Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 41
Samþykkt fundarins
Samvinna norrænna hjúkrunar-
fræðinga (SSN) hélt fulltrúafund á
Hótel Munkebjerg í Vejie, og hafði
sem aðalumræðuefni „forgangs-
verkefni innan heilbrigðisþjónust-
unnar".
A Norðurlöndum hefur notkun fjár-
magns á sviði heilbrigðismála á síð-
ustu áratugum, farið ört vaxandi.
Þessi aukna notkun fjármagns, þar
með talin þörf fyrir fleira starfsfólk,
hefur einkum orðið á starfsemi
sjúkrahúsanna innan heilbrigðis-
þjónustunnar.
Vegna áhrifa efnahagskreppunnar
hafa stjórnmálamenn hin síðari ár,
fyrst og fremst af fjárhagsástæðum,
rætt endurskipulagningu heilbrigð-
ismála. Arangur þessara umræðna
hefur orðið sá, að nauðsyn bæri til
að auka heilsuvernd innan heil-
brigðisþjónustunnar, samtímis því
að draga úr hraða hækkandi kostn-
aðar innan sjúkrahúsanna.
SSN hefur valið þetta umræðuefni
til þess að norrænir hjúkrunarfræð-
ingar verði betur undir það búnir að
taka virkan þátt í lausn þeirra
mörgu vandamála sem bundin eru
endurskipulagningu þessara mála.
í flestum hinna norrænu landa virð-
ist stefnan vera sú, að stjórnvöld
þau, sem ákvörðunarréttinn hafa,
álíta að mennta eigi enn fleiri nýja
starfshópa til þess að taka við verk-
efnum heilsuverndar innan heil-
brigðiskerfinsins.
Álit SSN er að þessi stefna sé hættu-
leg og hafi óþarfa eyðslu í för með
sér, þar sem heilbrigðisþjónustan
ræður þegar yfir starfsfólki á því
sviði sem þörf er á. Þó með þeim
fyrirvara, að ábyrg stjórnvöld láti
sér skiljast, að þá grunn- og fram-
haldsmenntun sem fyrir hendi er,
verði að taka til endurskoðunar í
samræmi við kröfur samfélagsins til
þjónustu á sviði heilsugæslu.
Frá sjónarhóli SSN hefur það úr-
slitaþýðingu, að hjúkrunarfræðing-
Svanlaug Árnadóttir formaður HFÍ var á
fundinum kjörin 2. varaformadur SSN.
ar taki þátt í áætlanagerð og
ákvörðunartöku, svo að því stefnu-
marki innan heilbrigðismála verði
náð — að efla heilbrigði fremur en
að meðhöndla sjúkdóma.
I lok fundarins leitaði blaðið álits
nokkurra íslensku fulltrúanna.
A þessum fundi komst þú inn í
stjórn SSN, sem varamaður Svan-
laugar Árnadóttur. Hvernig leggst
það í þig?
— Jú, það leggst vel í mig og ég er
mjög ánægð með þetta tækifæri til
að kynnast á þennan hátt norrænu
samstarfi. Það er sannfæring mín að
mjög jákvætt er fyrir Hjúkrunar-
félag íslands að taka þátt í norrænu
samstarfi á þessum grundvelli. Það
eru mikið til sömu baráttumál og
sömu vandamál sem á döfinni eru í
hverju landi, og því styrkur og stoð
að hittast reglulega og ræða málin.
Þetta eru nú reyndar ekki fyrstu
stjórnarfundirnir í SSN sem ég sit,
sem varamaður Svanlaugar, því í
fyrra í Rönneberge Kursgárd í Sví-
þjóð, sat ég á þeim fundum með
Svanlaugu í forföllum Maríu
Pétursdóttur.
Þó þetta væri ekki mínir fyrstu
stjórnarfundir fann ég greinilega að
enn er langt í land að ég sé öllum
málum kunnug.
SSN sem bandalag hefur samband
við hin ýmsu samtök innan Norður-
landanna og utan. Má þar nefna
„Nordens fackliga Samorganis-
ation,“ „PCN“, Permanent Stand-
ingCommitteeofNursesintheEEC.
EinnighefurSSN fulltrúaíICN (In-
ternational Counsil of Nurses), sem
nú situr í stjórn samtakanna, og tek-
ur þáttí ýmsu samstarfi sem fer fram
á milli hjúkrunarstarfsliðs í Evrópu,
má m.a. nefna „European Nursing
Group", en í því sambandi starfa
m.a. fulltrúar frá: Belgíu, Dan-
mörku, Vestur-Þýskalandi, Finn-
landi, Grikklandi, ísrael, Ítalíu,
Júgóslavíu, Hollandi, Noregi, Pól-
landi, Bretlandi, Sviss, Svíþjóð,
Tyrklandi og Austurríki.
Aðalfulltrúar í stjórn SSN skiptast
síðan á um að vera fulltrúar SSN á
þeim ráðstefnum sem haldnar eru
innan hinna ýmsu sambanda sem að
ofan eru talin.
Þó að HFÍ sé aðili að ICN, þá eru
tengslin við umheiminn fyrst og
fremst í gegnum SSN og það sem
HFÍ getur byggt mest á.
Á þessum stutta ferli mínum innan
SSN, þá finnst mér ég þegar hafa
orðið vör við vaxandi þróun. í þá átt
að gera SSN að virkari bandalagi
fyrir meðlimi aðildarfélaganna.
Fyrirhugað er t.d. að bjóða upp á
námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga.
Á stjórnarfundinum nú í september
sl. var ákveðið að halda tvö nám-
skeið fyrir hjúkrunarfræðinga.
Fyrra námskeiðið verður haldið í
Svíþjóð9.-1 l.apríl 1980ogerætlað
fyrir hjúkrunarfræðinga í stjórnun-
arstöðum (deildarstjóra). Seinna
HJÚKRUN
29