Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Side 36
Fremsta röð frá vinstri: Sigrún Magnúsdóttir, Vilborg Einarsdóttir, Guðrún Olajsdóttir, Kristborg Björgvinsdóttir, Margrét Valdimars-
dóttir, Unnur Baldvinsdóttir. Miðröð frá vinstri: Sigríður Harðardáttir, Rósa Bragadóttir, Anna Björnsdóttir, Guðrún Ingadóttir, Guð-
björg Davíðsdóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Viktoría Ásmundsson, Þóra Filippusdóttir. Efsta röð frá vinstri: Kristín Þórðardóttir, Unn-
ur Einarsdóttir, Bóthildur Steinþórsdóttir, Anna Hermannsdóttir, Auðbjörg Hannesdóttir, Guðrún Erla Aðalsteinsdóttir. -
Ljósmynd Mats.
Brautskráning frá NHS
Þann 17. desember sl. voru braut-
skráðir 20 hjúkrunarfræðingar frá
Nýja hjúkrunarskólanum.
Þetta var í annað skiptið sem hóp-
ur ljósmæðra lauk tveggja ára hjúkr-
unarnámi frá skólanum, en meðal
þeirra voru einnig tveir þroskaþjálf-
ar.
María Pétursdóttir skólastj. flutti
ávarp og lýsti starfi skólans. í loka-
orðum sínum til hinna nýju hjúkr-
unarfræðinga lagði hún áherslu á að
þrátt fyrir alla þjálfun til starfa á
sjúkrahúsum, væri almenn heilsu-
vernd sá þáttur sem einnig bæri að
efla.
Ingibjörg Magnúsdóttir deildarstj.
tók til máls og lýsti aðdraganda að
stofnun skólans. Jafnframt skýrði
hún þá ákvörðun heilbrigðisráðu-
neytisins um sérfræðingsviðurkenn-
ingu hjúkrunarfræðinga með ljós-
mæðranám.
Sigríður Jóhannsdóttir hjúkrunar-
kennari kvaddi nemendur og þakk-
aði þeim samveruna.
Guðrún Eggertsdóttir kvaddi skól-
ann fyrir hönd hópsins.
Einn af nemendum skólans, Georg-
ina Stefánsdóttir, lést í bílslysi í
október sl. Var hennar minnst í á-
vörpum nemenda, kennara og skóla-
stjóra.
Margt gesta var við skólaslitin.
Að athöfn lokinni þáðu viðstaddir
veitingar, sem nemendur og skóli
áttu heiður af.
A. S. I.
30
HJÚKRUN