Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 12

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 12
ið Nýi hjúkrunarskólinn og hóf hann starfsemi sína haustið 1972. Fyrsti hópurinn, sem stundaði nám í skólanum voru ljósmæður. f*ær hófu nám í hjúkrunarfræði árið 1972 á vegum heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins. Er Nýi hjúkrunarskólinn tók til starfa flutt- ust þær yfir í hann að beiðni ráðu- neytisins og af þeim hópi braut- skráðist 21 frá skólanum í desem- ber 1974. Annar hópur ljósmæðra, 18 að tölu auk tveggja þroskaþjálfa, lauk prófi í desember 1977. Þriðji hópur nemenda lauk hjúkrunar- fræðinámi í skólanum í desember 1978, þeir voru 14. Þótt Nýi hjúkrunarskólinn hafi upphaflega átt að starfa á svipuðum grundvelli og Hjúkrunarskóli Is- lands og samkvæmt sömu reglu- gerð, kom brátt í ljós að mikil eftir- spurn og ákveðnar óskir komu frá hjúkrunarfræðingum um, að skól- inn yrði fremur rekinn sem fram- haldsskóli fyrir hjúkrunarfræðinga en venjulegur hjúkrunarskóli. Skól- inn hefur því með samþykki menntamálaráðherra farið inn á þær brautir að veita framhaldsnám í ýmsum framhaldsgreinum hjúkr- unar: Geðhjúkrun, skurðhjúkrun, svæfingahjúkrun, gjörgæslu og hjúkrun á handlækninga- og lyf- lækningadeildum. Á þessum árum hefur skólinn brautskráð alls 55 hjúkrunarfræð- inga og 80 hjúkrunarfræðinga úr framhaldsnámi ýmiss konar.Við framhaldsnám eru nú 43 hjúkrun- arfræðingar og 12 ljósmæður í hjúkrunarnámi. Gert er ráð fyrir að kennsla í félagshjúkrun eða heilsu- gæslu hefjist í janúarbyrjun á næsta ári. Með tilkomu Nýja hjúkrunarskól- ans hafa hjúkrunarfræðingum opn- ast nýjar leiðir til framhaldsnáms hér á landi, kostnaðarminni og auð- veldari en er þeir þurftu að fara ut- an. Þá var lyft því Grettistaki á þessum áratug að færa hjúkrunarfræðinám inn í Háskóla íslands. Námsbraut í hjúkrunarfræði var stofnuð við há- skólann haustið 1973 ítengslum við læknadeild. Þetta er fjögurra ára nám, er lýkur með BS. gráðu í hjúkrunarfræði. Námið er allfrá- brugðið hinu hefðbundna hjúkr- unarfræðinámi, er kennt hefur ver- ið í Hjúkrunarskóla íslands og Nýja hjúkrunarskólanum. Bóklegt nám er allmiklu meira en verklegt nám í sjúkrahúsum (kliniskt nám) mun minna. Háskóli íslands hefur þegar brautskráð 36 hjúkrunarfræðinga, af þeim hafa 8 auk þess lokið prófi í uppeldisfræðum til kennsluréttinda og tveir verða á þessum vetri við framhaldsnám í háskólum í Banda- ríkjunum. í Háskóla íslands stunda nú um 100 nemendur nám í hjúkrunarfræði. Allmikill gustur hefur staðið um þessa námsbraut í háskólanum, sumir telja hana lyftistöng fyrir hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar- þjónustu í landinu, aðrir telja hjúkr- unarfræði ekki eiga heima í vísinda- stofnun. Hjúkrunarfélag íslands hefur sýnt afstöðu sína með því að óska eftir því við yfirvöld, að allt nám í hjúkrunarfræði fari fram í há- skólanum eins fljótt og því verður viðkomið. Við námsbrautina er starfandi einn lektor í hjúkrunarfræði og einn adj- unkt, auk þess var á síðastliðnu sumri auglýst til umsóknar staða dósents í hjúkrunarfræði. Þá hafa um 35 hjúkrunarfræðingar lokið eins árs námi frá Kennarahá- skóla Islands. Rit í febrúarbyrjun 1978 gaf heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytið út Hjúkrunarmál, yfirlit yfir nám og störf hjúkrunarfræðinga og sjúkra- Iiða. Þetta rit, sem út kom í 500 eintökum seldist upp á 7 mánuðum. Þetta er fyrsta ritið, sem gefið er út um hjúkrunarmál hér á landi og hefur ráðuneytið áhuga á að gefa það út að nýju á árinu 1980, senni- lega þá aukið og endurbætt. Lokaorð I þessu stutta yfirliti hefi ég stiklað á stóru og einkum drepið á þau mál- efni, er fjallað hefur verið um af löggjafa og ráðuneytum. Heiti greinar minnar geri ég að lokaorðum og bið félaga mína að í- huga: „Höfum við gengið til góðs.“ 15. október 1979 8 HJÚKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.