Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 43
Hvað er þér efst í huga að loknum
fulltrúafundi SSN?
— Það sem mér er efst í huga eftir
þennan fulltrúafund SSN er, í fyrsta
lagi frábærar móttökur danska
hjúkrunarfélagsins, í öðru lagi það
mannlega og hlýja anddrúmsloft
sem þar ríkti og í þriðja lagi afar
áhugavert og mikilvægt umræðu-
efni. Ég sannfærist alltaf betur um
það mikilvæga hlutverk sem sam-
starf hjúkrunarfræðinga á Norður-
löndum hefur. Ég vil í stuttu máli
greina frá helstu niðurstöðum sem
minn umræðuhópur komst að varð-
andi þær spurningar sem fyrir okk-
ur voru lagðar.
Spurningamar voru þessar:
1. Er hægt að auka heilsugæslu utan
sjúkrahúsa og um leið skera niður
sjúkrahúskostnaðinn.
2. Hvaða svið heilsugæslunnar utan
sjúkrahúsa ber að leggja áherslu á
og hvernig á að haga þátttöku
hjúkrunarfræðinga í mótun og upp-
byggingu þeirra.
Varðandi fyrri spurninguna komst
umræðuhópurinn að þessum niður-
stöðum.
1 a) Að leggja bæri áherslu á að efla
heilbrigði í staðinn fyrir að með-
höndla sjúkdóma, með því móti
mun í framtíðinni þurfa minna fjár-
magn í rekstur sjúkrahúsa.
b) Með bættri heilbrigðisfræðslu
getum við bætt heilsu þjóðarinnar.
c) Með bættu skipulagi er hægt að
stytta innlagnir og jafnframt tryggja
að sjúklingurinn fái rétta meðferð.
Hægt er að nýta betur núverandi
stofnanir, með skynsamlegri skipu-
lagningu og samnýtingu.
d) Með hagræðingu er hægt að
komast hjá tvíverknaði í rannsókn-
um á sjúklingum, sem leggjast inn á
spítala, t.d. með því að hafa sam-
vinnu milli heilsugæslustöðvanna
og sjúkrahúsanna.
Varðandi seinni spurninguna kom-
umst við að þessum niðurstöðum:
a) Hjúkrunarfræðingar sem ein-
staklingar og þeirra stéttarfélög
ættu að hafa áhrif á þróun heil-
brigðisþjónustunnar. Það krefst
þess að hjúkrunarfræðingar komi á
framfæri þekkingu sinni og reynslu
á þann hátt að það nái til stjórn-
valda.
b) Hópurinn lagði áherslu á að
þekkingu hjúkrunarfræðinga beri
að nota í öllu skipulagsstarfi, hvort
sem um er að ræða íbúðarsvæði,
umferðamál, leiksvæði, tómstunda-
mál. skipulagningu vinnustað o.fl.
gera hjúkrunarfræðinginn hæfan til
að stunda hjúkrun, kennslu og
stjórnun, hvort sem er á sviði
heilsugæslu eða á sjúkrastofnunum.
Telur þú ávinning fyrir HFÍað vera
í samtökum eins og SSN?
Margir sjá eflaust í kostnaðinn við
fundi eins og þennan, en ég tel slíkt
samstarf mikilvægt. Þar fáum við
tækifæri til að skiptast á skoðunum
og fræðast hvert af öðru um gang
mála í einstökum löndum.
Samtök sem þessi eiga einnig að
geta veitt styrk við að koma fram
málum stéttarinnar, en mér finnst
einmitt SSN megi láta meira til sín
taka, að kynna þurfi samtökin bet-
ur, ávinna þeim meiri viðurkenn-
ingu, svo það verði mikils virði að
hafa samþykkt eða stuðning frá
SSN upp á vasann.
Hvert var helsta umrœðuaefni íþín-
um hópi?
Umræðuhópurinn sem ég tók þátt í
fjallaði um hvort næg áhersla væri
lögð á þátt heilsugæslu í námi
hjúkrunarfræðinga og hvaða kröfur
skuli gera til grunn-, framhalds- og
eftirmenntunar þeirra með tilliti til
vaxandi starfsemi á sviði heilsu-
gæslu.
Það kom áberandi fram hve þessi
þáttur skipar lítið rúm í grunnnámi
allra Norðurlandanna, en það hins
vegar miðað við hjúkrun innan
sjúkrahúsa.
Aðalinntakið úr niðurstöðu hóps-
ins var, að grunnnámið ætti að veita
nemendum víðtæka þekkingu á
heilbrigði á öllum aldursskeiðum
og skyldi miðað við hjúkrun óháð
starfsvettvangi.
Grunn- og framhaldsnám eiga að
Hvert var meginatriði í niðurstöðum
starfshópsins sem þú sast í?
— Að leggja ber áherslu á að það sé
í höndum hjúkrunarfræðinga að
skipuleggja tengsl milli heilsugæslu
og sjúkrahúsþjónustu, til heilla fyrir
sjúklinginn/skjólstæðinginn.
Hópurinn var sammál um að notk-
un hjúkrunarferlis væri vænlegasta
leiðin til þess að koma slíku sam-
bandi á, þannig að hjúkrunarvið-
fangsefnin sem skjólstæðingurinn
hefði í heilsugæslunni, fylgdu hon-
um inn á sjúkrahúsið og þau sem
hann hefur á sjúkrahúsinu og ekki
eru leyst þar, fylgi honum aftur út í
heilsugæsluna til áframhaldandi
hjúkrunar. Ennfremur var hópur-
inn sammáia um að hjúkrunarfræð-
ingar hvers lands yrðu að finna hag-
kvæmustu tjáskiptaleiðina.
HJÚKRUN
31