Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 26
ir starfsfólk, búningsherbergi og
snyrting. Matarlyfta gengur úr kjall-
ara upp á hæðir. Oráðstafað rými er
í kjallara um 24 m2.
A 1. hæð er móttaka og upplýsing-
ar við inngöngu. Læknaherbergi með
tilheyrandi biðstofum, rými fyrir
endurhæfingu, dagheimili fyrir aldr-
aða er fyrirhugað, með tilheyrandi
búnings- og haðaðstöðu og snyrti-
herbergi.
Á 2. hæð er sjúkradeild með þrem
stofum fyrir 3, 4 og 5 rúm. Þar er
einnig setustofa, horðstofa, sjúkra-
bað, skol, vaktherbergi, snyrtiher-
bergi og geymslur.
Á 3. hæð er sjúkradeild. Fimm
tveggjamannastofur og þrjár ein-
staklingsstofur. Þar er aðalvakther-
bergi, býtibúr, skol, hað, setustofa
og borðstofa.
Tímaritið brá sér í heimsókn í
Hafnarbúðir og fékk m. a. þær upp-
lýsingar að þar væru rúm fyrir 25
sjúklinga og eru sjúkrastofur deild-
arinnar á tveim hæðum hússins. All-
ur úthúnaður var auðsjáanlega hinn
besti og ekki annað séð en mjög vel
hafi til tekist með fyrirkomulag og
breytingar allar. Að undirbúnings-
vinnu og hönnun vann Leifur Blum-
enstein byggingarfræðingur, í sam-
vinnu og samráði við Sigurlín Gunn-
arsdóttur hjúkrunarforstjóra Borgar-
spítalans.
Eldvarnarútbúnaður virtist mjög
fullkominn. Mjög víða um húsið var
reykskynjurum komið fyrir. I sam-
bandi við þá er ljósatafla á vakther-
bergi hjúkrunarfræðinga og sýnir
hún hvar í húsinu bilun eða eldur er.
Kerfi þetta er talið mjög nákvæmt.
Hjúkrunarfræðingar nefndu sem
dæmi að einn daginn hefði brauð-
ristin staðið á sér og brennt brauðið.
Við þetta hefði eldvarnarkerfið far-
ið í gang.
Við útidyr hússins var nýstárlegur
dyrasími í tengslum við vakther-
bergi hjúkrunarfræðinga. í honum
var sjónvarpslinsa er sýndi þann sem
við dyrnar stóð. Óhjákvæmilegt er
að hafa húsið læst, svo þetta fyrir-
komulag er til mikils hægðarauka.
Hádegisverður er sendur frá Borg-
arspítalanum, en annar matur útbú-
inn á staðnum.
Dómkirkjuprestarnir heimsækja
Hafnarbúðir vikulega, hvern mið-
vikudag, og gefa sér góðan tíma til
að ræða við sjúklingana.
Sex hjúkrunarfræðingar starfa í
Hafnarbúðum, þar af eru fimm í
hluta úr starfi. 13 sjúkraliðar, þar af
eru fjórir í hlutavinnu. Annað starfs-
lið er starfsstúlkur, handavinnu-
kennari, sjúkraþjálfari, sjúkraliða-
nemar og umsjónarmenn.
Læknir deildarinnar er dr. Friðrik
Einarsson.
Yfirumsjón með deildinni hefur
Hanna María Gunnarsdóttir, aðstoð-
arhjúkrunarforstjóri Borgarspítalans,
en hún hefur einnig umsjón með
legudeildum Heilsuverndarstöðvar-
innar við Barónsstíg, endurhæfingar-
deildunum við Grensás og slysadeild-
inni.
Deildarstjóri er Helga Óskarsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur.
Sjúklingar og starfsfólk höfðu orð
á að ánægjulegt væri að fylgjast með
atvinnulífinu og þeirri miklu hreyf-
ingu sem er umhverfis húsið, en
kváðust ekki verða fyrir ónæði.
I. Á.
Arnarholt
Á Geðdeild Borgarspítalans
að Arnarholti var í desember sl.
tekin í notkun ný bygging fyrir
vistfólk. Er hún í tengslum við
eldra húsið. Var stigið stórt
framfaraskref er unnt var að
flytja 45 af 60 vistmönnum deild-
arinnar úr eldra húsinu, en þar
var aðstaða öll mjög erfið, og
brunahætta mikil þar sem öll
skilrúm þess húss eru úr timbri.
Hér er um að ræða fyrsta áfanga
þessara nýju framkvæmda.
Arnarholt tók til starfa sem vist-
heimili fyrir andlega fatlaða 28. ág.
1945 og heyrði undir Félagsmála-
stofnun Reykjavikurborgar.
Fyrstu sjúklingar komu frá Korp-
úlfsstöðum, Elliðavatni, frá Klepps-
spítalanum og nokkrir munu liafa
komið frá ýmsum stöðum í Reykja-
vík. Allir sjúklingarnir höfðu áður
dvalið á ýmsum sjúkrahúsum til
lengri og skemmri tíma áður en þeir
komu á Arnarholtsdeildina. Arnar-
holt var sameinað Geðdeild Borgar-
spítalans 1971.
Nafn deildarinnar hefur síðan ver-
ið Geðdeild Borgarspítalans á Arn-
arholti. Þetta er opin deild og allir
sjúklingar dvelja þar af frjálsum
vilja.
Langílestir sjúklinganna er íólk á
aldrinum frá fertugu til níræðisald-
urs, en einir 9 sjúklingar innan fer-
tugs. Þeir eru allir andlega fatlaðir
eflir langvarandi geðræna sjúkdóma,
sumir með fleiri en einn sjúkdóm,
einnig eru í hópnum sjúklingar með
vefrænt orsakaða sjúkdóma og loks
allmargir vangefnir.
Á Arnarholtsdeildinni starfa 1
geðlæknir, 1 sérfræðingur í lyflækn-
ingum og aðstoðarlæknar geðdeild-
arinnar á Borgarspítalanum; einnig
hjálpa aðrar deildir Borgarspítalans
24
HJUKRUN