Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 31

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 31
Handavinna og jöndurkennsla jer enn sem komiS er jram í gamla húsinu. Ekki var j)ó að sjá að j>að hejði nein álirij á afköstin og sjúklingarnir sátu jullir áliuga yjir vinnu sinni. - Ljósm. Ingibjörg Arnadóttir. við meðferð vefrænna sjúkdóma. Deildin hefur 4 hjúkrunarfræðinga- stöður, 2 eru setnar, 8 sjúkraliða- stöður, 3 eru setnar, 8 manns að- stoðarstarfsfólk. Tveir iðjuþjálfar starfa við deildina. Á árinu 1976 voru unnir tæpir tólf hundruð munir alls. Loks er ráðsmaður og ráðskona og starfslið þeirra í eldhúsi, þvotta- húsi og utan dyra. 1 iðjuþjálfun vinna venjulega um 27 sjúklingar og 8 þar af taka verk- efni með sér upp á herbergi sín. 22 sjúklingar taka einnig þátt í heimil- isstörfum og 6 taka þátt í útvinnu. Allir sjúklingar fá greitt fyrir störf- in. Sjúklingar sem þess óska fá leyfi til að heimsækja vini og vandamenn, venjulega aðra hverja viku. Ferðir eru farnar í leikhús, kvikmyndahús, sundlaugar, listsýningar í borginni og loks á sölusýningar þar sem sýnd- ir eru og seldir þeir munir er sjúkl- ingarnir hafa unnið, sem venjulega eru haldnar tvisvar á ári. Þá eru sumarferðir farnar til áhugaverðra staða. Haldnar eru kvöldvökur með kaffiveitingum og eigin bakstri sjúklinga. Nýja byggingin - fyrsti áfangi er dvalarherbergi fyrir 45 sjúklinga. Siðan kemur eldhús og borðstofa í næsta áfanga. Á efri hæð bygging- arinnar eru 14 eins manns herbergi, 2 fjögurra manna herbergi, 4 2ja manna herbergi. Á neðri hæð eru 7 eins manns herbergi og 4 2ja manna herbergi. Setustofur eru á báðum hæðum og loks öll venjuleg starfsher- bergi starfsfólks, snyrtiherhergi o. s. frv. Yfirlæknir deildarinnar, frá ára- mótum 1971-1972, er Karl Strand, en hann tók við af Kristjáni Þor- varðssyni. Edith Jónsson geðhjúkr- unarfræðingur, aðstoðarhjúkrunar- forstjóri Borgarspítalans, sér um yf- irstjórn hjúkrunar. Oskar Jónsson hjúkrunarfræðingur er deildarstjóri og Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir aðstoðardeildarstj óri. Eins og fyrr segir hefur deildin fjórar stöður hjúkrunarfræðinga, en aðeins tvær eru setnar. Þessir tveir hjúkrunarfræðingar skiptast því á að taka bakvaktir, auk sinnar föstu dagvinnu. Á þeim hvílir því óeðli- lega mikið starfsálag. Sem stendur berst stofnunin við skort á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. „Það sem bjargar okk- ur er að það starfsfólk sem við höf- um er frábærlega duglegt og sam- hent,“ sagði Edith Jónsson í viðræð- um við tímaritið. Starfskraftar sjúklinganna eru einnig skipulega nýttir á þann hátt, að hver sem það getur hefur sitt verkefni að vinna og gegnir því með stakri trúmennsku og áhuga. And- rúmsloft á staðnum var því mjög þægilegt og það lá í loftinu að fólki leið þarna eftir atvikum mjög vel. I. Á. kaktherbergi og gangur nýju byggingarinnar í Arnarhclti. HjÚKRUN 25

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.