Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1978, Síða 22
I Nýja hjúkrunarskólanum fór í maí sl. tvívegis fram þriggja daga námskeið fyrir hjúkrunarfrœðinga, sem leið-
beina á deildum sjúkrahúsa. - María Pétursdóttir skólastjóri kynnti námskeiðin en kennarar voru Marie Lysnes
og Marga Thome. Námskeiðin fóru að mestu fram í fyrirlestraformi, en einnig voru almennar umrœður og hóp-
vinna. Verður vœntanlega hœgt að skýra frá niðurstöðum hópvinnunnar í nœsta blaði. — Þátttaka í námskeiðunum
var mjög góð og ánœgja ríkti meðal lijúkrunarfrœðinganna.
Myndin er af fyrri hópnum. Fyrirlesari er Marie Lysnes, geðhjúkrunarfrœðingur frá Noregi.
Ljósm. lngibjörg Arnadóttir.
Fundargestir voru mjög fáir að
venju, eða 36 þegar flestir voru - og
er þá stjórnin talin með.
Fundi var slitið kl. 23.25.
Ragnliildur G. Guðmundsdóttir
ritari.
2. Sesselja Karlsdóttir flytur er-
indi um hjúkrun fyrirbura.
3. Kynntar verða samþykktir af
fulltrúafundi HFl dagan 3. og
4. apríl sl.
í stórum dráttum fjallaði erindi
Harðar um hvað fyrirburi er, helstu
vandamál þeirra, um lífslíkur og svo
seinni vandamál þeirra sem lifa af.
Einnig kom hann lítils háttar inn á
orsakirnar fyrir því, að börn fæðast
fyrir tímann. Sýndi hann okkur á
slides-myndum ýmsar samanburðar-
tölur allt frá árunum 1940-1950 og
fram til dagsins í dag, og var saman-
burðurinn m. a. gerður á mismun-
andi meðferðum, sem börnin hafa
notið, lifandi fæddum fyrirhurum,
fyrirburum sem lifðu (lifa) 1 mán-
uð eftir fæðingu o. s. frv., og var
þetta mjög fróðlegt og skemmtilegt.
Mörgum spurningum var beint til
llarðar eftir erindið og svaraði hann
þeim fúslega.
Síðan tók Sesselja til máls, en hún
vinnur á vökudeild Landspítalans,
sem er gjörgæsludeild fyrir nýbura,
og þjónar öllu landinu. Sesselja
ræddi aðallega um hjúkrun þessara
litlu barna, og sýndi okkur slides-
myndir af deildinni. Ræddi hún m.a.
um mikilvægi þess, að gott og náið
samstarf væri milli foreldra barn-
anna og starfsfólks deildarinnar, til
að rjúfa ekki tengsl móður og barns,
þó það liggi á svona einangraðri
deild. Deildin tekur 14 börn, og
vantar oftast pláss fyrir fleiri. Þá gat
Sesselja þess, að hjúkrunarfræðinga
vantaði tilfinnanlega á deildina.
Er hún hafði lokið máli sínu og
svarað spurningum utan úr sal, stóð
Hörður upp aftur, og kvaðst vilja
taka undir orð Sesselju viðvíkjandi
að deildin væri nú þegar allt of lítil,
tæki vantaði til alls, og starfsfólk og
þá aðallega hjúkrunarfræðingar
væru mjög af skornum skammti.
Sagði hann að lokum, að fín og
dýr „luxus“-tæki skiptu ekki megin-
máli, ef ekki væru góðir hjúkrunar-
fræðingar, sem hugsuðu vel um
börnin og fylgdust með tækjunum.
Síðast á efnisskránni voru sam-
þykktir, sem gerðar voru á fulltrúa-
fundinum 3. og 4. apríl 1978. Las
Asa Atladóttir þær upp.
Sumarhús HFÍ, Kvenna-
brekka, Mosfellssveit
Vegna forfalla eru eftirtaldar vikur
lausar í Kvennabrekku í sumar:
7.-14. og 21.-28. júlí, og 1.-15. sept-
ember.
Upplýsingar á skrifstofu HFÍ.
Rit send skrifstofu HFÍ
Frá World Health Organization,
Geneva:
The SI for the health professions.
Criteria for the evaluation of
learning objectives in the edu-
cation of health personnel.
Community Health Nursing.
Understanding Research in Nurs-
ing.
20
HJUKRUM