Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 53
Fréttir og tilkynningar
Ritkynning
Eftirtalin rit hafa verið send
Hjúkrunarfélagi íslands og vill
ritstjórn tímaritsins vekja athygli
hjúkrunarfrœðinga á þeim:
„Kunskapsbehov í omvárdnadsar-
bete och kunskapskrav í várdut-
bildning“, doktorsritgerð eftir Britt
Johansson.
Gefin út í Gautaborg 1979. Út-
dráttur á ensku fylgir í bókarlok.
Ritgerðin fjallar um þróun hjúkr-
unarmenntunar og kröfur þær sem
gerðar eru til menntunar hjúkrun-
arfræðinga nú á tímum.
„Sygeplejens udvikling og kultur-
historiske baggrund“
Kennslubók handa hjúkrunarnem-
um, útgefin af Dansk Sygeplejerád
1978. Helstu þættir bókarinnar eru
þessir:
1) Heilsugæsla, hjúkrun og læknis-
störf frá fornöld til um 1800
2) Heilsugæsla og hjúkrun frá um
1800 tilum 1940.
3) Þróun eftir síðari heimstyrjöld-
ina.
4) Félög og alþjóðasamtök.
5) Hin siðferðilega ábyrgð hjúkr-
unarfræðinga.
„Demokratisk skoleadministra-
sjon“ eftir Helgu Dagsland.
Gefin út í Osló 1979. Bókin fjallar
um stjórnun sem byggist á rannsókn
á þrem hjúkrunarskólum sem gerð
var fyrir norsku uppeldisfræði-
stofnunina. Niðurstöður þessara
rannsókna gilda einnig fyrir alls
konar menntastofnanir, opinbera
skóla og fyrirtæki.
„Sygeplejen — et erhverv med rige
muligheder“
Ágætt kynningarrit fyrir þá sem
hyggja á hjúkrunarnám.
Gefið út af Dansk Sygeplejerád
1979.
„Sundhedsplejerske-besöget í 4 árs
alderen“
Rit þetta er eftir tvo danska hjúkr-
unarfræðinga, Birgit Andreassen
og Lise Sjörslev, og gefið út af
Dansk Sygeplejerád, Kaupmanna-
höfn 1979. Nýstárleg rannsókn á
heilsugæslu barna á fjórða ári byggð
á heimsóknum heilsuverndunar-
hjúkrunarfræðinga til barnafjöl-
skyldna í Korsör í Danmörku.
„The Care of the Drug Dependent
Woman and Her Infant“ fjallar um
aðstoð við verðandi mæður og
ungabörn þeirra sem háðar eru
eiturlyfjum. Bókin er skrifuð af
nokkrum læknum sem vinna við
fylkisháskólann í Wayne Hutzel
sjúkrahúsið í Detroit í Michigan-
fylki. Útgefandi er Department of
Public Health í Michigan.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur gefið út skýrslu til kennslu í
gerð fjölskylduáætlana við
lækna — hjúkrunar- og ljós-
ntæðraskóla í nokkrum löndum
Evrópu.
Hjartavernd hefur sent frá sér
skýrslu um athuganir á blóðþrýst-
ingi íslenskra karla á aldrinum 34-
61 árs. Einnig skýrslu um niður-
stöður hóprannsókna sem gerðar
hafa verið á vegum Hjartaverndar.
öll þessi rit liggja frammi á skrif-
stofu Hjúkrunarfélags íslands og
eru hjúkrunarfræðingar hvattir til
að notfœra sér þá góðu lestrarað-
stöðu sem félagið getur nú boðið
upp á.
Til minningar um Ingibjörgu J. Thoroddsen,
en hún var mikill velunnari hjúkrunarstéttar-
innar, fœrðu systurnar Purídur og Arndís
Þorvaldsdcetur HTÍ að gjöf lóðaklukku og
útsaumaða klukkustrengi og púða.
Á myndinni sést Puríður Porvaldsdóttir t.h.
afhenda Svanlaugu Árnadóttur formanni
HFI, gjafirnar. Gefendum voru fœrðar hinar
bestu þakkir.
HJUKRUN
41