Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 15

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 15
Mannfræði - Heilbrígðisþjónusta Margrét Þorsteinsdóttir hjúkrunarkennari Undanfarið hafa ýmsar greinar um mannfræði í hjúkrunarfræðitímaritum vakið athygli mína. Tel ég að hjúkrunarfræðingar ættu gjarnan að afla sér meiri þekkingar á þessari grein samfélagsvísinda og þá sérstaklega þeir er hyggja á reisu um heiminn. Með þessum skrifum mínum vil ég gefa örlitla vísbendingu um hvernig þessi fræði- grein tengist heilbrigðis- þjónustunni. Maðurinn sem lífvera og félagsvera er í brennidepli margra samfélags- fræðigreina en frá mismunandi sjónarhorni. Þessar fræðigreinar leggja hver annarri eitthvað af mörkum, þannig að ekki er hægt að draga að öllu leyti skýr mörk á milli þeirra. Hér er ætlunin að líta á tengsl tveggja fræðigreina, mann- fræðinnar og heilbrigðisfræðinnar. Mannfræðin leitar að þekkingu um manninn sem lífveru, liffræði- og fé- lagslega séð. Tilhneigingar hefur gætt að flokka hinn líffræðilega þátt undir læknisfræði og bendir það á skörun þessara greina. Hinn félags- ^egi Jiáttur mannfræðinnar er til frekari afmörkunar nefndur menn- lngar- og félagsleg mannfræði (kul- hjúkrun tur- og sosialantropologi), sem fjall- ar m. a. um hina ýmsu kynþætti, samfélög og menningarmunstur þeirra. Þessi þáttur tengisl náið fé- lagsfræðinni. Heilhrigðisfræðin leitar að orsök- um sjúkdóma og vanheilinda og leið- um til lækninga og varnar. Þar sem sjúkdómar hafa að öllum Iíkindum hrjáð mannkynið frá upphafi, hefur baráttan gegn þeim og viðhorf til þeirra mótað ýmis atferli í menn- ingarmunstri þjóðanna, sem bæði er fróðlegt og gagnlegt fyrir starfs- lið heilbrigðisjrjónustunnar að kynn- ast. Margar rannsóknir eru gerðar á manninum til að kanna hina ýmsu þætti likamsstarfseminnar og bera saman niðurstöður milli mismunandi hópa. Skýringa á niðurstöðum er þá oft leitað í umhverfi hópanna, sem m. a. liinn félagslegi Jráttur mann- fræðinnar sér um að kanna. Vaknar Jiá oft sú spurning hvort líkamsstarf- semin aðhæfi sig umhverfinu. Dæmi um Jretta er, að á hásléttun- um Perú eru Jrað eingöngu innfædd- ir indíánar sem geta unnið erfiðis- vinnu í hinu Jiunna lofti. Umhverfi mannsins hefur orðið vettvangur margra rannsókna þegar leitað er að orsökum sjúkdóma, hæði líkamlegra og á síðari tímum andlegra sjúk- dóma. Varðandi orsakir líkamlegra sjúkdóma er áberandi hve rannsókn- ir hafa beinst að vissum þáttum lifn- aðarhátta fólks, svo sem neysluvenj- um. Aðra mikilvæga þætti sem hafa á- hrif á heilsufar mannsins, má finna í menningarmunstri Jjjóða. Er hér um að ræða viðhorf til sjúkdóma, orsakir Jjeirra og meðferð, en auk þess viðhorf og siði tengda hinum ýmsu lífsskeiðum allt frá fæðingu til dauða svo og fjölskyldugerð og tengsl. Varðandi þekkingu á þessum þáttum hefur félagsleg mannfræði lagt mikið af mörkum. Slíkar vett- vangsrannsóknir hafa verið algeng- ari meðal frumstæðra þjóða, vegna þess að áhugi var meiri á lifnaðar- háttum þeirra og að kanna ókunn lönd. Oft voru dómar lagðir á menn- ingu frumstæðra Jjjóða með hlið- sjón af gildismati vestrænna þjóða. Nú eru að aukast mannfræðilegar rannsóknir á Vesturlöndum, sem sennilega munu draga úr okkar þjóð- hverfu viðhorfum til menningar- munstra annarra Jjjóða. 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.