Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 20

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 20
göngu, jafnvel þó allt sé eðlilegt að öðru leyti. í mörgum tilfellum þarf að fram- kalla fæðingu fyrir tímann, svo sem við ýmsa sjúkdóma á meðgöngu, t.d. pre-eclampsia, rhesusósam- ræmi, króniskir sjúkdómar í hjarta og lungum, sykursýki o.fl. Sé vitað með vissu um meðgöngulengd í þessum tilfellum, verður lítil hætta á gangsetningu of seint eða of snemma, en hvort tveggja er stór- hættulegt fyrir barnið. Akvörðun á tímalengd meðgöngu byggir á: 1. Dagsetningu síðustu tíða. 2. Kliniskri skoðun. 3. Dagsetningu fyrstu fósturhreyf- inga. Klinisk skoðun er langöruggust á 1. trimestri (1 .-12. vika). Nauðsynlegt er að biðja konurnar að skrifa hjá sér dagsetningu fyrstu fósturhreyfinga, ef þær hafa ekki fundið þær fyrir fyrstu skoðun. Al- gengast er að frumbyrjur finni fyrstu fósturhreyfingar við 18.-20. viku meðgöngu, en fjölbyrjur við 16.-18. viku meðgöngu. Meðganga er talin vera um það bil 40 vikur. Almenn heilsufarsskoðun Mæla hæð konunnar og þyngd hennar. Allar konur undir 160 cm á hæð eru sendar í grindarmælingu á seinustu vikum meðgöngu. Spyrjast þarf fyrir um þyngd konu fyrir meðgöngu og upplýsa hana um hversu mikið hún á að þyngjast, og að óæskilegt sé að hún megri sig á meðgöngu. Það getur skaðað bæði hana og barnið. Konan á aðþyngjast um 10-12 kg. á meðgöngu. Hún á að auka fitu- massa sinn um 4 kg., þ.e. orkuforði fyrir fæðingu og brjóstagjöf. Hold- ugar konur þurfa ekki að auka fitu- forða sinn, og því þurfa þær ekki að þyngjast um nema 6-8 kg. Offita veldur oft erfiðleikum í fæðingu. Nauðsynlegt er að fræða konuna vel um þetta. Læknir hlustar hjarta og lungu konu. Einnig athugar hann hvort konan hafi bjúg á fótum, höndum eða í andliti. Bjúgur getur bent á byrjandi pre-eclampsiu. Blóðþrýstingur er mældur hjá kon- unni liggjandi. Ef hann er 140/90 eða meiri, er konan látin hvíla sig og blóðþrýstingur síðan mældur aftur. Hæð legbotns er mæld frá efri brún symphysis. Mælt er ummál kviðar. Einnig er hlustað eftir fósturhljóð- um eftir 20. viku. Athugað er hvort stærð legs svari til dagsetningu síðustu tíða, hvernig portio lítur út og hvort cervix sé eðlilega langur og lokaður. Athug- að er hvort náist upp í promontori- um, þ.e. hvort grindin virðist eðli- lega stór. Nauðsynlegt er að vita blóðflokk konunnar, sérstaklega rhesus- tlokk. Ef engin blóðflokkun hefur átt sér stað, eða er eldri en 10 ára, er sýni tekið við fyrstu skoðun og sent til blóðflokkunar. Einnig er rann- sakað hæmoglobinmagn blóðs og hæmatocrit. A göngudeild Landspítalans eru konur yfirleitt settar strax á járn og vítamín, þó blóð sé eðlilegt. Þetta eru fyrirbyggjandi aðgerðir, vegna þess að fylgjan og fóstrið taka til sín járn og einnig missir konan blóð í fæðingunni. Heildarblóðmagn vanfærrar konu eykst vegna aukinnar súrefnisþarf- ar, svo og stækkunar á æðabeði lík- amans. Blóðvökvi eykst um 40- 50%, en rauð blóðkorn aðeins um 25%. Hæmoglobin lækkar því eðli- lega á meðgöngu, þó heildarmagn aukist í líkamanum. Hæmatocrit lækkar um u.þ.b. 15% á meðgöngu. MCHC breytist ekki. Einnig er blóðið rannsakað fyrir lues-sýkingu og mótefni fyrir rauð- um hundum. Sýking af rauðum hundum á fyrstu mánuðum meðgöngu veldur fóstur- skemmdum. Fylgjast verður með mótefnahækkun í blóði vanfærra kvenna, sem ekki hafa næg mótefni fyrir ef grunur er um nýja sýkingu. Lues veldur sýkingu á fóstrinu eða intra-uterin dauða, en bakterían kemst ekki yfir fylgjuna fyrr en eftir 20. viku. Hægt er að koma í veg fyrir sýkingu á fóstri með lyfjagjöf á meðgöngu. Blóðsýni er tekið ef spurning er um sýkingu af völdum herpes simplex, cytomegalovirus, toxoplasmosis og listeriu. En Rhesus sjúkdómum hefur fækk- að mjög mikið á síðari árum, eftir að Rhesusvarnir byrjuðu hér á landi en það var í demember 1969. Einnig er blóð rannsakað fyrir storkuhæfni, hjá konum með blæð- ingar og storkutruflanir. Fengið er þvag til almennrar þvag- skoðunar og rannsakað fyrir eggja- hvítuefni og sykri í þvaginu. Við næstu komu er tekið þvag til sýkla- rannsóknar (Uricult) og fá konurn- ar leiðbeiningar þar að lútandi. Tal- ið er að 6% vanfærra kvenna fái einkennalausa sýklamigu. Sé ekk- ert að gert, fá 25% af þessum kon- um bráða nýrnaskálabólgu (pyel- onephritis acuta) síðar á meðgöngu eða í sængurlegu. Fái konan við- unandi meðferð er talan 2,6%. Eðlilegt er að konur komi í skoðun á tjögurra vikna fresti fram til 26,- 28. viku, síðan aðra hverja viku fram til 36. viku meðgöngu og síðan vikulega þar til konan fæðir. Avallt er þyngd konunnar mæld, til að fylgjast með þyngdaraukningu. Þyngdaraukning er minnst fyrstu 10-12 vikurnar, en nokkuð jöfn upp frá því. Hún á að vera ca. -300gr. á viku. Ef konan þyngist um meira en 2 kg 16 HJÚKRUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.