
legt að hjúkrunarfræðinám sé á há-
skólastigi (þó þannig að stjórnin sé
í höndum sérmenntaðra hjúkrunar-
fræðinga) vegna þess að:
1. Iljúkrunarfræðingar starfa sjálf-
stætt að sinni grein, en ekki undir
stjórn annarra. (Hjúkrunarlög nr.
8, 13. mars 1974, sbr. lög nr. 32,
22. maí 1975). Hjúkrunarfélag
íslands telur því rökrétt að gera
meiri námskröfur til hjúkrunar-
fræðinga en heilbrigðisstétta, sem
samkvæmt lögum og reglugerðum
starfa undir annarra stjórn.
2. Menntun hjúkrunarfræðinga víða
i heiminum er á háskólastigi eða
stefnir þangað, enda er álit WHO
að svo eigi að vera, samanber er-
indi Dorothy Hall, ráðgjafa WHO
um hjúkrunarfræðinám, 12. 02.
1974.
3. Það er eðlileg þróun að bæta
nám.
Frumvarp til laga um framhalds-
skóla gerir ráð fyrir að nemendur
geti orðið hjúkrunarfræðingar á 20.
aldursári.
Álit Hjúkrunarfélags Islands er að
fólk innan 18—20 ára aldurs hafi
ekki nægan þroska til þess að mæta
þeirri ábyrgð sem starfið leggur
þeim á herðar og veita þá þjónustu
sem þarf.
Alkunna er, að ekki einungis hér
á landi, heldur og að flestir skólar
erlendis, gera þá kröfu að nemendur
sem teknir eru inn séu a. m. k. 18
ára.
Starfssvið h júkrunarfrœðinga
Þegar skipuleggja á nám verður
slíkt að gerast með hliðsjón af því
sem starfið felur í sér.
Hjúkrunarfræðinám stefnir að því
marki að gera nemandann hæfan til
sjálfstæðra hjúkrunarstarfa. Eins og
hjúkrunarfræðinám er skipulagt í
„frumvarpi til framhaldsskóla" virð-
ist þetta sjónarmið ekki haft í huga.
Sem aðili sjálfstæðrar heilbrigðis-
stéttar tekur hjúkrunarfræðingurinn
þátt í að efla félagslega, sálræna og
líkamlega velferð einstaklingsins,
hvort sem hann er í sínu eðlilega um-
hverfi eða innan sérstakrar heil-
brigðisstofnunar.
Efling heilbrigðis felur í sér að
Hjúkrun
11